www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Gómaður
Sunnudagur, 24. febrúar 2008

Í kvöld var komin röðin að mér að halda matarklúbb. Eitt af því sem kom til umræðu var MILF og svo var rætt um GILF, en þá er orðinu mother skipt út fyrir.. grandmother.

Gaman að því.

Uppúr þeirri umræðu kom hugtakið "að vera gómaður".

Tennurnar farnar, well..

Ætli þetta verði svona? Að sitja með vinkonunum, 85 ára á elliheimilinu og ein segir: "sjáiði þennan stelpur? Ég gómaði hann í gær."

Ég á ekki eftir að geta annað en hlegið næst þegar ég sé svona fyrirsögn eða sambærilega:

"Lögreglan gómar innbrotsþjóf"

Mér finnst þetta alveg ógeðslega fyndið, pissa næstum í mig - og ég veit, þetta er barnalegt. Ekki dæma mig. Ég er með nýjan húmor, hann er ekki kominn lengra en þetta.

Hvar er kötturinn? Datt hann í sjóinn?
Hvar ertu nú? Ert þú að leit'að mér? Eins og ég leit'að þér..

Ég hef ekki séð einn þátt af þessum laugardagslögum en í kvöld sýndu gestirnir mínir mér þrjú lög úr keppninni á youtube. Hey hey lagið, Hvar ertu nú? og lagið sem RÚV vefurinn segir að hafi unnið. Man ekki hvað vinningslagið heitir og nenni ekki að fletta því upp.

Eitt er víst að Ísland sendir mega mongo lag í Eurovision.

Mér finnst eins og einhver ró hafi færst yfir alheiminn. Þetta er eitthvað svo rétt, og nákvæmlega eins og það á að vera - og - ég er laus við alla löngun til að fylgjast með Eurovision í ár.

Ég er svo þakklát.

"Hvar ertu nú?" er hinsvegar brilliant, sérstaklega í flutningi Sigga hennar Lindu.

Djöfull var þetta gott kvöld.


| anna | 4:16 |
comments

Meðan það er ekki GGILF þá sef ég rótt um nætur, vitandi að það er allt í lagi með heiminn og fólkið í honum.

Nr. 1 | posted by: Elías Halldór | 24.02.2008 | 11:51:14 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web