www.anna.is
ravings of a lunatic í maí 2008
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Deep Jimi and the Zep Creams
Fimmtudagur, 01. maí 2008

Aldrei hefði mig grunað að ég myndi hafa gaman af brjáluðu rokki eins og þeir í Deep Jimi and the Zep Creams spila, en einn úr hljómsveitinni bauð mér á tónleika með þeim í kvöld og ég lofaði að koma. Eitt af því sem gerir mig jafn fyrirsjáanlega og boring og raun ber vitni er að ég stend við það sem ég segi svo í kvöld fór ég á tónleikana. Reiknaði reyndar með því að endast topps þrjú lög, en þar misreiknaði ég sjálfa mig örlítið.

Massívar refsingar sem voru þarna í gangi.

Á tímabili, þegar karlmennirnir á svæðinu fóru að tjá sig með hreyfingu, fór ég að skellihlæja. Þetta eru sömu týpur og segja "karlmenn dansa ekki" - og það er hárrétt. Karlmenn hoppa um og hrista höfuðið. Mér fannst það eiginlega soldið sætt.

Djöfull skemmti ég mér vel í kvöld!

FUNK THIS SHIT YEAH!


Auga fyrir auga - stuttmynd í Háskólabíói
Fimmtudagur, 01. maí 2008

Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að fá boðsmiða í bíó í dag. Það var verið að frumsýna stuttmynd sem heitir Auga fyrir auga og er eftir kvikmyndagerðarmann sem allir í bransanum þekkja: Árna Beintein Árnason.


Myndin fjallar um Gumma og Sindra. Gummi er hnakki sem selur dóp en Sindri er nörd með gleraugu. Árni leikur sjálfur bæði hlutverkin. Ég hef ofnæmi fyrir hnökkum en mér fannst Sindri æðislegur.

Eva þekkir kvikmyndagerðarmanninn persónulega og var svo yndisleg að bjóða mér og krökkunum að koma. Við sátum í troðfullum sal í alveg frábærri stemmingu. Á eftir var haldið í rosalega flott frumsýningarpartý í Tæknigarði.

Ég hlakka til að sjá hvað hann sendir frá sér næst, augljóst að þarna er mættur á svæðið maður sem mun láta af sér kveða á þessum vettvangi í framtíðinni, hann er bara þrettán ára í dag.

Ekkert lítið flottur strákur með svakalega stórann og hreint út sagt yndislegan persónuleika.


| anna | 17:52 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Hvað gerðist?
Föstudagur, 02. maí 2008

Panodil says: eitt sem ég hef spáð í
Panodil says: ég er nú ekki búinn að þekkja þig lengi
Panodil says: 2 ár
Panodil says: en þegar ég kynntist þér varstu ekkert að spá í menn
Panodil says: þannig lagað
Anna says: nei
Panodil says: svo komu gæludýrið fyrst og svo ljónið
Panodil says: og nú ertu að spá í að finna þér mann
Panodil says: hvað breyttist ?
Anna says: tjah.. það er nú það
Anna says: þetta er eiginlega allt ljóninu að kenna
Panodil says: nú?
Anna says: já hann gerði mig að fíkli
Panodil says: er hann ekki á leið úr landi ?
Anna says: jú
Anna says: það breytist ekkert
Anna says: ég er hinsvegar orðin háð væntumþykju núna eins og fíkill
Anna says: verð ómöguleg ég fæ hana ekki
Panodil says: þarftu þá bangsa ?
Anna says: meira en það
Anna says: og ef þetta væri t.d. bara secks væri þetta ekki vandamál
Anna says: engin kreppa þar, nóg af mönnum sem eru til þjónustu reiðubúnir
Anna says: en sennilega mun ég ekki hreyfa mig fyrr en ég finn mann sem ég vil eiga og vera brjáluð í skapinu þangað til
Anna says: guð hjálpi okkur öllum
Panodil says: smile
Panodil says: uss... þarft bara karlmann sem er ekki hræddur við fallegar konur
Panodil says: eða konur in general
Anna says: það er nú ekkert offramboð af þeim
Panodil says: nja..kannski ekki
Anna says: menn þurfa sjálfsöryggi til að vera ekki hræddir
Anna says: nenni ekki að pæla í þessu
Panodil says: ég held þú viljir nú ekki heldur hvaða mann sem er
Panodil says: held að þú gerir ákveðnar útlitskröfur
Anna says: já ég geri það
Panodil says: sem útiloka marga sem gætu að öðru leiti uppfyllt það sem þú vilt
Anna says: vissulega
Anna says: ég geri t.d. skýlausa kröfu á að maðurinn líti ekki út fyrir að búa á sambýli fyrir þroskahefta
Panodil says: hehe
Anna says: skiptir mig máli
Anna says: skiptir máli að hann sé ekki horaður eins og heróín sjúklingur
Anna says: vil ekki vaxtarræktarbuff heldur
Panodil says: humhum
Anna says: hann þarf að vera sterkur
Anna says: ég geri kröfu um það
Panodil says: hvernig ætlarðu að finna the man ?
Anna says: ég ætla ekkert að finna hann
Anna says: hann ætlar að finna mig
Panodil says: össss
Panodil says: margir til í að finna þig
Anna says: og einn daginn verður það: the man


| anna | 16:47 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Anna + karlmaður, míkrafónn og mixer
Laugardagur, 03. maí 2008

And then I go and spoil it all...

Hann hefur sagt við mig að eina fólkið sem hann þekkir sem nauðgar lögum er tónlistarfólk, en þegar hann heyrði mig syngja þetta....

..sagði hann að ég hlyti að vera búin að nauðga þessu lagi hressilega því ég kann hverja nótu.

Það er rétt.

Er ég þá tónlistarfólk?

Mér fannst Something stupid koma mjög vel út þó þetta hafi verið algjörlega spontant og hvorugt búið að æfa það. Við munum sennilega nauðga því í sitthvoru lagi næstu daga og hittast aftur mjög fljótlega..


| anna | 11:31 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Shooting the breeze
Laugardagur, 03. maí 2008

Við Hugi fórum í Kolaportið í dag, hann þurfti aðeins að slaka á eftir morðið sem hann framdi - óvart - í gær. Ég fer að setja stórt spurningamerki við alla þessa óheppni. Fyrst Ken og nú þetta. Maðurinn er stórhættulegur!

En mér finnst það eiginlega soldið kúl og hann er einn besti vinur minn og ég tek honum bara eins og hann er. Þó það gæti kostað mig lífið. Whatareyougonnado.. mér finnst gaman að lifa á brúninni.

Í Kolaportinu skoðuðum við allskonar skemmtilegt og skrítið dót, fólk og bækur. Við vorum ekki búin að skoða lengi þegar Hugi rétti mér bók sem vakti strax áhuga minn, þó orðið refsari sé klárlega rangt beygt á kápunni.

kolap3.jpg

Það hefur engum leiðst þessa nótt.

Stuttu seinna rétti ég Huga bók. Ég veit um góðan undirtitil á þessa:

kolap4.jpg

og það ískraði í mér af kæti þegar ég fann þessa hér:

kolap2.jpg

Jahá. Ánægjulegt að vita að ég er ekki sú eina sem á í erfiðleikum með skattinn, en mér finnst jafn ánægjulegt að ég er ekki það mikil dramadrottning að ég finni þörf fyrir að skrifa bók um það.

Hugi var heillaður þegar ég sýndi honum þessa:

kolap6.jpg

Sagði að ef hann skrifar einhvertíma ævisögu verður þetta eina nafnið sem kemur til greina.


"Noh!" Heyrði ég Huga hrópa upp stuttu seinna, "leikföng DAUÐANS".

kolap5.jpg

Jahá.
Svona var hann Alistair þá eftir allt saman.

Í Kolaportinu í dag átti sér stað smá kraftaverk þegar ég fann bók sem ég er búin að leita að árum saman og var búin að gefast upp á að reyna að komast yfir: Baldintáta eftir Enyd Blyton. Mér finnst það svo yndisleg bók, keypti hana auðvitað. Keypti líka aðra Fiskabók handa Dodda, en fiskar eru eitt af hans aðal áhugamálum. Ég held að þetta séu sjómennirnir þrír sem hann er skírður í höfuðið á. Þeir sofa nefnilega hjá fiskum. Það skilur allavega engin í fjölskyldunni af hverju drengurinn elskar fiska, en ég elska hann og á meðan hann elskar fiska mun ég styðja hann í þeirri ákvörðun.

Þegar hingað var komið var ég nú bara one happy camper verð ég að segja og hafði þessi Kolaportsferð farið langt fram úr væntingum, en ekki var allt búið enn. Þegar ég sá þessa bók tók ég heljarinnar stökk, þangað sem hún var, og teygði mig í hana titrandi af æsingi.

"Hugi!", kallaði ég, "sjáðu hvað ég fann! REFSING GULA SKUGGANS!"

Ég skal segja ykkur það. Og ég fann ekki bara eina, ég fann TVÆR Bob Moran bækur í dag sem ég átti ekki, Guli skugginn og Refsing Gula skuggans. Hversu heppin getur ein manneskja verið? Er búin að uppfæra Bob Moran listann minn og með hverri bók sem ég fæ í safnið styttist í að Bob Moran aðdáanda-leshópurinn verði settur á laggirnar. Ég er að safna meðlimum, komin með fjóra fyrir utan mig sjálfa. Langtímaplanið er að láta gefa allar bækurnar út í þykkri bók og stofna trúfélag þar sem Bob Moran er Guð, Jesú og allur sá pakki og Guli skugginn aðal vondikallinn.

Neinei, þetta er bara smá hugmynd.

Ég fór í bað í dag, lagðist uppí rúm og sofnaði. Dásamlegt. Dekraði við mig seinni partinn, las í bókinni "Refsing Gula skuggans", hélt bænastund, las meira.

Núna er ég að velta fyrir mér hvernig ég svara manninum sem sendi mér póst í morgun og segist ætla að heimsækja mig í sumar. Sýnist hann ætla að púlla Stephen á mig.

Þetta er auðvitað versti mögulegi tíminn.

Karlmenn.

Stórmerkilegt hvernig hann hefur a l l t a f samband ef ákveðin maður gerir það fyrst. Ef ég vissi ekki betur myndi ég halda að þeir væru einn og sami helvítis maðurinn!!

Þeir eiga reyndar afmæli á sama tíma, munar tveimur dögum.
Sennilega andlega skyldir - sem er óhugnanlegt.

Sef á þessu.


Haust
Sunnudagur, 04. maí 2008

Mér finnst sætt hvernig skítviðrið hérna virðist koma mörgum Íslendingum gjörsamlega í opna skjöldu. Ár eftir ár. Kom sumar í fyrra?

Hlýt að hafa verið sofandi þann dag.

Ég hef fyrir reglu að stilla væntingar um blíðviðri á Íslandi í umtalsvert hóf. Það þýðir ekki að mér finnist gaman að búa á landi þar sem er haust allt árið um kring. Mér finnst það boring - en - það kemur mér ekki stöðugt á óvart. Mér finnst mest skrítð að fólk trúi mér ekki þegar ég fullyrði að þetta land sé einfaldlega ekki byggilegt, nema ef ríkið myndi gera samning við 66° og fata upp alla eyjaskeggja frá fæðingu.

Af hverju nota Íslendingar bílana sína svona mikið? Það eru tvær megin ástæður.

a) Af því samgöngur hér eru glataðar
b) Af því það er of hvasst til að labba

Það er einmitt útaf þessu sem mér finnst ekkert átakanlega óhugnanleg tilhugsun að búa á meginlandi Evrópu þar sem tré vaxa og villisvín stikna á grillum í görðum fullum af sólblómum. Þar sem hægt er að fara í gönguferðir án þess að gæludýrin fjúki útá sjó.

Ég yrði sennilega hamingjusöm í fallegu húsi með garði, einhversstaðar þar sem ávextir vaxa á trjánum. Með manni sem kann að reikna. Hann er meira að segja handlaginn líka.

Það er bara þetta með helvítis þjóðernið...


| anna | 13:31 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Og þegar ég sá þennan kjöl
Sunnudagur, 04. maí 2008

Vissi ég að það var bara spurning um tíma með hvenær þetta yrði að veruleika.

kolap1.jpg

I'm outta here..


| anna | 15:45 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Tiltekt
Sunnudagur, 04. maí 2008

Ég var að átta mig á því hvað það er nákvæmlega sem mér finnst svona leiðinlegt við að taka til: ég þoli ekki að beygja mig eftir hlutum.

Þetta væri mögulega hægt að laga með því að hækka gólfið þannig að það verði í þægilegri vinnuhæð.


Poltergeist
Mánudagur, 05. maí 2008

Bjöllurnar fyrir íbúðina mína eru bilaðar, bæði niðri í andyri og frammi á stigagangi. Á föstudagskvöldið sat hjá mér maður sem veit af þessu og þegar bjallan fór skyndilega að glymja dauðbrá honum. Ég var sallaróleg. Hann spurði hvort ég ætlaði ekki að svara. Hverju, spurði ég. Það er engin að hringja á bjöllunni.

Þetta hefur gerst nokkrum sinnum. Það er nefnilega draugur sem vill kynnast mér.

Maðurinn stóð upp, svaraði í dyrasímann "halló? halló? er einhver þarna?". Næst fór hann að útidyrunum og opnaði. Það er engin, sagði hann. Ég veit. Bjallan er biluð, það er ekki hægt að hringja henni.

En á föstudagskvöldið hleypti hann einhverju inn sem átti við mig erindi. Síðan þá eru skrítnir hlutir búnir að gerast í íbúðinni, t.d. hafa fjórar perur sprungið uppúr þurru, hurðir opnast eða lokast, ísskápurinn opnast og hlutir hverfa og birtast annarsstaðar.

Í kvöld ákvað ég að kveða niður þennan draug. Ég lá uppí rúmi, ætlaði að fara snemma að sofa. Hrökk upp við að eitthvað kveikti ljósið inná baði. Ég fór og kannaði statusinn á börnunum, þau voru bæði steinsofandi. Ég slökkti og fór uppí rúm. Hrökk upp við að hurðin skelltist aftur, opnaðist og sjá! Ljós inná baði! Vúhú.

Mér stóð ekki á sama.

Halló? Ég hálf hvíslaði fyrst en svo hækkaði ég mig, halló? Er einhver hérna?

Ekkert.

Ég lokaði augunum en fann hvernig kólnaði skyndilega í herberginu og hurðin skelltist aftur. Ekkert rok úti - aldrei þessu vant.

Halló???

Ekkert.

Ég er ein hérna..

Ekkert.

..og mér er kalt..

Ekkert.

..og svo er ég óþekk líka..

Ekkert.

..djöfuls aumingi ertu

Hurðin skelltist enn einu sinni.

Ef þú vekur börnin geturðu gleymt þessu

Þá fann ég skyndilega hvernig mér kólnaði undir sænginni og fannst eins og eitthvað væri að strjúka upp lærið á mér.

B..bíddu.. bíddu, bíddu...

think fast!

Ég.. ég elska þig. Ég elska þig. Þú ert sá sem ég hef beðið eftir og mig langar að vera alltaf með þér. Alltaf. Viltu vera minn að eilífu?

Mér hitnaði aftur undir sænginni, stuttu síðar heyrði ég útidyrahurðina skellast.

Ég tók séns.. en hitti á rétt kyn og eins og mig grunaði virkar þetta eins á allt sem karlkyns er, hvort sem það hefur púls eða ekki.

Maður á að taka séns í lífinu - en.. djö. Núna er ég komin með svona "the one that got away" dæmi. Kannski hefði ég geta orðið hamingjusöm með þessum ærsladraug. Ég mun sennilega aldrei komast að því.

Hann kemur ekki hingað aftur, það er nokkuð ljóst..


| anna | 22:35 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Speglun
Þriðjudagur, 06. maí 2008

Hvað dettur þér í hug þegar þú sérð orðið

speglun

án nokkurra útskýringa en sett fram af mér.


Can't smile.. without you
Fimmtudagur, 08. maí 2008

Það er erfitt að fara til baka í 17' þegar maður er vanur 44'.

Nei. Ég er ekki að tala um karlmenn. Ég geri mjög raunhæfar kröfur þar.

Í kvöld kom maðurinn sem bjargar mér þegar vélin mín deyr, sem hún gerir reglulega, og hann bjargaði mér, eins og hann gerir jafn reglulega. Líf mitt væri ein samfelld martröð í helvíti án hans.

Kom í ljós að vandamálið er bilaður diskur og til allrar guðslukku var það ekki kerfisdiskurinn. Ég neeeeeeeeeeeeenni ekki að setja upp vél núna það tekur svo helv langan tíma og svo er maður í mánuð að viða að sér öllum klá.. forritunum sem maður var að nota og þannig. Hver hefur tíma í svoleiðis nú þegar maður þarf að fara allt fótgangandi.

Annars fer ég ekkert fótgangandi ef ég kemst hjá því. Ég hjólaði reyndar til Evu um daginn og þegar ég steig af hjólinu átti ég verulega erfitt með gang - slagaði um eins og ég væri drukkin, sem ég var ekki. Fæturnir eins og pizzadeig.

Hvað.. ætli þetta hafi náð því að vera kílómeter?

Held ekki.

Ég er í asnalega lélegu formi en það stendur allt til bóta. Þarf að ná upp úthaldi ef ég á að geta gólað á sviði klukkutímum saman. Var að sjá skemmtidagskrá þar sem Marel bandið á að spila. Úti. Mér verður sennilega mjög kalt af því ég efast um að strákarnir samþykki að ég sé í kraftgalla.

Vélin mín er komin upp aftur og ég er farin að brosa. Bilaði diskurinn farinn með riddaranum á hvíta hestinum og hann lofaði með tíufingurupptilguðs að setja ekkert af myndunum sem hann finnur á netið..

Það eru engar myndir. Ég segi þetta alltaf þegar diskur bilar og karlmaður ætlar að reyna að ná gögnum af honum. Ég sagði honum að það væru myndir, sagði honum líka að það væru ekki myndir. Hann veit að ég var að plata, hann veit bara ekki hvor fullyrðingin er ósönn og það mun halda honum við efnið.

Sennilega er ég evil.

Ég byrjaði á að svara tölvupósti þegar ég ræsti vélina áðan. Sendi útlendingnum póst. Sagði honum að ég kem til með að vinna í allt sumar og hef ekki tíma til að hitta hann fyrr en í fyrsta lagi seinnipartinn í ágúst. Endaði póstinn á spurningu: Are you sure you want to do this? Hann var að svara mér: Yes, is the answer!

Mér finnst gott að hann virði tímarammann sem ég set, því ég hef í alvöru ekki tíma til að standa í þessu fyrr en í haust. Líklega er best ef ég stekk á hann á flugvellinum, segist elska hann útaf lífinu og hvorki geti, né langi að lifa lengur án hans.

Ef hann er alvöru karlmaður verður hann skíthræddur og fer heim með sömu vél. Hættir að tala við mig.

Ef hann gerir það ekki.. er ég í svo djúpum skít að allt Husk™ í heiminum getur ekki bjargað mér.

Kona sem er tilbúin að eignast mann, eftir margra ára bið, á ekki að vera að hitta mann sem lítur svona út.

Það er ávísun á vandræði sem allir bankar eru tilbúnir að ábyrgjast.


| anna | 23:20 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Jarðarför
Föstudagur, 09. maí 2008

Ertu að gráta?
Já.

Hann kom og tók utanum mig. Ég strauk með pappír yfir andlitið.

Er ég öll útí klósettpappír í framan?
Hann leit á mig og brosti. Já.
Við hlógum örlítið en svo fór ég að gráta aftur.

The Windmills Of Your Mind

Round,
Like a circle in a spiral
Like a wheel within a wheel,
Never ending on beginning,
On an ever-spinning reel
Like a snowball down a mountain,
Or a carnival balloon
Like a carousel that's turning
Running rings around the moon
Like a clock whose hands are sweeping
Past the minutes on its face
And the world is like an apple
Spinning silently in space
Like the circles that you find
In the windmills of your mind

Like a tunnel that you follow
To a tunnel of its own
Down a hollow to a cavern
Where the sun has never shone
Like a door that keeps revolving
In a half-forgotten dream
Like the ripples from a pebble
Someone tosses in a stream.
Like a clock whose hands are sweeping
Past the minutes on its face
And the world is like an apple
Spinning silently in space
Like the circles that you find
In the windmills of your mind

Keys that jingle in your pocket
Words that jangle in your head
Why did summer go so quickly?
Was it something that I said?
Lovers walk along a shore
And leave their footprints in the sand
Was the sound of distant drumming
Just the fingers of your hand?
Pictures hanging in a hallway
or the fragment of a song,
half-remembered names and faces
but to whom do they belong?
When you knew that it was over
Were you suddenly aware
That the autumn leaves were turning
To the color of her hair?

Like a circle in a spiral
Like a wheel within a wheel
Never ending or beginning
On an ever-spinning reel
As the images unwind
Like the circles that you find
In the windmills of your mind

Ég ætla í bað.


| anna | 18:08 | permalink | comments (1) | send to facebook |
Stundum geta geitur hresst mann við
Föstudagur, 09. maí 2008

37 years ago a witch done put a spell on me
A spell where when I’m talkin’ I’m singin’ it with glee.
When you’re always singin’ you got to live alone
That’s why I made this mountain shack my home.

So when you’re on the mountain, there’s lots to be a’feared
That’s why this here old mountain goat’s prepared!

(goat yodelling)

I got horns that open bottles,
And I got horns that hold my keys,
I got horns that when you turn ‘em right, they help me watch TV.

I got horns that open pickle jars,
And horns that come with hair,
I got horns that hang my other horns -
I always come prepared.

Be prepared, be prepared,
This lesson must be shared,
This lesson must be shared,
Be prepared!

Be prepared, be prepared,
And unless you got a spare,
You got one life, so handle it with care!

Yeeeheeeee! Keep your hands and feet inside of the vehicle at all times!

(goat yodelling and more)

Ooooooh, an avalanche is comin’ and I do not feel prepared,
It’s rumblin’ like a mountain lion - I must say that I’m scared,
And if not for the witch’s spell you’d hear just how I scream,
But since I’m only singin’, I’ll just yodel ’til we’re creamed!

(goat yodelling…)

Baaaaa!


| anna | 21:39 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Það sem þarf
Laugardagur, 10. maí 2008

Male says: í sumum menningarheimum þá verður ástin til útfrá skuldbindingunni, þú býrð í landi þar sem sambönd koma og fara og allir eru búnir að sofa hjá öllum, en samt hefur fólk einhverja barnalega trú á því að næsta samband verði it
Anna says: well..
Anna says: ég er ekki búin að sofa hjá öllum
Anna says: neita að taka þátt í því dæmi
Anna says: veistu
Anna says: ég hef aldrei verið alveg 100% viss um að einhver sé réttur fyrir mig
Anna says: fyrir utan bókarann
Anna says: samt var ég ekki tilbúin til að búa með honum
Anna says: kannski af því ég þekkti hann svo lítið
Anna says: en ég get hinsvegar sagt þér hvað gerir hjónabönd möguleg og hvað þarf til svo þau heppnist
Anna says: það er nefnilega ekki ást
Anna says: það er ákvörðun

Male says: hmm
Male says: það er sennilega rétt hjá þér
Anna says: fólk tekur ekki þessa ákvörðun lengur
Anna says: því kannski, mögulega, einhvertíma..
Anna says: finnur það eitthvað betra
Anna says: og með þannig mentalítet þá útilokar þú alla þróun
Male says: einmitt
Anna says: þá ertu bara að hanga með einhverjum þangað til sambandið deyr
Anna says: því sambönd sem þróast ekki eða dýpka, þau deyja
Anna says: og þú finnur næsta aðila, en getur ekki tekið ákvörðunina af því aftur.. kannski kemur eitthvað betra næst
Anna says: uppskerð innihaldslitla endurtekningu á sama hlutnum
Anna says: aftur og aftur og aftur..
Anna says: ég var í þessum pakka sjálf áður en ég gifti mig
Anna says: mig langar ekki að gera það aftur
Anna says: mig langar í meira en það
Anna says: smile
Male says: smile
Anna says: magnað, ég þarf mann sem getur tekið ákvörðun!
Male says: hahaha
Anna says: það er ekkert fyndið, ég var að átta mig á þessu núna
Male says: smile
Male says: ég get tekið ákvörðun!
Anna says: já ekkert svona rugl
Anna says: ég ætla ekki að giftast vini mínum aftur smile
Male says: þú ert svo köld
Anna says: góði
Anna says: þú veist að ég er ekki köld
Anna says: og þó ást sé kannski ekki það sem segir til um hvort þetta heppnast eða ekki
Anna says: þá hjálpar ef hún er til staðar
Anna says: langar þig að eiga konu sem elskar þig ekki eins og kona á að elska manninn sinn?
Male says: smile
Anna says: smile
Male says: þannig að kynlíf kemur ekki til greina?
Anna says: ohhhhhhh
Anna says: þú ert svo mikill karlmaður..
Male says: helv


| anna | 14:42 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Niðurstöður komnar
Laugardagur, 10. maí 2008

Ég sendi geimstrákunum vinum mínum hjá NASA fyrirspurn í fyrra, spurði hvernig í fjandanum stæði á því að sama hvaða bíl ég fæ uppí hendurnar, klukkan í honum fer alltaf að flýta sér. Þeir hafa verið að kanna málið síðustu vikur og mánuði en rétt í þessu var strákur frá UPS að afhenda mér 329 bls skýrslu með niðurstöðum rannsóknarinnar.

Ég nenni að sjálfsögðu ekki að lesa allt draslið, þó ég hafi strax séð mörg flott orð í henni sem ég skil ekki og fæ kannski einhvern karlmann með flotta rödd til að lesa fyrir mig einhvertíma - en - ég fletti yfir á síðustu blaðsíðuna í kaflanum "Conclusion" og eins og svo oft segir lokasetningin allt sem ég þurfti að vita:

"In layman's terms: You drive too fucking fast!!"


| anna | 20:56 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Ímyndir
Mánudagur, 12. maí 2008

Í gær dró ég vinkonu mína á djammið af því ég veit að það er ekkert eins hressandi þegar maður er down in the dumps en að vera díva á djamminu.

Eitt af því sem við ræddum voru ímyndir sem fólk hefur byggt útfrá því sem við skrifum á bloggin okkar. Ég þori að veðja að ég sjái hana öðruvísi en fólk sem þekkir hana ekki nema af blogginu.

Hver er þessi kona?



en þessi?



þessi?



Komnar heim af djamminu og í teppi.



Mér finnst gaman að taka myndir af fólki.

Á Ölstofunni hittum við strák sem ég þekki og hann kynnti okkur fyrir fjórum vinum sínum. Ein af setningum kvöldsins var: "hey.. verðlaunum alla sem hafa styttri nöfn en fimm stafi. Hinum verður refsað."

Þegar hann sagði þetta.. það kom tár. Some girls have no luck.

Þannig leið mér allavega þegar ég vann ferð til Færeyja með Norrænu, fyrir einn - þó mér hafi líka fundist það drepfyndið.

Og mér finnst magnað að það skuli vera til fleiri en einn maður sem actually langar að fara í þessa ferð með mér.

Er að segja ykkur það, til Færeyja!

Af öllum stöðum.

Get allavega ekki sagt að ég hafi ekki unnið utanlandsferð í happdrætti. Ég verð að hafa karlmann með mér í þessa ferð, blasir við. Ég á pottþétt eftir að misstíga mig í frumskógunum þarna og fótbrjóta mig ef engin er til að passa mig..

All in all: massa skemmtilegt kvöld.


Óvænt uppákoma
Þriðjudagur, 13. maí 2008

Um helgina sniffaði ég karlmann. Í dag er ég búin að sniffa túss og rósir.
Kvöldið er ungt.


blomathridjudegi.jpg

Oh það er svo æðislegt að fá blóm þegar maður á ekki von á því.

Fyrr í kvöld:

Blóm? Ha? Fæ ég blóm? Í ALVÖRU?
---

Komin heim:

ÉG FÉKK BLÓM, ÉG FÉKK BLÓM, ÉG FÉKK BLÓM!

VÍÍÍÍÍÍÍÍÍ


| anna | 20:43 | permalink | comments (3) | send to facebook |
You got it - in English
Föstudagur, 16. maí 2008

We were sitting in a hotel bar, discussing men, work, life and everything in between.

She thought I was a Scorpio, because she knows a lot of Scorpios and said I remind her of them. I told her I was a Virgo.

Nooooo.
But I'm a rising Scorpio.
Yes! Ohh that makes so much sense! You are so passionate.

You know, if I fall for something on sight, I never get tired of it.
Oh yes! That's the Scorpio. And you will never get tired of things you fall in love with right away.
I know, it's weird, because I get bored with most things very quickly.

You should go find a man Anna. You need sex - at least twice a week. That's healthy.
Nah.. it would be too much work for me to hook up with someone twice a week.
Would it?
Well.. not really if it was just the sex I was after. I could go to a bar, sit down and when a man starts a conversation I could ask him to have sex with me.
And he would say yes.
He probably would.

We both laughed.

But here's the catch.. I'm not interested in having sex with men that I'm not attracted to and I rarely meet men that have that affect on me.
That's the Scorpio again, you need to feel passionate about men or your not interested at all. You just need the right kind of man.

Later that night the waiter came over and gave us a small Icelandic flag. He didn't know I was Icelandic because we had been speaking English. He smiled and said the flag was a souvenir.

See Anna! You did it to him too!
What did I do?
I don't know what you do, but you did it. Did you see how he looked at you? You got it Anna.
I'm not doing it deliberately.
That's exactly it, you don't have to do it deliberately, you just got it. And I don't know how you do it, you just do. I think it's because you're so feminine.
I feel a little embarrassed.
Don't be, you just got it! They react to you!
Yes but then some fear me.
Those men don't have the balls. You need a strong man Anna. A smart, sexy and strong man. That would match you perfectly.
Smart, sexy and strong.
Yes. That is the man for you.

I think she's might be spot on.


Myndir á leiðinni
Föstudagur, 16. maí 2008

Ingo says: jæja
Ingo says: hvernig var það
Ingo says: ætlaðir þú ekki að koma aftur í myndatöku?
Anna says: jú
Ingo says: á þessari öld?
Anna says: get komið í kvöld ef þú vilt
Ingo says: flott
Ingo says: kl?
Anna says: ég er að bíða eftir go-ahead með að henda smá í loftið
Anna says: þegar ég er búin að senda er ég laus
Anna says: örugglega fyrir átta
Anna says: díll?
Ingo says: díll
Anna says: kúl


| anna | 19:41 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Myndir
Föstudagur, 16. maí 2008

Ég var að koma heim úr ljósmyndasessioni sem byrjaði rúmlega átta. Hann lennti í smá basli með lýsinguna svo ég endaði útí gluggakistu og hann notaði ljósið úti.

Mér finnst þær myndir flottastar.

RR0Z4169.jpg



RR0Z4167.jpg



RR0Z4158.jpg



RR0Z4174.jpg



RR0Z4249.jpg

Og ég sem hélt að dagsbirta færi mér illa..

Það komu nokkrar mjög góðar útúr upplýstu myndunum líka, hér er ein.

RR0Z4040.jpg

Ég er rosalega ánægð með þessa klippingu líka.


Aldrei tekin
Sunnudagur, 18. maí 2008

Í kvöld, eða.. nótt, var ég að keyra úr stæði í miðbænum þegar lögreglubíll læddist upp að mér. Ég skrúfaði niður rúðuna og við mér blasti mjög refsilegur karlmaður með fallegt prakkara bros. Hann spurði hvort ég væri að leggja eða fara. Ég sagði honum að ég væri að fara og spurði hvort honum sýndist þetta ekki ganga ágætlega hjá mér. Honum sýndist það. Þá spurði hann hvort "það væri í lagi með ökumanninn" og ég spurði hvort hann vildi kannski láta mig blása.

Gott að ég spurði hann ekki á ensku, það hefði geta misskilist.

Nei honum fannst óþarfi að láta mig blása - demit, ég hef aldrei gert þannig áður - og hann virtist meta mig í lagi. Ég velti fyrir mér hvað ég þarf eiginlega að gera til að vera tekin af lögreglunni. Þarna var ég, klárlega að koma af e.k. skemmtun, það leyndi sér ekkert, og hann bara treysti því að ég væri allsgáð og "í lagi". Sem ég er alls ekki, ég er búin að vera mjög óþekk stelpa, þarf að taka út mína refsingu!

Ég keyrði af stað nema ég mætti þeim í næstu götu. Skaut á þá háu ljósunum og þeir stoppuðu.

Hann brosti. Aftur?
Aftur, ég og brosti til baka.
Við verðum að hætta að hittast svona, sagði ég áður en ég keyrði í burtu.

Ákvað að taka einn hring í bænum áður en ég færi heim til að leita að Mustang til að berja augum fyrir fyrirliggjandi bænastund og þegar ég mætti löggubílnum í þriðja skipti langaði mig að gefa honum háu ljósin aftur. Spyrja: "Hvað þarf ég eiginlega að gera til að þú takir mig?"

En ég gerði það ekki. Hvar er druslan í mér þegar ég þarf á henni að halda?

Þegar ég var hjá ljósmyndaranum bað hann mig að setja upp allskonar svipi fyrir sig. Bað mig að vera Maríu mey, hissa, leiða, undrandi, reiða og hitt og þetta, en hann bað mig aldrei að setja upp daðurdræsu svip. Ég spurði hvort hann vildi ekki að ég setti upp einhvern slut svip og þá fór hann að hlæja. Sagði að það færi mér ekki, það væri of mikill klassi yfir mér. Ég reyndi samt en hann fór bara að hlæja að mér.

Glatað.

Djöfull var þetta flottur maður. Og með handjárn.

Jesús..


Start spreading the news..
Mánudagur, 19. maí 2008

15052008168.jpg

I'm leaving today
I want to be a part of it New York, New York

These vagabond shoes, are longing to stray
Right through the very heart of it
New York, New York

I wanna wake up in a city that doesn't sleep
And find I'm king of the hill
Top of the heap

These little town blues, are melting a way
I'll make a brand-new start of it
In old New York

If I can make it there, I'll make it anywhere
It's up to you
New York, New York

I want to wake up in a city that never sleeps
And find I'm a number one, top of the list
King of the hill, a number one

Theeeeeeeeeeeese little town blues
Are melting a way
I'm gonna make a brand-new start of it
In old New York

Aaaaaaaand... if I can make it there, I'm gonna make it.. anywhere
It's up to you
New York, New York


17052008180.jpg

Alltaf gaman að fá póstkort frá NY, þó þau séu í tölvupósti.


| anna | 11:25 | permalink | comments (0) | send to facebook |
As you wish..
Mánudagur, 19. maí 2008


| anna | 19:27 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Kúpling löguð í KitchenAid blender
Þriðjudagur, 20. maí 2008

Um helgina varð ég fyrir því áfalli að blenderinn minn, sem ég get ekki lifað án, dó. Eða réttara sagt kúplingin í honum. Ég var að blanda mér búst í mesta sakleysi þegar blenderinn fór að láta ófriðlega svo ég slökkti á honum. Þegar ég kveikti aftur var augljóst að hann var hættur að haga sér eins og venjulega svo ég tók könnuna af mótornum og sjá! Kúplingin var brotin á þremu stöðum.

Þar sem ég stóð fyrir framan brotna blenderinn minn áttaði ég mig á því að ég hafði þrjá kosti í stöðunni:

a) Fara að gráta og leggjast í þunglyndi
b) Kaupa nýjan blender
c) Láta laga blenderinn

Ég ákvað að hringja í Einar Farestveit sem er með umboðið fyrir KitchenAid. Þau sjúkdómsgreindu blenderinn minn á innan við tveimur mínútum og sögðu mér að kíkja með hann til þeirra og þau myndu laga hann á nó tæm. Þegar ég spurði hvað það myndi kosta mig var svarið "rúmar 1400 krónur"- sem mér finnst ekki mikið.

Þetta símtal vakti hjá mér ákveðnar væntingar um að ég myndi fá mjög snögga afgreiðslu. Þrátt fyrir það tókst þeim að fara FRAM ÚR VÆNTINGUM! Og það er ekki auðvelt í svona málum þegar ég á í hlut.

Það voru varla liðnar fimm mínútur frá því ég afhenti mótorinn í afgreiðslu þangað til ég fékk hann heilan til baka.

Ég hef fengið þær upplýsingar að sennilega eru það frosnu jarðarberin sem ég hef í bústinu sem orsökuðu þetta, þau eru svo þétt í sér. Lausnin er að setja færri útí í einu.

Eftir stendur að mér er slétt sama þó blenderinn hafi bilað, því ég er svo ánægð með hvernig var tekið á því hjá umboðinu.


| anna | 17:20 | permalink | comments (5) | send to facebook |
You talkin' to me?
Miðvikudagur, 21. maí 2008

RR0Z4055222.jpg


| anna | 18:15 | permalink | comments (0) | send to facebook |
The dark side
Miðvikudagur, 21. maí 2008

Af því hann lenti í vandræðum með ljósin kom stundum ekki flass og þá urðu myndirnar mjög dökkar og frekra grófar. Sumar koma reyndar bara kúl út þannig og sumar er hægt að laga töluvert.

RR0Z4263333.jpg

Mér finnst þessi mynd kúl, þetta er dreymna Anna.

RR0Z4238.jpg

Veit ekki hvaða Anna þetta er, sennilega generally annoyed Anna.

RR0Z4279.jpg


| anna | 22:25 | permalink | comments (6) | send to facebook |
Sápukúlur
Miðvikudagur, 21. maí 2008

Í kvöld ætlaði ég að mæta á golfnámskeið en fann ekki hina þáttakendurna svo ég fór til vinkonu minnar í staðinn. Á leiðinni kom ég við á bensínstöð og keypti sápukúlur handa okkur af því ég var smá blá og langaði að hressa mig við.

Og sápukúlur gleðja mig. Það vekur barnið í mér að sjá himininn fullan af þeim flúgandi útum allt en svo finnst mér líka svo gaman hvað þær gleðja annað fólk. Vinkona mín spurði mig hvort við værum orðnar svo gamlar að við værum hættar að sjá nýja hluti í heiminum - eins og þegar maður var barn og sá sápukúlur í fyrsta skipti. Ég held að maður verði aldrei of gamall til að sjá eitthvað nýtt í heiminum. Benti henni á að allt fólkið sem hafði gengið framhjá eða keyrt, það brosti til okkar einmitt af því það hefur sennilega aldrei séð tvær konur blása sápukúlur útá tröppum áður útaf engu. Hún fór að hlæja.

En þetta er alveg satt og sápukúlur eru bara skemmtilegar - prufiði bara!


| anna | 23:50 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Kemstu til Amsterdam á mánudaginn?
Föstudagur, 23. maí 2008

Já.

Vill svo skemmtilega til að krakkarnir eru alltaf hjá pabba sínum mánudaga eftir að þau eru hjá mér, og þar sem ég kem aftur heim á þriðjudaginn þarf ég ekki einu sinni að díla við pössun.

Um helgina ætla ég hinsvegar að fara í ræktina og ég var, rétt í þessu, að rigga upp smá Eurovision-grill-partíi með fólki sem á það sameiginlegt að þola illa Eurovision.

Djöfull verður massa gaman.


| anna | 12:19 | permalink | comments (1) | send to facebook |
Síðasta myndin
Laugardagur, 24. maí 2008

"as shot"

RR0Z4296-2.jpg

eftir smá filteraleik

RR0Z42966.jpg

Af þessum myndum sem teknar voru af mér um daginn eru margar ótrúlega góðar. Venjulega þarf að taka 100 myndir til að ná einni góðri. Þetta er samt sú síðasta sem ég kem til með að birta úr þessu sessioni þó það séu fleiri rúmlega birtingarhæfar. Hann vill að ég komi aftur eftir mánuð og ég ætla að reyna að standa við það í þetta skipti, sjáum hvað gerist þá.

Ég treysti þessum ljósmyndara, sem gæti mögulega skýrt hlutfall góðra mynda. Hlutfall góðra mynda þegar ég tek sjálf myndina, eða sonur minn er mjög hátt þó þær séu aldrei allar góðar, en venjulega er mér meinilla við að fólk taki myndir af mér, ég verð svo meðvituð og lengi frameftir gat ég ekki verið eins og manneskja ef einhver tók upp myndavél. Ég fór að gretta mig eða ranghvolfa í mér augunum. Þetta breyttist ekki fyrr en eftir að mér var sagt frá ljósmyndabrosinu fræga - finn samt ekki staðinn þar sem ég sagði frá því á síðunni svo ég segi kannski bara frá því aftur seinna. Í öllum tilvikum þegar ég hef tekið myndir af fólki og kennt þeim ljósmyndabrosið virkar það. Alveg magnað, af hverju er þetta ekki kennt í skólum?

Helgin verður þétt. Cosmopolitan partí í kvöld, þarf að útbúa kynningu fyrir mánudaginn og finna lausn fyrir annað verkefni og kynna hana í ferðinni. Þegar ég er komin heim aftur er ég að fara að hitta konu sem ég er loksins að fá tækifæri til að vinna með.


| anna | 10:58 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Anna eyðir óvissunni!
Laugardagur, 24. maí 2008

Eftir jafna og spennandi keppni er ljóst að Ísland er í fjórtánda sæti í Eurovision! Vúhú!

Þetta þýðir að ég þarf ekki að fara úr fötunum og hoppa niður af svölunum, en ég hafði gefið út yfirlýsingu fyrr í kvöld að það yrðu mín fyrstu viðbrögð ef Íslendingar myndu vinna.

Það var Cosmo kvöld í kvöld og ég fór að sjálfsögðu alla leið með það mál, sykurrönd og regnhlíf til að verja drykkinn íslensku sólinni. Var meira að segja með kokteilber sem akkeri til að regnhlífin tækist ekki á loft - varúðarráðstafanir sem margborguðu sig þegar við fórum út á svalir að grilla.

pikusafi.jpg
Lengst til vinstri er glasið hans Dodda með plain appelsíni og lengst til hægri er virgin cosmopolitan sér útbúin fyrir frumburðinn.


Cosmopolitan er STERKUR KOKTEILL, shit. Þessar píur í sex and the city eru klárlega með rammgerða lifur. Þannig að ég bjó til úgáfu af honum sem er aðeins mildari til að við myndum ekki öll drepast áfengisdauða fyrir klukkan hálf sjö. Þeim fannst sú útgáfa miklu betri og ég ákvað að skíra drykkinn sem ég bjó til Cosmopolite.

brieandhoney.jpg

Eftir grillið fengum við okkur brie með hunangi.

Gaddem hvað það er hryllilega gott!


| anna | 23:18 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Hefurðu heyrt Desperato með Eagles?
Sunnudagur, 25. maí 2008

Desperado
Why don't you come to your senses
You been out riding fences for so long now
Oh, you're a hard one
And I know that you've got your reasons
These things that are pleasing you
Can hurt you somehow

Don't you draw the queen of diamonds, boy
She'll beat you if she's able
You know the queen of heats is always your best bet

Now it seems to me, some fine things
Have been laid upon your table
But you only want the ones that you can't get

Desperado
Oh, you ain't getting no younger
Your pain and your hunger, they're driving you home
And freedom, oh freedom
Well, thats just some people talking
Your prison is walking through this world all alone

Don't your feet get cold in the winter time
The sky won't snow and the sun won't shine
Its hard to tell the night time from the day
You're loosing all your highs and lows
Ain't it funny how the feeling goes away

Desperado
Why don't you come to your senses
Come down from your fences, open the gate
It may be raining, but theres a rainbow above you
You better let somebody love you

You better let somebody love you
Before it's too late

---

Já. Ég söng það einu sinni í söngvakeppni - og vann.
Af hverju kemur það mér ekki á óvart.
Ég veit það ekki, af hverju?
Af því þetta lag ert þú.

Ókey. Þú kemst upp með að segja þetta við mig án þess að ég slái þig utanundir, af því þú ert vinur minn. Ég valdi the queen of hearts. Tvisvar.
Tapaði í bæði skiptin.
---

Desperato - Eagles


Anything is possible
Mánudagur, 26. maí 2008

Stundum gerist svo margt á einum degi að ég gæti ekki skrifað um það án þess að hjóma sækó. Í dag var ég keyrð í gegnum skóg uppað sveitasetri þar sem ég mun halda til í nótt.

Í smá stund leið mér eins og ég væri prinsessa í ævintýri og nú veit ég að tilfinningin sem ég fæ við að horfa á skóg á mynd, hún er eins í raunveruleikanum nema sterkari af því ég er með lykt og hljóð líka.

Mér finnst samt skrítið að hún er ekkert mikið sterkari, en það breytist kannski í fyrramálið. ætla í smá gönguferð í skóginum áður en ég fer í vinnuna.

Ég hlakka til.


| anna | 23:32 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Skál
Þriðjudagur, 27. maí 2008

Klyfjuð áfengi datt ég innum útidyrahurðina heima hjá mér rétt áðan. Ég er svo skilyrt, að þegar ég fer í gegnum fríhöfnina með manneskju sem ætlar ekki að kaupa tollinn.. meina.. fólk kaupir tollinn. Annað raskar ró alheimsins, svo ég kom heim með tvöfaldan toll.

Ég hélt að ég myndi koma heim seint og um síðir í kvöld en fyrst ég er komin, og börnin heima hjá pabba sínum, ætla ég að fara í laaangt, heitt bað og deeeekra við mig.

Ójá. Já. ahhhhh yes.


| anna | 19:51 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Steak and bj day
Miðvikudagur, 28. maí 2008

Ég var að tala við vinkonu mína um daginn og talið barst að karlmönnum sem eru duglegir að "gera" hluti - eins og t.d. flísaleggja, bora upp hillur, laga bilaða vatnskassa og bera þunga hluti. Laga hluti sem hafa farið í taugarnar á okkur lengi.

Ég sagði henni að ef ég ætti mann sem eyddi heilum degi í að t.d. laga til í bílskúrnum, lyfta þungum hlutum og fara með drasl í sorpu - þá væri steik and bj dagur þann daginn. JÁ! hrópaði hún EINMITT! Við ræddum um hvað karlmenn væru vitlausir að fatta þetta ekki. Af hverju eru karlmenn t.d. ekki duglegri að vera berir að ofan þegar þeir vinna erfiðisvinnu? Makes no sense to me..

Í kvöld var ég að tala við vin minn sem segir að sennilega höfum við hvorugar átt nógu liðlegan mann, sumar konur tækju þetta bara for granted og þeir menn fengju aldrei nein verðlaun eftir svona dag.

Það turnar mér on að sjá menn lyfta þungum hlutum og svitna á meðan þeir eru að því. Það turnar mér ennþá meira on ef viðkomandi er að gera það af því hann veit að það mun gleðja mig. Þannig maður á skilið verulegt treat og þannig maður fær treat. Andskotinn hafi það.. gott ef ég myndi ekki klæða mig í háu hórustígvélin mín líka og strippa fyrir hann, ef ég er í stuði.

Nú kalla ég eftir viðbrögðum frá báðum kynjum. Mig langar að vita hvort ég og vinkona mín erum einu konurnar á jörðinni sem kunnum að meta þetta í fari karlmanna eða hvort við höfum bara aldrei átt nógu liðlega kærasta til að drepa þetta niður í okkur. Verið heiðarlegar konur, turnar þetta ykkur on? Verða þeir varir við það?

Karlmenn, er verið að verðlauna ykkur fyrir að bera þunga hluti?
-----
Eitt þarf ég að taka fram. Það sem karlmaðurinn gerir í framkvæmdarkastinu þarf að vera vel gert til að hann sé verðlaunaður.

Ef þú vilt vita af hverju þú þarft að gera þetta vel.. answer me this: hvað er varið í að fá bj ef engin er að leggja sig fram við að gefa það? Gerir það jafnvel með hangandi hendi, andvörpum og gubbar svo í lokin.

M.ö.o. ef þú ruslar upp grindverki sem er við það að hrynja.. ekki búast við flugeldasýningu.


15:45
Fimmtudagur, 29. maí 2008

Ég var að koma af veitingastað um daginn, að leita mér að leigubíl. Ákvað að fara niður á Hverfisgötu að freista gæfunnar en festi annan skóinn minn í rist við eitt húsið og gat ekki losað mig. Ég var farin úr skónum og stóð bölvandi með rassinn útí loftið eins og fáviti að bisa við að losa hinn úr helv ristinni þegar ég heyrði bíl stoppa fyrir aftan mig. Útúr bílnum steig maður sem byrjaði á að spyrja hvort það væri í lagi með mig, hann hélt að ég væri að misþyrma barni eða eitthvað, sá ekki almennilega hvað ég var að djöflast þarna. Þegar hann virtist orðinn nokkuð viss um að ég væri ekki sækó hjálpaði hann mér að losa skóinn minn. Keyrði mig meira að segja heim líka. Sætur.

Mér fannst hann hreyfa sig undarlega og á leiðinni heim sagði hann mér að hann væri með í bakinu og hafði verið hjá sjúkraþjálfara fyrr um daginn sem teipaði á honum bakið. Teipaður maður. Ég hef aldrei hitt mann sem er teipaður. Perrinn í mér sá mikla möguleika og daginn eftir fór ég strax að kaupa mér ný nærföt. Stórmerkilegt og langt síðan ég hef hitt mann sem kveikti á svona löngun hjá mér.

Við hittumst á bonafide stefnumóti daginn eftir en gerðum lítið annað en að spjalla og svona.. size each other up.

Hittumst aftur eftir hádegi í dag og klukkan 15:45 var ég að ákalla jesú og englana heima hjá honum.

Hann getur kannski ekki borið þunga hluti, en hann getur látið jörðina hreyfast.
----

Það sem stendur hér fyrir ofan er uppspuni, fyrir utan tvö atriði. Þið megið geta hvaða atriði það eru.

Síðasta færsla þjónaði hinsvegar tilgangi.

a) vinur minn heldur því fram að konur taki ekki eftir því þegar karlmenn gera svona hluti og að það turni þeim ekki on, mig langaði að vita hvort það er normið eða ekki. Niðurstöðurnar eru inconclusive.
b) ég vildi vita hvort svona færsla myndi hræða ákveðin mann, svo virðist ekki vera.
c) ég vildi sjá hvort svona nafngift á bloggi myndi hafa teljandi áhrif á hversu mikinn lestur færslan fær, þrátt fyrir hamfarir eru niðurstöðurnar alveg ótrúlegar.
d) ég vildi skilja ykkur eftir með eitthvað skemmtilegt og umdeilanlegt að lesa, aftur og aftur.

Ég er farin í vinnuna.

Kem aftur 15. ágúst.


| anna | 23:38 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Tveir heimar
Laugardagur, 31. maí 2008

Anna: þú veist að þú ert geimvera
Hann: ha?
Anna: við erum það öll

Hann horfði spyrjandi á mig

Anna: við búum á jörðinni, og hún er í geimnum
Hann: já
Anna: erum við þá ekki jafn miklar geimverur og þeir sem búa á öðrum hnöttum?
Hann: ehm.. jú ætli það ekki

þögn

Anna: ertu í sjokki ?
Hann hló aðeins

þögn

Anna: ég er sennilega meiri geimvera en þú
Hann: ég held að það sé ljóst
Anna: fyndist þér rugl ef ég myndi krefjast þess að vera kynnt þannig?
Hann fór að skellihlæja
--

Ég myndi auðvitað ekki fara fram á að vera kynnt sem geimvera, enda er það ekki mitt aðalstarf, en mér finnst það fyndið.

Við erum svo ólík að þó við séum bæði geimverur tilheyrum við sennilega sitthvoru sólkerfinu. Myndum gera hvort annað geðveikt á mjög stuttum tíma.

Við eigum það hvorugt skilið.


| anna | 13:35 | permalink | comments (0) | send to facebook |

ravings í maí 2008
monthly archive

links
blogs
links - web