Laugardagur, 05. janúar 2008
Fyrir jól brosti ég útí annað þegar ég sá jólakort sem femínisti hafði birt á síðunni sinni og fólk tengdi jólasveinum - því ég gat ekki tekið þetta alvarlega. Í fyrsta lagi veit ég að jólasveinar klæða sig bara í rautt og svo þjást þeir ekki af svona mikilli anorexíu.
Þessi fígúra á kortinu er krúttleg og minnir mig einna helst á SÁÁ álfinn. Svo er hún vinaleg líka og sennilega bara fimm ára óupplýst barn vegna þess að ég sé ekki betur en að hún haldi að karlmenn séu einu einstaklingarnir á jörðinni sem nauðga. Við vitum öll að það er nú ekki aaalveg rétt og hann Askasleikir þarf nú ekki að missa mikinn svefn yfir þessu. Flestum körlum dettur ekki einu sinni í hug að nauðga einu né neinu.
Konur nauðga auðvitað líka og beita ofbeldi en ég hef grun um að það sé oftar andlegt, soldið eins og þetta litla jólakort.
Tökum annan vinkil á þetta sem mér finnst vanta tilfinnanlega: Af hverju nauðgar fólk? Nú hljóta að vera margar mismunandi ástæður fyrir því en ég þori að veðja að þessu fólki líður ekki vel á sálinni og mig grunar að fólkinu sem líður vel, sé akkúrat fólkið sem nauðgar ekki öðru fólki. Hvað er verið að gera á þessu landi til að hjálpa fólki að líða betur á sálinni?
Ef manneskja stendur frammi fyrir því að hún nauðgaði einhverjum og líður hræðilega. Hvaða úrræði eru fyrir hendi? Geðlæknar? En ef viðkomandi er ekki geðveikur?
Hvað erum við að gera til þess að hlúa almennt að einstaklingum í þjóðfélaginu?
Fyrir löngu las ég viðtal við sama femínista þar sem hún sagði eitthvað á þá leið að hún vill að dóttir hennar geti gengið niður götu í hvernig fötum sem er, án þess að eiga á hættu að vera nauðgað.
Ef það er það sem hún vill, fyndist mér skynsamlegt að berjast fyrir því að þjóðfélagið ali af sér heilbrigða einstaklinga. Einstaklinga sem beita hvorki líkamlegu né andlegu ofbeldi. Það er eina leiðin sem mér dettur í hug til að ná fram þessu markmiði, leið sem myndi hugsanlega skila einhverjum árangri. Þú nærð ekki árangri með því að standa uppá kassa niðrí bæ og hrópa KARLMENN NAUÐGA. Það er eiginlega augljóst.
Heilbrigðir einstaklingar nauðga ekki og flestir nauðgarar vita ósköp vel að það er ekki falleg að nauðga. Kjarni málsins er.. þeim er sama.
Hvernig er hægt að láta ofbeldisfólki hætta að vera sama?
Ég upplifi suma femínista stundum eins og athyglissjúkt barn sem öskrar:
ÞETTA ER AÐ!
ÞETTA ER AÐ!
ÞETTA ER AÐ!
Hefur einhver orðið var við tillögur að úrbótum eða lausnum frá femínistum?
Ef kortið var sett fram til að sjokkera og skapa umræðu, spyr ég:
Umræðu um nákvæmlega hvað?
Ég spyr, vegna þess að eina umræðan sem ég heyrði tengda þessu jólakorti var að femínistar hafi verið way out of line. Ég get ekki séð að staða nauðgunarmála á Íslandi muni breytast í kjölfarið - á nokkurn hátt.