Mánudagur, 12. maí 2008
Í gær dró ég vinkonu mína á djammið af því ég veit að það er ekkert eins hressandi þegar maður er down in the dumps en að vera díva á djamminu.
Eitt af því sem við ræddum voru ímyndir sem fólk hefur byggt útfrá því sem við skrifum á bloggin okkar. Ég þori að veðja að ég sjái hana öðruvísi en fólk sem þekkir hana ekki nema af blogginu.
Hver er þessi kona?

en þessi?

þessi?

Komnar heim af djamminu og í teppi.

Mér finnst gaman að taka myndir af fólki.
Á Ölstofunni hittum við strák sem ég þekki og hann kynnti okkur fyrir fjórum vinum sínum. Ein af setningum kvöldsins var: "hey.. verðlaunum alla sem hafa styttri nöfn en fimm stafi. Hinum verður refsað."
Þegar hann sagði þetta.. það kom tár. Some girls have no luck.
Þannig leið mér allavega þegar ég vann ferð til Færeyja með Norrænu, fyrir einn - þó mér hafi líka fundist það drepfyndið.
Og mér finnst magnað að það skuli vera til fleiri en einn maður sem actually langar að fara í þessa ferð með mér.
Er að segja ykkur það, til Færeyja!
Af öllum stöðum.
Get allavega ekki sagt að ég hafi ekki unnið utanlandsferð í happdrætti. Ég verð að hafa karlmann með mér í þessa ferð, blasir við. Ég á pottþétt eftir að misstíga mig í frumskógunum þarna og fótbrjóta mig ef engin er til að passa mig..
All in all: massa skemmtilegt kvöld.