Ég setti fram þessa spurningu af forvitni og það eru engin verðlaun - en þú kemst næst því sem rétt er.
Ég setti orðið "speglun" á msn í dag og fékk einmitt fyrirspurnir um allskonar læknaspeglanir, sem var mjög fjarri því sem ég var að hugsa um. Fólk gleymir því að það er aldrei neitt að mér sem ekki læknast á korteri.
Það sem ég var að hugsa um var annarskonar speglun, sem t.d. góðir vinir og/eða makar gefa hvorum öðrum. Speglun sem byggist á væntumþykju, virðingu og umhyggju. Stundum þarf að segja fólki hluti sem þeim finnst ekkert sérlega gaman að heyra, en gefur því tækifæri til að bæta eitthvað.
Ef manneskja á ekki góða vini eða maka/fjölskyldu sem veita speglun af þessum toga, þá færðu aldrei heilbrigða speglun á hvernig þú hagar þér eða ert.
You're on your own.
Svo "right back at you" er eiginlega helv nálægt því að vera rétt, þannig lagað. Annars er ég svo syfjuð orðin.. skrifa meira um þetta seinna.
Nr. 6 | posted by: anna |
7.05.2008 | 0:16:42 | [+] |
Ég vissi í raun að ég væri með þetta rangt, en heilinn á mér er mjög upptekinn þessa vikuna...
Mér dettur í hug samskipti, þegar fólk líkar vel hvort við annað og ósjálfrátt hermir eftir líkamsstöðu, talanda osfrv. Þegar maður fer í atvinnuviðtal eða mikilvægan fund er hægt að beita þessu og herma eftir þeim sem eru hinum megin borðsins. Halla sér fram á hendurnar ef hinir eru þannig, eða halla sér afslappaður aftur í stólinn ef svo ber við. Síðan þegar maður speglar óvart hreim viðmælanda, og sýnir þannig að maður sé jafningi hans.
Er það langsótt?
Nr. 9 | posted by: Guðrún Inga |
8.05.2008 | 11:06:41 | [+] |
Það sem mér finnst speglun vera er ad innri persónan skín i gegn. Ljót persóna að innan verður ljót að utan þegar maður kynnist henni betur. Beauty er ekki bara skin deep.
Nr. 10 | posted by: Sara |
8.05.2008 | 12:18:10 | [+] |
Það er talað um speglun í samskiptum, þ.e. að spegla það sem manni virðist viðmælandinn vera að birta sér, án þess að hann segi það berum orðum .... Semsé gagnkvæmni í samskiptum, túlkun, "horfa á bak við orðin", etc., etc.
Nr. 11 | posted by: Guðný Anna |
8.05.2008 | 23:03:15 | [+] |
Góðir punktar, ég verð að fá að get back to you, þarf svefn.
Nr. 12 | posted by: anna |
9.05.2008 | 0:56:48 | [+] |