Sunnudagur, 04. maí 2008
Ég var að átta mig á því hvað það er nákvæmlega sem mér finnst svona leiðinlegt við að taka til: ég þoli ekki að beygja mig eftir hlutum.
Þetta væri mögulega hægt að laga með því að hækka gólfið þannig að það verði í þægilegri vinnuhæð.