Mánudagur, 25. febrúar 2008
Írska vini mínum finnst gaman að taka landslagsmyndir og langar að sjá eitthvað þannig á Íslandi. Ég sagði honum að ég kannaðist nú ekki við að það væri neitt landslag hérna en hann vill meina að það sé ekki rétt hjá mér. Sama sagan með þessa karlmenn alla tíð, þykjast vita allt.
Það eina sem mér dettur í hug er Grótta. Veit líka um mjög fallegt tré nálægt vesturbæjarlauginni. Mig grunar að hann verði ekkert rosalega imponeraður ef ég sýni honum bara þessa tvo staði.
Mig langar að fara með hann á einhverja fallega staði, en ég þekki ekki landið sjálf og rata lítið utan Reykjavíkur. Tók mig t.d. þrjá daga að rata í nýju vinnuna mína, sem er í nærsveitum. Er búin að segja honum að þetta verði hálfgerð óvissuferð og alls ekki víst að hann komist lífs af. Virðist hafa vakið upp eitthvað frumeðli því honum finnst það bara meira spennandi. Ég vil ekki fara með hann hinumegin á landið eða eitthvað svoleiðis rugl, en svona.. eitthvað út fyrir höfuðborgina.
Vantar dagskrá fyrir fös og lau.
Mér dettur í hug fyrir föstudaginn:
vakna -> keyra -> landslag -> landslag -> borða -> keyra -> landslag -> landslag -> borða -> sofa
og fyrir laugardaginn:
vakna -> keyra -> landslag -> landslag -> borða -> keyra -> landslag -> landslag -> borða -> sofa
Það eina sem vantar í þetta plan er:
a) hvaða landslög eiga þetta að vera
b) hvar við eigum að borða
c) hvar við eigum að sofa
Ég væri mjög þakklát ef einhver hjálpar mér að setja saman smá hring sem slær í gegn hjá landslagsunnanda. Annaðhvort bara komment beint á síðuna eða senda mér póst á anna attt anna.is