Bara f. þig :*
Sunnudagur, 22. júní 2008
Í morgun, þegar ég kom út, stóð bíllinn minn nýþveginn og bónaður í stæðinu fyrir framan húsið hans þannig að það stirndi af honum.
Honum finnst þetta ekki nóg og ætlar að láta massa bílinn. Bauðst til að sjá um að láta skoða hann líka fyrir mig.
Stundum horfi ég á þennan mann, sem finnst ég ekki gera neinar kröfur, og spyr mig af hverju ég er svona hissa. Ég vissi ekki að þeir væru til, nema kannski í bíómyndum og ástarsögum. Menn sem sýna umhyggju á þennan hátt. Menn sem gera svona hluti.
Bara fyrir mig.