Laugardagur, 22. mars 2008
Anna says: ég var að komast að því að menn halda að ég vilji bara jude law
Anna says: eða einhverja ógeðslega ríka menn
Doom says: lol
Doom says: sem er hálfur sannleikurinn
Anna says: ha
Doom says:
Anna says: hvort heldur þú að ég vilji?
Anna says: jude law
Anna says: eða ríka menn
Doom says: ríka menn
Doom says: ekki spurning
Anna says: kommon
Anna says: neits
Doom says: júts
Anna says: ÞETTA ER EKKI RÉTT HJÁ ÞÉR
Doom says: OJÚVÍST
Anna says: NEITS
Doom says: JÚTS
Doom says: VÍSTJÚTS
Anna says: NEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEITS
Doom says: JÚTSSINNUM100ALLTAFHÆRRINÞÚ
Augljóslega tapaði ég þessu argumenti. Hann er alltaf að hanka mig á svona 100sinnumhærrienþú dóti sem ekki nokkurt andsvar er til við - en þetta er náttúrlega bara RUGL í dómsdagsdrengnum. Mig langar auðvitað ekki að finna einhvern aumingja sem er á bótum, en það er ekki skylda að hann sé ríkur heldur. Og Jude Law? Kommon.
Í gær rifjaðist hinsvegar svolítið upp fyrir mér. Stephen sagði einu sinni við mig að ég væri eins og Penelope af því ég vísa öllum vonbiðlum í burtu. Hann sagði að ég ætti að hætta að fara á stefnumót og bíða bara eftir að Ódysseifur kæmi heim - það væri bara einn þannig maður hvort sem er.
Þetta er ekki gallalaust plan. Fyrir það fyrsta veit ég ekki hvort Ódysseifur er til, þekki hann ekki í sjón - og ef ég gef mér að hann sé til ætla ég rétt að vona að hann noti nútíma samgöngur!
Þrátt fyrir galla, þá er þetta samt skársta plan sem ég hef..
With that in mind, fór ég á myndaleit google til að komast að því hvernig Ódysseifur lítur út. Ég fann fullt af málverkum og styttum, en svo fann ég..

Ok, ég fór allavega að hlæja..