Þriðjudagur, 04. mars 2008
Mig langar að þakka þeim sem sendu mér tillögur varðandi hvert ég ætti að fara með Stephen. Kærar, kærar þakkir öll - og ég mun mjög sennilega nota þessar upplýsingar seinna á ferðum mínum um landið þar sem Stephen verður sennilega ekki síðasti erlendi "lesandinn" sem kemur að heimsækja mig - og þó hann verði sá síðasti, sagði hann áðan að hann yrði lengur næst þegar hann kemur.. svo ég mun sennilega að sýna honum eitthvað meira af landinu þá.
Þetta endar í tómu rugli, blasir við.
Verð að viðurkenna að þessi heimsókn hefur vakið athygli mína á ákveðnum.. takmörkunum hjá mér á þessu tiltekna sviði, og þar sem ég hef reglulegar hægðir og einu sinni á dag gæti ég alveg komið öðru taski á "to do" listann fyrir árið: læra eitthvað um Ísland.
Eitt fjall, einn foss og eitt landslag á ári.
Nei ég sé strax að það er rugl. Eitt í einu. Eitt fjall í ár, foss á næsta ári, landslag árið þar á eftir. Maður á að setja sér raunhæf markmið í lífinu og ég þarf að stunda vinnu með þessu.
Eitt af því minnisstæðasta úr þessari ferð er nú samt sem áður ekki landslag, heldur lógó Húsasmiðjunnar.
Svona getur þetta verið. Stephen tók strax eftir þessu lógói í Hafnarfirðinum, fílar fontinn og finnst þetta catchy lógó. Spurði mig hvernig orðið er borið fram og ég sagði "Húsasmiðjan".
Honum fannst það fyndið og sagði að þetta hljómaði eins og hálfgert skammaryrði. Húsasmiðjan! -sagði hann í tíma og ótíma, húsasmiðjan! húsasmiðjan! ef hann var að skamma mig fyrir að vita ekkert um Ísland.
Þetta veitti mér ómælda gleði og ánægju - sérstaklega þegar hann lét ANNA! fylgja með. HÚSASMIÐJAN! ANNA! HÚSASMIÐJAN!
Það er svo auðvelt að gera mér til hæfis, en samt.. ekki. Þarf að gera það rétt.
Hann toppaði þetta á sunnudeginum þegar hann fór að syngja á leiðinni útá flugvöll..
Húsasmiðjan, húsa, húsa, húsasmiðjan
húsa, húsa, húsasmiðjan
húsa, húsa, húsasmiðjan
húsa, húsa, húsasmiðjan
I can't stop this feeling..
(Hooked on a feeling úr Reservoir Dogs)
Þetta er sennilega ekkert fyndið nema heyra hann syngja þetta.
Þegar ég fæ sms þessa dagana segir síminn minn:
HÚSASMIÐJAN! GO TO BED! HÚSASMIÐJAN!
---
Be advised. Using the song "Hooked on a feeling" in advertising for the Icelandic hardware store Húsasmiðjan is an original idea of Stephen Stewart. His law firm will claim royalties should the song be used in any advertising campaigns for this company.