Sunnudagur, 04. maí 2008
Mér finnst sætt hvernig skítviðrið hérna virðist koma mörgum Íslendingum gjörsamlega í opna skjöldu. Ár eftir ár. Kom sumar í fyrra?
Hlýt að hafa verið sofandi þann dag.
Ég hef fyrir reglu að stilla væntingar um blíðviðri á Íslandi í umtalsvert hóf. Það þýðir ekki að mér finnist gaman að búa á landi þar sem er haust allt árið um kring. Mér finnst það boring - en - það kemur mér ekki stöðugt á óvart. Mér finnst mest skrítð að fólk trúi mér ekki þegar ég fullyrði að þetta land sé einfaldlega ekki byggilegt, nema ef ríkið myndi gera samning við 66° og fata upp alla eyjaskeggja frá fæðingu.
Af hverju nota Íslendingar bílana sína svona mikið? Það eru tvær megin ástæður.
a) Af því samgöngur hér eru glataðar
b) Af því það er of hvasst til að labba
Það er einmitt útaf þessu sem mér finnst ekkert átakanlega óhugnanleg tilhugsun að búa á meginlandi Evrópu þar sem tré vaxa og villisvín stikna á grillum í görðum fullum af sólblómum. Þar sem hægt er að fara í gönguferðir án þess að gæludýrin fjúki útá sjó.
Ég yrði sennilega hamingjusöm í fallegu húsi með garði, einhversstaðar þar sem ávextir vaxa á trjánum. Með manni sem kann að reikna. Hann er meira að segja handlaginn líka.
Það er bara þetta með helvítis þjóðernið...