Fimmtudagur, 01. maí 2008
Aldrei hefði mig grunað að ég myndi hafa gaman af brjáluðu rokki eins og þeir í Deep Jimi and the Zep Creams spila, en einn úr hljómsveitinni bauð mér á tónleika með þeim í kvöld og ég lofaði að koma. Eitt af því sem gerir mig jafn fyrirsjáanlega og boring og raun ber vitni er að ég stend við það sem ég segi svo í kvöld fór ég á tónleikana. Reiknaði reyndar með því að endast topps þrjú lög, en þar misreiknaði ég sjálfa mig örlítið.
Massívar refsingar sem voru þarna í gangi.
Á tímabili, þegar karlmennirnir á svæðinu fóru að tjá sig með hreyfingu, fór ég að skellihlæja. Þetta eru sömu týpur og segja "karlmenn dansa ekki" - og það er hárrétt. Karlmenn hoppa um og hrista höfuðið. Mér fannst það eiginlega soldið sætt.
Djöfull skemmti ég mér vel í kvöld!
FUNK THIS SHIT YEAH!