Laugardagur, 10. maí 2008
Ég sendi geimstrákunum vinum mínum hjá NASA fyrirspurn í fyrra, spurði hvernig í fjandanum stæði á því að sama hvaða bíl ég fæ uppí hendurnar, klukkan í honum fer alltaf að flýta sér. Þeir hafa verið að kanna málið síðustu vikur og mánuði en rétt í þessu var strákur frá UPS að afhenda mér 329 bls skýrslu með niðurstöðum rannsóknarinnar.
Ég nenni að sjálfsögðu ekki að lesa allt draslið, þó ég hafi strax séð mörg flott orð í henni sem ég skil ekki og fæ kannski einhvern karlmann með flotta rödd til að lesa fyrir mig einhvertíma - en - ég fletti yfir á síðustu blaðsíðuna í kaflanum "Conclusion" og eins og svo oft segir lokasetningin allt sem ég þurfti að vita:
"In layman's terms: You drive too fucking fast!!"