www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Það sem þarf
Laugardagur, 10. maí 2008

Male says: í sumum menningarheimum þá verður ástin til útfrá skuldbindingunni, þú býrð í landi þar sem sambönd koma og fara og allir eru búnir að sofa hjá öllum, en samt hefur fólk einhverja barnalega trú á því að næsta samband verði it
Anna says: well..
Anna says: ég er ekki búin að sofa hjá öllum
Anna says: neita að taka þátt í því dæmi
Anna says: veistu
Anna says: ég hef aldrei verið alveg 100% viss um að einhver sé réttur fyrir mig
Anna says: fyrir utan bókarann
Anna says: samt var ég ekki tilbúin til að búa með honum
Anna says: kannski af því ég þekkti hann svo lítið
Anna says: en ég get hinsvegar sagt þér hvað gerir hjónabönd möguleg og hvað þarf til svo þau heppnist
Anna says: það er nefnilega ekki ást
Anna says: það er ákvörðun

Male says: hmm
Male says: það er sennilega rétt hjá þér
Anna says: fólk tekur ekki þessa ákvörðun lengur
Anna says: því kannski, mögulega, einhvertíma..
Anna says: finnur það eitthvað betra
Anna says: og með þannig mentalítet þá útilokar þú alla þróun
Male says: einmitt
Anna says: þá ertu bara að hanga með einhverjum þangað til sambandið deyr
Anna says: því sambönd sem þróast ekki eða dýpka, þau deyja
Anna says: og þú finnur næsta aðila, en getur ekki tekið ákvörðunina af því aftur.. kannski kemur eitthvað betra næst
Anna says: uppskerð innihaldslitla endurtekningu á sama hlutnum
Anna says: aftur og aftur og aftur..
Anna says: ég var í þessum pakka sjálf áður en ég gifti mig
Anna says: mig langar ekki að gera það aftur
Anna says: mig langar í meira en það
Anna says: smile
Male says: smile
Anna says: magnað, ég þarf mann sem getur tekið ákvörðun!
Male says: hahaha
Anna says: það er ekkert fyndið, ég var að átta mig á þessu núna
Male says: smile
Male says: ég get tekið ákvörðun!
Anna says: já ekkert svona rugl
Anna says: ég ætla ekki að giftast vini mínum aftur smile
Male says: þú ert svo köld
Anna says: góði
Anna says: þú veist að ég er ekki köld
Anna says: og þó ást sé kannski ekki það sem segir til um hvort þetta heppnast eða ekki
Anna says: þá hjálpar ef hún er til staðar
Anna says: langar þig að eiga konu sem elskar þig ekki eins og kona á að elska manninn sinn?
Male says: smile
Anna says: smile
Male says: þannig að kynlíf kemur ekki til greina?
Anna says: ohhhhhhh
Anna says: þú ert svo mikill karlmaður..
Male says: helv


| anna | 14:42 |
comments

Það sem skiptir máli er ekki að finna hinn fullkomna mann( enda er hann ekki til )heldur ad finna" fullkomið fit" fyrir hvern og einn. Sjálf er ég kona sem fann minn mann snemma og er búin ad vera með honum lengi lengi. Við konur höldum í þá von að menn þroskist og breytist með árunum á meðan þeir vilja halda í stúlkuna sem þeir fyrst kynntust. Þroskast parið þá saman eða í sitthvora áttina. Ég er sammála þér að ástin ein er ekki nóg og þetta er allt um decision. því miður ,þar sem ég er hopelessly romantic og vildi óska að ástin sigri allt.

Nr. 1 | posted by: sara | 10.05.2008 | 16:43:50 | [+] |

Ég held að ást sé það sem þurfi oft til að koma fólki saman í byrjun, en til að fólk fari að elska hvort annað og nái að byggja upp líf saman þarf ákveðin ákvörðun að vera tekin. Hvort sem hún er tekin í sitthvoru lagi eða það er einfaldlega rætt. Grunar að þetta sé bara rætt hjá "eldri" pörum.

Ég er komin á þá skoðun að "ást" og "að elska" sé sitthvor hluturinn. Þú ert geðveikur þegar þú ert ástfanginn. Það er rosalega sterk tilfinning sem heltekur þig en henni fylgir ekkert öryggi. Að elska einhvern er miklu.. notalegri og dýpri tilfinning og á meira skylt við væntumþykju og kærleika en ást. Kannski hef ég bara kallað losta ást fram að þessu, ég veit það ekki.

Er að endurskilgreina margt því ég er að upplifa margt sem ég hef ekki upplifað áður og þarf að skilja hvað það er - allavega fyrir mér.

Ef við gefum okkur (en þetta er ekki gefið, sumir hjakka í sama farinu alla ævi) að fólk þroskist þá gerir það sé betur grein fyrir hvað það vill og fer í samband á allt öðrum forsendum en fólk sem er ungt og veit ekki jafn vel hvað það vill en kemst að því smám saman - sem mun síðar skera út um hvort það fer alla leið. Því sumir þroskast í sundur.

Ég er mjög rómantísk líka og mér finnst rómantískt þegar fólk er saman frá því það er ungt. smile

Nr. 2 | posted by: anna | 10.05.2008 | 19:20:27 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web