Þriðjudagur, 01. janúar 2008
Ég ætlaði að liggja í leti í dag en entist bara til hádegis, þá kláraði ég að ganga frá eftir gærkvöldið og seinnipartinn fór ég í dekur. Byrjaði á því að fara í heitt bað, buffera mig hátt og lágt. Tók sjálfa mig í manicure og pedicure og ef ég væri ekki búin að fjarlægja feldinn á mér myndi hann glansa. Í staðinn er ég bara með silkimjúka fótleggi.
Akkúrat núna er ég að úða í mig harðfiskflögum sem Hugi gaf mér í gærkvöldi, þvílíkt sælgæti. Hann er svo góður að ég þarf ekki smjör - en smjör er einmitt eitt af því sem ég er hætt að borða.
Ég strengi ekki áramótaheit alla jafna nema í ár hef ég gefið sjálfri mér eitt loforð: ég ætla að hafa svo góðar hægðir allt þetta ár, að það jaðrar við að vera ævintýralegt.
Reglulegar og einu sinni á dag.
Ég hef nefnilega ákveðið að verða betri manneskja og þá er gott að byrja á grundvallaratriðunum.