Mánudagur, 03. mars 2008
Á sunnudagsmorguninn þegar hann vaknaði kom hann frammúr og settist hinumegin í sófann þar sem ég sat.
Við sátum þar þegjandi í smá stund, vorum ennþá hálf sofandi, og hann skoðaði það sem fyrir augum bar í íbúðinni. Hann sagði að honum fyndist íbúðin mín vinaleg, svo spurði hann "What kind of plant is this?" og benti á plöntu í stofunni.
Ég sagði honum hvað plantan heitir, hvaða fjölskyldu hún tilheyrir, hvar hún vex í heiminum og hvernig (hún vefur sig utanum stór tré í flestum tilfellum). Ég sagði honum hvaða afbrigði eru algeng í blómabúðum, hvenær plantan blómstrar, hvernig blómin lykta og líta út og svo sagði ég honum frá skrítna vísindamanninum sem ég fann á Internetinu fyrir fimm árum sem er búinn að gera að ævistarfi sínu að safna afbrigðum af þessari plöntu sem hann ræktar í risastóru gróðurhúsi á Hawaii - sem mig dreymir um að heimsækja einn daginn því hann selur afleggjara af plöntunum á slikk og mig langar að eiga í nokkur sjaldgæf afbrigði. Þetta er mjög hress náungi, ég hef tvisvar talað við hann í síma. Ég endaði á að segja honum að mig dreymir um að eiga lítið gróðurhús þegar ég er orðin gömul þar sem ég get ræktað mismunandi afbrigði af nákvæmlega þessari plöntu.
Stephen: "Wow. Clearly, I have been asking the wrong questions!"