www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Kúpling löguð í KitchenAid blender
Þriðjudagur, 20. maí 2008

Um helgina varð ég fyrir því áfalli að blenderinn minn, sem ég get ekki lifað án, dó. Eða réttara sagt kúplingin í honum. Ég var að blanda mér búst í mesta sakleysi þegar blenderinn fór að láta ófriðlega svo ég slökkti á honum. Þegar ég kveikti aftur var augljóst að hann var hættur að haga sér eins og venjulega svo ég tók könnuna af mótornum og sjá! Kúplingin var brotin á þremu stöðum.

Þar sem ég stóð fyrir framan brotna blenderinn minn áttaði ég mig á því að ég hafði þrjá kosti í stöðunni:

a) Fara að gráta og leggjast í þunglyndi
b) Kaupa nýjan blender
c) Láta laga blenderinn

Ég ákvað að hringja í Einar Farestveit sem er með umboðið fyrir KitchenAid. Þau sjúkdómsgreindu blenderinn minn á innan við tveimur mínútum og sögðu mér að kíkja með hann til þeirra og þau myndu laga hann á nó tæm. Þegar ég spurði hvað það myndi kosta mig var svarið "rúmar 1400 krónur"- sem mér finnst ekki mikið.

Þetta símtal vakti hjá mér ákveðnar væntingar um að ég myndi fá mjög snögga afgreiðslu. Þrátt fyrir það tókst þeim að fara FRAM ÚR VÆNTINGUM! Og það er ekki auðvelt í svona málum þegar ég á í hlut.

Það voru varla liðnar fimm mínútur frá því ég afhenti mótorinn í afgreiðslu þangað til ég fékk hann heilan til baka.

Ég hef fengið þær upplýsingar að sennilega eru það frosnu jarðarberin sem ég hef í bústinu sem orsökuðu þetta, þau eru svo þétt í sér. Lausnin er að setja færri útí í einu.

Eftir stendur að mér er slétt sama þó blenderinn hafi bilað, því ég er svo ánægð með hvernig var tekið á því hjá umboðinu.


| anna | 17:20 |
comments

kúplingin? ertu viss um að það hafi ekki verið blöndungurinn?

Nr. 1 | posted by: baun | 20.05.2008 | 21:17:47 | [+] |

eða fjórhjóladrifið? Ég nota það mest þegar kemur að frosti og harðindum 0

Nr. 2 | posted by: Harpa | 21.05.2008 | 1:53:54 | [+] |

hehehe

Áhugaverð viðbrögð.

Næst er ég að hugsa um að gera við þetta sjálf - því ég kem mjög sennilega til með að halda áfram að hrúga öllum jarðaberjunum útí í einu wink

http://tinyurl.com/5w95s9

Nr. 3 | posted by: anna | 21.05.2008 | 10:19:29 | [+] |

En að fá sér svona græju með sjálfskiptingu? Konur eiga oft dálítið erfitt með að læra á kúplingar.

Nr. 4 | posted by: AlanHudson | 21.05.2008 | 15:25:54 | [+] |

Kæra frænka
Það eru aðeins rétt um tveir mánuðir síðan ég fór með minn ástsæla blender í samskonar yfirhalningu sem tók aðeins um 3-4 mínútur. Trúlega hef ég farið fyrir verulega gengisbreytingu því þetta kostaði rétt rúmar 1200 kr hjá mér. Var mér líka bent á þetta með jarðaberin en þá að setja þau út í eftir að blenderinn er komin af stað en ekki með öllu hinu draslinu í byrjun! Hefur líf mitt tekið töluverðum breytingum síðan chococat

Nr. 5 | posted by: Eddið | 21.05.2008 | 23:51:41 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web