www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Can't smile.. without you
Fimmtudagur, 08. maí 2008

Það er erfitt að fara til baka í 17' þegar maður er vanur 44'.

Nei. Ég er ekki að tala um karlmenn. Ég geri mjög raunhæfar kröfur þar.

Í kvöld kom maðurinn sem bjargar mér þegar vélin mín deyr, sem hún gerir reglulega, og hann bjargaði mér, eins og hann gerir jafn reglulega. Líf mitt væri ein samfelld martröð í helvíti án hans.

Kom í ljós að vandamálið er bilaður diskur og til allrar guðslukku var það ekki kerfisdiskurinn. Ég neeeeeeeeeeeeenni ekki að setja upp vél núna það tekur svo helv langan tíma og svo er maður í mánuð að viða að sér öllum klá.. forritunum sem maður var að nota og þannig. Hver hefur tíma í svoleiðis nú þegar maður þarf að fara allt fótgangandi.

Annars fer ég ekkert fótgangandi ef ég kemst hjá því. Ég hjólaði reyndar til Evu um daginn og þegar ég steig af hjólinu átti ég verulega erfitt með gang - slagaði um eins og ég væri drukkin, sem ég var ekki. Fæturnir eins og pizzadeig.

Hvað.. ætli þetta hafi náð því að vera kílómeter?

Held ekki.

Ég er í asnalega lélegu formi en það stendur allt til bóta. Þarf að ná upp úthaldi ef ég á að geta gólað á sviði klukkutímum saman. Var að sjá skemmtidagskrá þar sem Marel bandið á að spila. Úti. Mér verður sennilega mjög kalt af því ég efast um að strákarnir samþykki að ég sé í kraftgalla.

Vélin mín er komin upp aftur og ég er farin að brosa. Bilaði diskurinn farinn með riddaranum á hvíta hestinum og hann lofaði með tíufingurupptilguðs að setja ekkert af myndunum sem hann finnur á netið..

Það eru engar myndir. Ég segi þetta alltaf þegar diskur bilar og karlmaður ætlar að reyna að ná gögnum af honum. Ég sagði honum að það væru myndir, sagði honum líka að það væru ekki myndir. Hann veit að ég var að plata, hann veit bara ekki hvor fullyrðingin er ósönn og það mun halda honum við efnið.

Sennilega er ég evil.

Ég byrjaði á að svara tölvupósti þegar ég ræsti vélina áðan. Sendi útlendingnum póst. Sagði honum að ég kem til með að vinna í allt sumar og hef ekki tíma til að hitta hann fyrr en í fyrsta lagi seinnipartinn í ágúst. Endaði póstinn á spurningu: Are you sure you want to do this? Hann var að svara mér: Yes, is the answer!

Mér finnst gott að hann virði tímarammann sem ég set, því ég hef í alvöru ekki tíma til að standa í þessu fyrr en í haust. Líklega er best ef ég stekk á hann á flugvellinum, segist elska hann útaf lífinu og hvorki geti, né langi að lifa lengur án hans.

Ef hann er alvöru karlmaður verður hann skíthræddur og fer heim með sömu vél. Hættir að tala við mig.

Ef hann gerir það ekki.. er ég í svo djúpum skít að allt Husk™ í heiminum getur ekki bjargað mér.

Kona sem er tilbúin að eignast mann, eftir margra ára bið, á ekki að vera að hitta mann sem lítur svona út.

Það er ávísun á vandræði sem allir bankar eru tilbúnir að ábyrgjast.


| anna | 23:20 |
comments

úlala.

Nr. 1 | posted by: Kristín í París | 9.05.2008 | 6:06:27 | [+] |

Þú sérð þennan disk aldrei aftur, riddarinn á hvíta hestinum er alræmdur diskaþjófur. Ég á myndir af kvikindinu að stela diskum.

Nr. 2 | posted by: Yngvi | 9.05.2008 | 10:39:59 | [+] |

Ég skal hitta hann.

Nr. 3 | posted by: Eva | 9.05.2008 | 11:53:50 | [+] |

Norður og niður með að beauty sé ekki skin deep. Ég tek þennan pretty boy any day - skin deep or not winky

Nr. 4 | posted by: sara | 9.05.2008 | 11:58:40 | [+] |

Já.. hann er nú ekki komin enn og það er langt í ágúst. Ef þið horfið á allt sem getur gerst á fimm mínútum, þá eru líkurnar á að þetta gangi eftir ekki miklar. Hann gæti fundið konu drauma sinna á morgun, og hætt við.

Ég gæti fundið mann drauma minna á morgun, og hætt við.

En þetta er maður sem ég myndi seint fá leið á að horfa á, viðurkenni það.

Ég er fjórum árum eldri og sú staðreynd virtist gleðja hann. Mér fannst það spes, spurði af hverju. Hann sagði mér að afi hans dó fyrir nokkrum árum og tveimur árum seinna ráðlagði amma hans honum að finna konu sem er aðeins eldri svo hún þurfi ekki að lifa lengi án hans eftir að hann er dáinn.

Það meikar sens.

Maðurinn er náttúrlega verkfræðingur.

Ég opnaði á þetta þegar ég hitti hann fyrst með því að spyrja hvort hann væri ekki að bíða eftir mér, þegar ég vissi að hann var ekki maðurinn sem ég var þarna til að hitta. Hann á inni closure hjá mér.

Nr. 5 | posted by: anna | 9.05.2008 | 12:55:02 | [+] |

úlala ég er sammála því

Nr. 6 | posted by: meinvill | 9.05.2008 | 13:49:18 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web