Sunnudagur, 30. mars 2008
Tveir menn sem ég þekki hafa stungið uppá því að ég finni mér giftan mann og steli honum (báðir giftir). Ég hef bara engan áhuga á því. Held að menn sem fara frá konunni og börnunum fyrir aðra konu séu ekki mjög eigulegir.
Ég þarf annað.
Ég er í skrítnu skapi.
Var að tala við mann á msn og á einum stað fraus ég í smá stund eftir að hafa lesið það sem hann sendi. Ég fékk sting í magann og svona.. weird. Óþægilegt. Veit hvað ég þarf að gera, en mig langar ekkert átakanlega til að gera það.
Þessu ótengt er ég aðeins að skoða hvert ég er að fara með sjálfa mig. Nokkrir hlutir sem ég er ekki sátt við og ætla að breyta.
Þarf t.d. að endurskoða forgangsröðunina hjá mér.
Það er mannskemmandi að vita hvað er að, en velja að gera ekkert í því. Ég þarf annaðhvort að herða mig í afneituninni.. eða drullast til að gera það sem ég þarf að gera.
Og þegar ég skrifa þetta rennur upp fyrir mér að ég er búin að ákveða að gera.. the later.