Fimmtudagur, 29. maí 2008
Ég var að koma af veitingastað um daginn, að leita mér að leigubíl. Ákvað að fara niður á Hverfisgötu að freista gæfunnar en festi annan skóinn minn í rist við eitt húsið og gat ekki losað mig. Ég var farin úr skónum og stóð bölvandi með rassinn útí loftið eins og fáviti að bisa við að losa hinn úr helv ristinni þegar ég heyrði bíl stoppa fyrir aftan mig. Útúr bílnum steig maður sem byrjaði á að spyrja hvort það væri í lagi með mig, hann hélt að ég væri að misþyrma barni eða eitthvað, sá ekki almennilega hvað ég var að djöflast þarna. Þegar hann virtist orðinn nokkuð viss um að ég væri ekki sækó hjálpaði hann mér að losa skóinn minn. Keyrði mig meira að segja heim líka. Sætur.
Mér fannst hann hreyfa sig undarlega og á leiðinni heim sagði hann mér að hann væri með í bakinu og hafði verið hjá sjúkraþjálfara fyrr um daginn sem teipaði á honum bakið. Teipaður maður. Ég hef aldrei hitt mann sem er teipaður. Perrinn í mér sá mikla möguleika og daginn eftir fór ég strax að kaupa mér ný nærföt. Stórmerkilegt og langt síðan ég hef hitt mann sem kveikti á svona löngun hjá mér.
Við hittumst á bonafide stefnumóti daginn eftir en gerðum lítið annað en að spjalla og svona.. size each other up.
Hittumst aftur eftir hádegi í dag og klukkan 15:45 var ég að ákalla jesú og englana heima hjá honum.
Hann getur kannski ekki borið þunga hluti, en hann getur látið jörðina hreyfast.
----
Það sem stendur hér fyrir ofan er uppspuni, fyrir utan tvö atriði. Þið megið geta hvaða atriði það eru.
Síðasta færsla þjónaði hinsvegar tilgangi.
a) vinur minn heldur því fram að konur taki ekki eftir því þegar karlmenn gera svona hluti og að það turni þeim ekki on, mig langaði að vita hvort það er normið eða ekki. Niðurstöðurnar eru inconclusive.
b) ég vildi vita hvort svona færsla myndi hræða ákveðin mann, svo virðist ekki vera.
c) ég vildi sjá hvort svona nafngift á bloggi myndi hafa teljandi áhrif á hversu mikinn lestur færslan fær, þrátt fyrir hamfarir eru niðurstöðurnar alveg ótrúlegar.
d) ég vildi skilja ykkur eftir með eitthvað skemmtilegt og umdeilanlegt að lesa, aftur og aftur.
Ég er farin í vinnuna.
Kem aftur 15. ágúst.