Þriðjudagur, 27. maí 2008
Klyfjuð áfengi datt ég innum útidyrahurðina heima hjá mér rétt áðan. Ég er svo skilyrt, að þegar ég fer í gegnum fríhöfnina með manneskju sem ætlar ekki að kaupa tollinn.. meina.. fólk kaupir tollinn. Annað raskar ró alheimsins, svo ég kom heim með tvöfaldan toll.
Ég hélt að ég myndi koma heim seint og um síðir í kvöld en fyrst ég er komin, og börnin heima hjá pabba sínum, ætla ég að fara í laaangt, heitt bað og deeeekra við mig.
Ójá. Já. ahhhhh yes.