www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Fuel
Sunnudagur, 29. júní 2008

Í dag fór ég í bláa lónið. Í fyrsta skipti.

Hann er ekki fyrsti maðurinn sem býður mér í bláa lónið, en hann er fyrsti maðurinn sem fær já.

Ég hef aldrei átt kærasta sem á börn sem ég á ekki sjálf svo ég hef aldrei prufað þetta áður, að kynnast börnum mannsins sem ég er með. Var massa stressuð áður en hann kom en þegar hann var kominn fannst mér þetta bara auðvelt og gaman eins og venjulega þegar við erum saman, þó ég hafi haldið mig svolítið til hlés. Mér fannst hinsvegar ferlega erfitt að geta ekki snert hann eða kysst þar sem við kynntum hvort annað sem vini. Þó við hefðum kynnt okkur sem par hefðum við svosem ekkert verið utaní hvoru öðru við þessar aðstæður.

Stelpurnar höfðu mig auðvitað grunaða um að vera eitthvað aaaðeins meira en vinur, þrátt fyrir að ég hafi staðið mig eins og hetja í að horfa lítið á hann. Honum stóð nú eiginlega ekkert á sama hvað ég stóð mig vel í því, lagði fram formlega kvörtun. Gat verið. Strax komnir brestir í sambandið. Óvenjulegt að það sé vegna þess að ég horfi of lítið. Venjulega hef ég fengið kvartanir vegna þess að mönnum finnst ég krípí þegar ég horfi á þá og halda að ég sé kannski að hugsa um að myrða þá með yddara. Það segir sennilega meira um þá en mig. Það sem ég hugsa þegar ég horfi á Skriðdrekaljónið er fallegt og gott. Og dirty - en á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og þess vegna vill hann að ég haldi því áfram.

Stelpurnar voru svo yndislegar, kenndu mér á þetta allt saman í bláa lóninu. Ég hlakka til að kynnast þeim betur. Sonur minn vissi nú reyndar for a fact að við erum meira en vinir en þóttist ekkert vita, ég er löngu búin að blurta því að ég eigi kærasta og hann fílar Skriðdrekaljónið, eins og mig reyndar grunaði að hann myndi gera.

Mér líður furðulega eftir daginn. Ég var hissa þegar hann stakk uppá þessu en þykir mjög vænt um að hann hafi gert það. Mér fannst þetta yndislegt og ferlega gaman.

Ástæðan fyrir því að ég hef aldrei viljað fara í bláa lónið var mjög einföld. Ég ákvað fyrir löngu síðan að ef ég færi einhvertíma í bláa lónið þá yrði það með manninum mínum. Þurfti bara að finna hann fyrst.

Yndislegur sunnudagur - but now its back to business.


| anna | 21:56 |
comments

Þú ert dúlla þó þú sért dálítið dirty dúlla.

Nr. 1 | posted by: Kristín | 30.06.2008 | 7:19:38 | [+] |

Dirty dúlla. Best þannig. wave

Nr. 2 | posted by: anna | 30.06.2008 | 9:05:19 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web