Sunnudagur, 02. mars 2008

Þegar Stephen komst að því að við erum ekki með her spurði hann hvað við myndum gera ef einhver réðist inní landið.
Ég sagði honum eins og satt er: ekki neitt.
Sagði að Íslendingar væru laid back þjóð og á meðan svona hernám hefði engin áhrif á hvernig við lifum þá væri sennilega öllum sama um hver þættist eiga landið. Stephen ákvað í kjölfarið að "invade Iceland".
Með þessu fyrirkomulagi skipti engu þó ég vissi ekki hvað neitt væri kallað, með mér var maður sem hafði ráðist inní landið og bjó til öll örnefni sjálfur.
Vá hvað mér finnst hot þegar menn ráðast svona inní lönd og eigna sér þau. Það er eitthvað svo.. primal.
Þetta er sumsé vitinn James. Hann er á landinu.
Fannst rétt að láta ykkur vita af þessu.
Hefur einhver eitthvað við þetta að athuga?
Er einhver svona "upp með heygafflana" stemming í gangi?
Ha?
Nah.. ég hélt ekki.