www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Al Gore
Miðvikudagur, 12. mars 2008

Þarna er hann Al Gore, vinur minn og fyrrverandi elskhugi (í flokknum "mistök"), á skrifstofunni sinni að skoða síðuna mína, eins og hann á til að gera stundum þegar konan hans heldur saumaklúbb.

Þegar hann sendi mér þessa mynd í jólakorti í hittifyrra, áttaði ég mig strax á að nákvæmlega svona skjá setup þyrfti ég að fá mér. Ef ég væri með jafn stórt skrifborð og hann, liti það sennilega svona út því ég og hann virðumst nota sama flokkunarkerfi. ISO dæmi, of flókið til að útskýra hér.

Ég áttaði mig líka á því að hann heldur ennþá uppá froskinn sem ég bjó til fyrir hann úr pappamassa nóttina sem við eyddum saman - sem gefur ykkur smá innsýn í hversu mikið úthald maðurinn hefur - sem er aftur ástæðan fyrir því að hann hafnaði í flokknum "mistök".

Mér finnst samt sætt að hann haldi uppá froskinn.

Al Gore er mjög gott dæmi um þessa fötlun sem ég á við að stríða þegar kemur að því að velja karlmenn, ég hélt að það yrði ekkert úr þessum leppalúða - og þó hann hafi ekki orðið forseti, þá er hann samt helvíti flottur.

Kann að kyssa eftirminnilega. Það verður seint af honum tekið.

Ég er bara komin svona langt í Algorísku, en... ég stefni að sjálfsögðu beint á toppinn.


| anna | 0:13 |
comments

Svona byrjar eftirminnanleg grein um ástmann þinn eins og hann var eftir tapið 2004:

“Hey, Dwayne? . . . Dwayne?”

“Yes, Mr. Vice-President?”

“Could I have some more coffee?”

“Yes, Mr. Vice-President. Coming . . .”

“Thanks, Dwayne.”

It was ten in the morning in Nashville, a quiet weekday, with most of the neighbors off to work, and Albert Gore, Jr., sat at the head of his dining-room table eating breakfast. His plate was crowded with scrambled eggs, bacon, toast. His pond-size mug had, in a flash, been refilled by Dwayne Kemp, his cook, a skilled and graceful man who had been employed by the Gores when, as his boss often puts it, “we were still working in the White House.” Freshly showered and shaved, Gore was wearing a midnight-blue shirt and gray wool trousers. In the months after losing the battle for Florida’s electoral votes and conceding the Presidency to George W. Bush, on December 13, 2000, Gore seemed to let himself go, dropping out of sight, travelling around Spain, Italy, and Greece for six weeks with his wife, Tipper. He wore dark glasses and a baseball cap tugged down low. He grew a mountain-man beard and gained weight...

http://www.newyorker.com/archive/2004/09/13/040913fa_fact

Sem sagt, í sorginni át Al Gore og át...

Nr. 1 | posted by: Organistinn | 12.03.2008 | 9:08:42 | [+] |

sorry, 2000.

Nr. 2 | posted by: Organistinn | 12.03.2008 | 9:10:59 | [+] |

Töff fartölvuborð.

Nr. 3 | posted by: Miss G | 12.03.2008 | 9:15:02 | [+] |

PS. Eru símarnir sem virðast vera þarna hlið við hlið, vinir?

Nr. 4 | posted by: Miss G | 12.03.2008 | 9:16:26 | [+] |

Ertu að segja að hann sé leppalúði Organisti?

Símarnir eru meira.. kunningjar. Samt í sömu fjölskyldu.

Nr. 5 | posted by: anna | 12.03.2008 | 11:01:58 | [+] |

Heimurinn væri í betri stöðu í dag ef Gore ætti lyklaborð með jarðtengdum bilbar eins og Anna. Hann vantaði greinilega einhverja jarðtengingu.

Nr. 6 | posted by: AlanHudson | 12.03.2008 | 16:14:34 | [+] |

Jarðtenging er góð. Ég er samt ekki viss um að ég hafi þannig..

Nr. 7 | posted by: anna | 12.03.2008 | 17:59:36 | [+] |

"Jarðtengingin" sem Alan vísar til er "eldingin" sem er á bilslánni á þessarri gerð lyklaborða.

Hún var hugsuð sem "Power" merki, þ.e. vél í sleep átti að vakna ef ýtt var á bilslána.

Sést hvað PC fólk hugsar í hringi að vera með marga hluti fyrir sömu einföldu aðgerðina - að kveikja á tölvunni nerd

Nr. 8 | posted by: Þór | 13.03.2008 | 0:23:01 | [+] |

Hingað til hefur jarðtengda bilsláin, ásamt segularmbandinu og segulskóinnlegginu, fyllt mig vellíðan, gefið mér öryggi og fullvissu um að allt færi vel að lokum. Núna er það tekið frá manni með einu ónærgætnu kommenti.

Skyndilega er maður ekki viss um sólin rísi á morgun.

Nr. 9 | posted by: AlanHudson | 13.03.2008 | 2:04:07 | [+] |

Anna, er ég að segja að hann sé lepplúði? Nei, ekki beint, þessi grein er mér bara svo minnisstæð því hún er svo skemmtilega skrifuð. Remnick heldur áfram:

"Gore has since dispensed with the beard but not the weight. He is still thick around the middle. He eats quickly and thoroughly, and with a determined relish, precisely like a man who no longer has to care that he might look heavy on “Larry King Live.” “You want some eggs?” he asked. “Dwayne’s the best.” "

Maður fyllist samkenndar að lesa um Gore þar sem hann situr í Nashville að éta sig til dauða af sorg með beikoni og eggjum. Gore þykir reyndar meira vænt um tré en heilsuna:

"When the architect was designing the rear addition to the house, Gore asked him to curve the walls inward in two places in order to save several trees. “The trees weren’t anything special, nothing rare or anything,” he said. “I just couldn’t bear to bring ’em down.” "

Gore er ofurgáfaður og klaufalegur dork sem á erfitt með að konnektara við annað fólk. Ungfrú Ameríka fussar við svona mönnum og valdi frekar töffaranum Bush. Og nú sér hún og öll hennar ætt eftir að hafa dömpað Gore fyrir Bush.

Ég gef þér sömu ráð og dóttur minni: dork er alltaf betri mannkostur en töffari.

Nr. 10 | posted by: Organistinn | 13.03.2008 | 7:26:09 | [+] |

Btw, er þetta ekki frekar sjeikí fyrir Marel að byggja útrás sína á litlu IKEA skrifborði. Ef viðskiptablaðamennirnir í Danmörku sjá þessa mynd þá munu þeir hafa field day.

(maður ætti kannski að senda þeim post: This is Marel´s combined IT and marketing department.)

Ég legg til að Marel kaupi svona Al Gore skrifborð handa Önnu.

Nr. 11 | posted by: Organistinn | 13.03.2008 | 7:37:34 | [+] |

Mér finnst myndin á skjánum sem er á bak við Gore forvitnileg. Getur verið að þetta sé úr Einræðisherranum hans Chaplin? Hvað telur kvikmyndarýnideild anna.is?

Nr. 12 | posted by: AlanHudson | 13.03.2008 | 8:37:11 | [+] |

Tjah.. ég veit ekki, en þetta lítur svo sannarlega út eins og Chaplin.

Mig langar ekki í svona stórt skrifborð, ég var með þannig - en flokkunarkerfið hjá mér fór bara útí vitleysu. Ég er með borðstofuborð núna sem ég nota undir alla flokkun á skjölum toungue

Ég hef aldrei viljað neitt annað en dorks. Vandamálið er að þegar ég byrja með þeim halda þeir instantly að þeir séu töffarar - og fara að haga sér þannig.

It's a curse.

Nr. 13 | posted by: anna | 13.03.2008 | 13:56:30 | [+] |

Þetta grunaði mig. Það skýrir þetta með internetið.

Hann var klárlega mistök.

Nr. 14 | posted by: AlanHudson | 14.03.2008 | 4:04:19 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web