www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Decisions, decisions..
Fimmtudagur, 21. febrúar 2008

Það er lúxus að standa á krossgötum og vera í aðstöðu til að tala við fólk sem hefur prufað að feta alla stígana. Eins ótrúlegt og það hljómar, miðað við hvernig bloggið mitt er, þá finnst mér mikilvægt að kynna sér vel hvað er að gerast í raunveruleikanum. Oft eru hlutirnir nefnilega auðveldir "in theory" en þegar á að gera þá í raunveruleikanum kemur annað á daginn. Samt erum við ekki að tala um nein eldflaugavísindi.

Ég veit hvaða leið ég vil fara - og ef hún verður farin mun ég standa og falla með því vali. Það væri miklu auðveldara fyrir mig að skipta mér ekki af þessu. Go with the flow og segja svo bara: "ha? Ég réði þessu ekki. Ég vinn bara hérna."

So far, hef ég á þessu ári lært að ég er ekki hrædd við að taka ákvarðanir og ég er ekki hrædd við að taka á mig ábyrgð. Ekki nóg með að ég sé ekki hrædd við það, mér finnst það gaman - þó það sé langt frá því að vera auðvelt og ekki alveg laust við áhættur.

Bloggið mitt fjallar hinsvegar um eitthvað allt annað sem gerist í öðrum raunveruleika. Þar sem frjálslega er farið með staðreyndir, lögmál virka undarlega og stundum alls ekki. Staður þar sem hvað sem er getur gerst. Án ábyrgðar.

Ég þarf nefnilega líka þannig stað, til að vega upp á móti hinum.

anna.is.

Yndislega, áhyggjulausa, ábyrgðarlausa athvarfið mitt.

Ég elska þig.


| anna | 20:19 |
comments

þú ert náttúrulega líka bara snillingur.

Nr. 1 | posted by: Vala | 22.02.2008 | 1:34:31 | [+] |

Maður hefur áhyggjur eftir að lesa þetta. Ég vona að þú sért ekki í háska stödd.

Nr. 2 | posted by: Organistinn | 22.02.2008 | 9:43:58 | [+] |

datt þetta í hug

http://www.youtube.com/watch?v=C7FGPIRJx6I&feature=related

Nr. 3 | posted by: ra | 22.02.2008 | 13:55:50 | [+] |

Takk Vala! colgate

Það fer eftir því hvernig þú skilgreinir háska Organisti wink

Ra. Hmm.. Of mikil ást getur drepið? Kannski.

Það hefur samt aldrei reynst mér illa að elska mig, eða það sem ég geri. Ég hef bara ekki góða reynslu af verktökum.

Já.. veistu, ég kaupi þetta. Ást líklega það fyrirbæri sem hefur komist næst því að tortíma mér alveg.

Vá.. ég er sennilega ofurhetja og ást mitt kryptonít!

Makes perfect sense to me cool

Nú þarf ég bara búning og merki.

Nr. 4 | posted by: anna | 22.02.2008 | 19:06:54 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web