www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Mjúk
Miðvikudagur, 09. janúar 2008

Stórmerkilegt að síðan ég fór að fitna hef ég fengið komment frá ótrúlegustu karlmönnum um að ég liti vel út. Núna síðast í kvöld frá manni sem ég hitti á æfingu. Hann sagði mér að hann vill hafa sínar konur "mjúkar". Hann er einkaþjálfari - vinnur við að gera konur harðar.

Annars var ég að hugsa á meðan ég var þarna að djöflast að það er eiginlega ótrúlegt að ég sé að æfa. Ég var sennilega ólíklegasta manneskjan í heimi til að fara þá leið og hefði aldrei dottið í hug að kaupa mér árskort á líkamsræktarstöð ef ég hefði ekki verið helsjúk af ást - vissi ekki hvað ég var að gera.

Ég sé hinsvegar ekki eftir því.

Tók ákvörðun áðan um að hlusta ekkert á hvað karlmönnum finnst. Hverjum er ekki sama.

Ég ætla að vera eins og ég vil vera.


| anna | 22:19 |
comments

Að vera eins og _þú_ vilt vera...

Það er ágætt á meðan þú ferð ekki út í Size-0 öfga smile

Ég dauðvorkenndi konunni í "The truth about size zero". Að fara svona með sig... Hún var... skinn og bein.

En ég er annars sammála þjálfaranum þínum. Konur eiga að vera örlítið mjúkar. Svona.... "cuddly" happy

Nr. 1 | posted by: Þór | 9.01.2008 | 22:46:21 | [+] |

Það er engin að tala um skinn og bein.

Neineineineinei

Nr. 2 | posted by: anna | 9.01.2008 | 23:01:57 | [+] |

Þetta eru news to me, að þú sért farin að fitna. Það væri gott að fá graf á síðuna með tíma á x-axis og þyngd í kg á y-axis. Hvernig er fitudreifingin?

En ansi varstu smart að flytja þig frá Glitni til Marels. Þetta er allt að fara til fjandans þarna.

Nr. 3 | posted by: Organistinn | 9.01.2008 | 23:36:37 | [+] |

var ekki sir mix a lot með eitthvað lag tengt þessu?

Nr. 4 | posted by: þórður g | 10.01.2008 | 0:53:30 | [+] |

Ekki breytast, þú ert fín eins og þú ert.

Gleðilegt ár drunk

Nr. 5 | posted by: AlanHudson | 11.01.2008 | 0:49:56 | [+] |

Alan, hvernig veist þú hvernig hún er?

Nr. 6 | posted by: Organistinn | 11.01.2008 | 2:04:45 | [+] |

Innri blæðingar í fingri er dead giveaway, hún er með terminal bíladellu. Liturinn í fingrinum er ekki blóð, þetta er svart bílalakk.

Nr. 7 | posted by: AlanHudson | 11.01.2008 | 9:01:14 | [+] |

Ég hélt að þú værir að tala um þykkt fitulagsins, og fannst ótrúlegt að Anna hefði leyft þér að mæla hana.

Það hefur lítið sést til þín undanfarið. Hvar heldur þú þig um þessar mundir?

Nr. 8 | posted by: Organistinn | 11.01.2008 | 9:32:19 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web