www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Síðasta myndin
Laugardagur, 24. maí 2008

"as shot"

RR0Z4296-2.jpg

eftir smá filteraleik

RR0Z42966.jpg

Af þessum myndum sem teknar voru af mér um daginn eru margar ótrúlega góðar. Venjulega þarf að taka 100 myndir til að ná einni góðri. Þetta er samt sú síðasta sem ég kem til með að birta úr þessu sessioni þó það séu fleiri rúmlega birtingarhæfar. Hann vill að ég komi aftur eftir mánuð og ég ætla að reyna að standa við það í þetta skipti, sjáum hvað gerist þá.

Ég treysti þessum ljósmyndara, sem gæti mögulega skýrt hlutfall góðra mynda. Hlutfall góðra mynda þegar ég tek sjálf myndina, eða sonur minn er mjög hátt þó þær séu aldrei allar góðar, en venjulega er mér meinilla við að fólk taki myndir af mér, ég verð svo meðvituð og lengi frameftir gat ég ekki verið eins og manneskja ef einhver tók upp myndavél. Ég fór að gretta mig eða ranghvolfa í mér augunum. Þetta breyttist ekki fyrr en eftir að mér var sagt frá ljósmyndabrosinu fræga - finn samt ekki staðinn þar sem ég sagði frá því á síðunni svo ég segi kannski bara frá því aftur seinna. Í öllum tilvikum þegar ég hef tekið myndir af fólki og kennt þeim ljósmyndabrosið virkar það. Alveg magnað, af hverju er þetta ekki kennt í skólum?

Helgin verður þétt. Cosmopolitan partí í kvöld, þarf að útbúa kynningu fyrir mánudaginn og finna lausn fyrir annað verkefni og kynna hana í ferðinni. Þegar ég er komin heim aftur er ég að fara að hitta konu sem ég er loksins að fá tækifæri til að vinna með.


| anna | 10:58 |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web