www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Anna og drekinn
Mánudagur, 18. febrúar 2008

mrd.pngLá í sófanum og beið eftir að maturinn sem ég var með í ofninum yrði tilbúinn. Skakklappaðist þá ekki lítill og sætur dreki fram í stofu, dró djúpt andann og sagði "Mmmmmmm, hvað ertu að elda?"

Ég hélt fyrst að þetta væri Margeir og teygði mig í flugnaspaðann, en þó þetta sé lítill dreki er hann stærri en Margeir og rosalega fljótur að hlaupa.

Þegar ég áttaði mig á því að þetta var ekki Margeir og þegar drekinn hætti að hlaupa, útskýrði hann fyrir mér að hann væri drekinn sem menn þyrftu að drepa til að komast yfir mig.

Jahá. Alveg spurning hvort taki því að mæta á þá vakt - úr því sem komið er.. *hóst*

Hann sagðist óvart hafa dottið í það með fyrsta kærastanum mínum, way back when.. og er búinn að liggja dauður áfengisdauða undir rúmi hjá mér í öll þessi ár.

Nú er hann hinsvegar vaknaður og ég hef einhvern til að spila ólsen ólsen við!

VÚHÚ!


| anna | 21:39 | send to facebook |
comments
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web