www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Væntumþykja
Þriðjudagur, 26. febrúar 2008

Það er svona.. hlýtt, soldið mjúkt en mest.. gott. Rosalega gott.

Það sem ég elska mest við lífið er hvað það er ófullkomið.

Stundum hata ég það líka. Stundum elska ég að hata það.

Um helgina, í matarboðinu, sagði vinur minn ódauðlega setningu "Ég hef tekið eftir því, að eftir því sem ég eldist - því lengra er síðan hlutirnir gerðust."

Ég fór að skellihlæja. Í mínu lífi gerist alltaf allt í einu og það er alltaf að gerast. All the time.

Og kannski er það bara vegna þess að ég neita að ganga með úr!

Ég hætti að ganga með úr á sínum tíma vegna þess að ég hef nikkel ofnæmi og það var endalaust ves - en - ég komst að því að ég vil ekki ganga með úr hvort sem er. Ég var alltaf að líta á úrið og af engu tilefni. Bara stress og ágætt þegar ég hætti að nota þetta alveg. Svo fékk ég úr í jólagjöf fyrir svolitlu síðan, hafði ekki gengið með úr í fleiri, fleiri ár og ég gerði heiðarlega tilraun til að ganga með úrið - en - mér leið soldið eins og ég væri með handjárn þegar ég var með tæki sem sagði mér hvað klukkan var, alltaf.

Til hvers?

Hafiði pælt í því?

Hvenær í fjandanum koma upp þannig aðstæður í dag að þú verður að vita hvað klukkan er.. og getur ekki litið á klukku á næsta vegg - digital auglýsingaskilti - mælaborðið í bílnum - display gluggann á símanum - tölvuskjáinn fyrir framan þig..

Nútímamaðurinn þarf ekki handjárn sem minna hann stöðugt á að tíminn er að renna út. Auk þess er þetta ófullkomin tækni. Getur t.d. einhver sagt mér hvað "forever" er margar mínútur?

Ekki séns.

Kannski er þetta ástæðan fyrir því að aldurinn hefur ekki farið verr með mig. Tíminn kemur mér ekki við - snertir mig ekki. Á meðan ég hef hann ekki hlekkjaðan við úlniðinn á mér.

Ég veit ekki hvað liðu margir klukkutímar og mínútur frá því ég hætti að ganga með handjárnin þangað til ég fann rétta stíginn í skóginum, þar sem tíminn hættir að skipta máli - en ég fann hann og ég held að þegar þú hefur fundið hann, þá villistu ekki aftur. Ekki þegar þú veist að þetta er rétta leiðin.

Og enginn í skóginum veit hvað klukkan er, og það skiptir ekki máli.

Það skiptir engu máli.

Í kvöld er mér búið að líða svona.
Hjartað mitt er fullt af einhverju alveg dásamlega góðu.

Þakklæti.

Þegar maður notar ekki úr, er "núna" alltaf rétti tíminn.


| anna | 23:26 |
comments

hann er fallegur staðurinn sem þú ert á anna mín...

Nr. 1 | posted by: lifur | 27.02.2008 | 9:44:08 | [+] |

I know..

Nr. 2 | posted by: anna | 27.02.2008 | 11:22:33 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web