www.anna.is
ravings of a lunatic í janúar 2008
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Happy new year!
Þriðjudagur, 01. janúar 2008

doddi2008.png


2008
Þriðjudagur, 01. janúar 2008

Hugi nágranni var hjá okkur í kvöld og saman elduðum við einn þann besta kalkún sem ég hef smakkað. Ég var búin að sjóða innvolsið í allan dag fyrir sósuna og þegar stóra stundin rann upp.. helti ég soðinu í vaskinn.

Ég er snillingur.

Hugi reddaði málunum. Eftir miðnætti fór hann með okkur í bíltúr um bæinn á Land Rovernum en ég hef grun um að hann hafi fengið raðfullnægingar þegar hann sá Range Rover auglýstan fyrir skaupið. Viðurkenni að þessi auglýsing kom mér alveg til líka. Get ekki sagt það sama um skaupið. Hitler stóð uppúr og selurinn.

img00344.pngÞað er svo skrítin tilfinning sem fylgir áramótum. Nýtt ár. Tímamót. Nýtt upphaf, þú veist ekki hvað gerist en oft fær maður gut feeling. Ég held að 2008 verði gott ár. Ég hef verið að gera góða hluti og ætla að halda því áfram.

Þetta er síðasta myndin sem var tekin af mér á árinu. Ég var að horfa á svolítið alveg sérstakt þegar myndin var tekin.


Svolítið sem veitir mér ómælda hvatningu og ánægju - in a strange way.


Fyrsti dagurinn
Þriðjudagur, 01. janúar 2008

Ég ætlaði að liggja í leti í dag en entist bara til hádegis, þá kláraði ég að ganga frá eftir gærkvöldið og seinnipartinn fór ég í dekur. Byrjaði á því að fara í heitt bað, buffera mig hátt og lágt. Tók sjálfa mig í manicure og pedicure og ef ég væri ekki búin að fjarlægja feldinn á mér myndi hann glansa. Í staðinn er ég bara með silkimjúka fótleggi.

Akkúrat núna er ég að úða í mig harðfiskflögum sem Hugi gaf mér í gærkvöldi, þvílíkt sælgæti. Hann er svo góður að ég þarf ekki smjör - en smjör er einmitt eitt af því sem ég er hætt að borða.

Ég strengi ekki áramótaheit alla jafna nema í ár hef ég gefið sjálfri mér eitt loforð: ég ætla að hafa svo góðar hægðir allt þetta ár, að það jaðrar við að vera ævintýralegt.

Reglulegar og einu sinni á dag.

Ég hef nefnilega ákveðið að verða betri manneskja og þá er gott að byrja á grundvallaratriðunum.


| anna | 21:09 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Gæs
Miðvikudagur, 02. janúar 2008

Ég sé að ég hef gleymt að skrifa um það sem vera mér efst í huga á aðfangadagskvöld, en ég gat ekki hætt að hugsa um hvað mér fannst svínakjötið boring á bragðið og hvað ég þráði að fá gæs, eins og þá sem ég fékk þegar markaðsdeild Marel hélt veislu fyrir jólin.

Áður en ég fór heim úr vinnunni áðan talaði ég við manninn sem skaut og eldaði viðkomandi gæs. Hann sagði að það væri nú ekki mikið mál að elda svona og þar með voru örlög jólanna á mínu heimili verið ráðinn.

Í 36 ár hef ég borðað svínahamborgarhrygg á jólunum og lengi vel borðaði ég þetta líka á áramótunum. Ég er orðin svo hryllilega leið á þessu að það hálfa væri nóg. Fyrir nokkru svissaði ég yfir í kalkún á gamlárs og næstu jól..

Næstu jól þegar ég hef krakkana ætla ég að kaupa eina litla flís af svíni fyrir börnin en skjóta gæs fyrir mig. Það verður bara ein regla:

Allir verða að borða einn bita af gæs og meðlæti áður en þeir að borða svínið.

Er ég vond?

Þetta verða næstu barnajól. Næstu jól er ég ein og þau verða kosher.

Eitt flottasta móment í markaðssetningunni gagnvart krökkunum verður þegar ég kem heim í rambó búningnum með gæsina - sem ég skaut sjálf - og þegar ég segi þeim æsispennandi sögu frá því hvernig þessi gæs svoleiðis réðist á mig með einbeittum brotavilja og mér brá svo að ég rétt náði að skjóta hana í fótinn. Þá reyndi gæsin að pota úr mér hægra augað með gogginum svo ég varð að skjóta hana aftur og snúa úr hálsliðnum. Just in case.

Þegar þau neita að borða gæsina mun ég brotna saman og fara að gráta - eða segja "en Guð segir að við eigum að borða það sem við drepum, annars er nefnilega ljótt að drepa. Vilji þið að ég fari til helvítis? Á afmælinu hans Jesú!!"

Sé til hvernig ég sel þeim þetta. Það fer eiginlega eftir því hversu fullnægð ég verð at the time en eitt er á tandurhreinu. Það verður ekki aftur svín í matinn hjá mér á jólunum. Ég er komin með ógeð.


Borgarleikhúsið
Föstudagur, 04. janúar 2008

Mér var boðið á Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu í kvöld. Tveir menn stóðu algjörlega uppúr á þessari sýningu en það var annars vegar Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki Pontíusar Pílatusar og hinsvegar Bergur Þór Ingólfsson sem fór algjörlega á kostum sem Heródes.

Í þau skipti sem þessir menn birtust á sviðinu var eins og það færðist líf í show-ið og ég upplifði það sem ég fer í leikhús til að upplifa. The "vá" effect. Ég vissi að Ingvar væri fantagóður leikari en hafði ekki hugmynd um að hann væri svona magnaður söngvari - og ég vissi nú ekki einu sinni að Bergur væri til, en það segir meira um mig en hann. Hann er með svakalega rödd og töff presence.

Annars varð ég fyrir mikilli vakningu í kvöld því mér leiddist soldið og fór að velta Jesú fyrir mér og hans vinum öllum. Rann upp fyrir mér að ég er alls ekki trúuð manneskja. Mér fannst sorglegt að horfa á atriði þar sem allir eru rosa kátir að hafa þennan stegg til að fylgja og í atriðinu þar sem fólk ætlaði Jesú lifandi að drepa með ágangi varð mér hugsað til Britney Spears. Jesú hafði konu sér við hlið, konu sem elskaði hann en hann ætlaði sér ekkert með en fannst gott að hafa hana at his beck and call. Í dag er til orð sem er notað yfir menn sem gera þannig: fávitar.

Mér finnst verst að það er stórhætta á að í hvert skipti sem ég tek upp my personal jesus í náinni framtíð muni ég hugsa um Krumma.

Jesus Christ Superstar has killed my sexlife.


| anna | 23:25 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Í anda jólanna
Laugardagur, 05. janúar 2008

saa.jpgFyrir jól brosti ég útí annað þegar ég sá jólakort sem femínisti hafði birt á síðunni sinni og fólk tengdi jólasveinum - því ég gat ekki tekið þetta alvarlega. Í fyrsta lagi veit ég að jólasveinar klæða sig bara í rautt og svo þjást þeir ekki af svona mikilli anorexíu.

Þessi fígúra á kortinu er krúttleg og minnir mig einna helst á SÁÁ álfinn. Svo er hún vinaleg líka og sennilega bara fimm ára óupplýst barn vegna þess að ég sé ekki betur en að hún haldi að karlmenn séu einu einstaklingarnir á jörðinni sem nauðga. Við vitum öll að það er nú ekki aaalveg rétt og hann Askasleikir þarf nú ekki að missa mikinn svefn yfir þessu. Flestum körlum dettur ekki einu sinni í hug að nauðga einu né neinu.

Konur nauðga auðvitað líka og beita ofbeldi en ég hef grun um að það sé oftar andlegt, soldið eins og þetta litla jólakort.

Tökum annan vinkil á þetta sem mér finnst vanta tilfinnanlega: Af hverju nauðgar fólk? Nú hljóta að vera margar mismunandi ástæður fyrir því en ég þori að veðja að þessu fólki líður ekki vel á sálinni og mig grunar að fólkinu sem líður vel, sé akkúrat fólkið sem nauðgar ekki öðru fólki. Hvað er verið að gera á þessu landi til að hjálpa fólki að líða betur á sálinni?

Ef manneskja stendur frammi fyrir því að hún nauðgaði einhverjum og líður hræðilega. Hvaða úrræði eru fyrir hendi? Geðlæknar? En ef viðkomandi er ekki geðveikur?

Hvað erum við að gera til þess að hlúa almennt að einstaklingum í þjóðfélaginu?

Fyrir löngu las ég viðtal við sama femínista þar sem hún sagði eitthvað á þá leið að hún vill að dóttir hennar geti gengið niður götu í hvernig fötum sem er, án þess að eiga á hættu að vera nauðgað.

Ef það er það sem hún vill, fyndist mér skynsamlegt að berjast fyrir því að þjóðfélagið ali af sér heilbrigða einstaklinga. Einstaklinga sem beita hvorki líkamlegu né andlegu ofbeldi. Það er eina leiðin sem mér dettur í hug til að ná fram þessu markmiði, leið sem myndi hugsanlega skila einhverjum árangri. Þú nærð ekki árangri með því að standa uppá kassa niðrí bæ og hrópa KARLMENN NAUÐGA. Það er eiginlega augljóst.

Heilbrigðir einstaklingar nauðga ekki og flestir nauðgarar vita ósköp vel að það er ekki falleg að nauðga. Kjarni málsins er.. þeim er sama.

Hvernig er hægt að láta ofbeldisfólki hætta að vera sama?

Ég upplifi suma femínista stundum eins og athyglissjúkt barn sem öskrar:

ÞETTA ER AÐ!
ÞETTA ER AÐ!
ÞETTA ER AÐ!

Hefur einhver orðið var við tillögur að úrbótum eða lausnum frá femínistum?

Ef kortið var sett fram til að sjokkera og skapa umræðu, spyr ég:
Umræðu um nákvæmlega hvað?

Ég spyr, vegna þess að eina umræðan sem ég heyrði tengda þessu jólakorti var að femínistar hafi verið way out of line. Ég get ekki séð að staða nauðgunarmála á Íslandi muni breytast í kjölfarið - á nokkurn hátt.


Git out
Sunnudagur, 06. janúar 2008

Ég byrjaði daginn á því að fara í sund. Helvíti er það hressandi. Þegar ég kom heim eldaði ég hafragraut og svo fór ég að versla í matinn.

Núna er ég að búa mig undir að henda jólunum út.


| anna | 14:20 | permalink | comments (1) | send to facebook |
Fingrablóðfall - Part III
Mánudagur, 07. janúar 2008

Fingrablóðfall átti sér stað í vísifingri vinstri handar þegar ég var stödd í líkamsræktarstöðinni í Actavis húsinu í dag klukkan 18:00.

etphonehome.png

ET Phone home!

Ég hef ákveðið að halda skrá yfir hversu oft ég fæ þetta.

Fingrablóðfall I

Fingrablóðfall II

Einhverjar hugmyndir að góðum lokaorðum? Eitthvað annað en "ohh not again".


Mjúk
Miðvikudagur, 09. janúar 2008

Stórmerkilegt að síðan ég fór að fitna hef ég fengið komment frá ótrúlegustu karlmönnum um að ég liti vel út. Núna síðast í kvöld frá manni sem ég hitti á æfingu. Hann sagði mér að hann vill hafa sínar konur "mjúkar". Hann er einkaþjálfari - vinnur við að gera konur harðar.

Annars var ég að hugsa á meðan ég var þarna að djöflast að það er eiginlega ótrúlegt að ég sé að æfa. Ég var sennilega ólíklegasta manneskjan í heimi til að fara þá leið og hefði aldrei dottið í hug að kaupa mér árskort á líkamsræktarstöð ef ég hefði ekki verið helsjúk af ást - vissi ekki hvað ég var að gera.

Ég sé hinsvegar ekki eftir því.

Tók ákvörðun áðan um að hlusta ekkert á hvað karlmönnum finnst. Hverjum er ekki sama.

Ég ætla að vera eins og ég vil vera.


| anna | 22:19 | permalink | comments (8) | send to facebook |
Lítil
Mánudagur, 14. janúar 2008

Ég vaknaði áðan og lá lengi í rúminu áður en ég fór framúr því mér leið verulega illa. Heilinn á mér registeraði ekki að það sem mér leið illa útaf var draumur sem á sér engar stoðir í raunveruleikanum.

Þegar ég loksins fattaði að þetta er sennilega hita-móks-rugl, fór ég frammúr.

Mér hefur samt oft liðið betur í hjartanu en akkúrat núna.


| anna | 11:37 | permalink | comments (1) | send to facebook |
Upprisa holdsins
Þriðjudagur, 15. janúar 2008

Ég er risin úr rekkju og ætla að fara í vinnuna á morgun. Verð sennilega að vinna um helgina þar sem ég er að fara út í næstu viku á fundi og þarf að fara vel undirbúin. Þarf að kaupa mér ferðatösku.

Er ekki búin að hafa neina matarlyst síðan á sunnudaginn og í kvöld hef ég verið að borða graskerafræ og sesamfræ blöndu úr skál. Sennilega er ég að breytast í fugl.

Eins og alltaf þegar ég dett í heilsuna hætti ég að hafa nokkuð til að skrifa um. Mér líður bara of vel (þegar ég er ekki með óráði) og hef of mikið að gera.

Kannski líður það hjá.


| anna | 22:22 | permalink | comments (1) | send to facebook |
Lítið dæmi um bætt aðgengi
Miðvikudagur, 16. janúar 2008

Skrifborðið heima hjá mér er venjulega eins og ruslahaugur. Fullt af allskyns dóti á því þannig að það sér ekki í borðplötuna. Um daginn keypti ég mér ruslafötu til að hafa undir skrifborðinu. Það er búið að vera hreint síðan.

Það tók mig 36 ár að fatta þetta.

Ég hlakka ekkert lítið til að sjá hvaða groundbreaking uppgötvanir ég geri þegar ég verð 37.


| anna | 23:43 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Sannur vinur... fer með þér í Kringluna
Fimmtudagur, 17. janúar 2008

Anna says: hello
Anna says: ertu að vinna?
Hugi says: 'ello
Hugi says: já, er niðri í vinnu
Anna says: ertu að vinna á eftir eða bissí?
Hugi says: kem heim líklega um kl. 19
Hugi says: langar þig í te?
Anna says: nei ég var að spá
Anna says: datt í hug að taka þig með mér að skila jólagjöfum í kringlunni
Anna says: af því ég veit að þú elskar kringluna
Hugi says: vá!
Anna says: og af því það er opið þar til níu í kvöld
Anna says: en aðallega af því þú elskar kringlunna
Hugi says: þú ert svo.... falleg
Anna says: ÉG VEIT!
Anna says: það er eiginlega óhuggulegt
Hugi says: litla svarta sálin þín mig bara langar að knúúúsa hana smile
Anna says: LOL
Hugi says: jújú, hnipptu í mig þegar þú vilt fara
Anna says: ohhh dásamlegt
Anna says: ég geri það
Anna says: takk
Anna says: þú munt lina þjáningar mínar
Hugi says: hey, ég mundi ALDREI senda þig eina í þennan blóðþarm vítis
Anna says: NEI ÉG VISSI ÞAÐ LÍKA!
Anna says: þú ert sannur vinur Hugi
Hugi says: svona líka smile
Anna says: það myndu ekki allir henda sér í þetta gin hreinnar illsku
Hugi says: hver ferð styttir ævina um 3 ár
Anna says: þú veist að kringlan er þriðji hringur helvítis
Hugi says: þannig að eftir þessa skuldarðu mér 9
Anna says: en þú ert hættur að reykja
Anna says: hvernig á ég að bæta þér upp níu ár ef ég get ekki þvingað þig til að hætta að reykja?
Hugi says: hmmmm
Anna says: ég veit
Anna says: ég gæti ákveðið að drepa þig.. ekki
Anna says: lol
Hugi says: já!
Hugi says: ákveður það og drepur mig svo 9 árum síðar
Anna says: já
Anna says: viltu að ég láti þig vita þegar ég hef ákveðið að drepa þig?
Hugi says: endilega
Anna says: eða viltu að það komi á óvart, níu árum síðar
Anna says: þegar ég segi..
Anna says: mannstu þegar ég horfði á þig in a funny way fyrir níu árum síðan og þú spurðir "hvað?" og ég sagði "ekkert"
Anna says: well.. I lied
Hugi says: lol!


| anna | 17:53 | permalink | comments (1) | send to facebook |
A... lion?
Föstudagur, 18. janúar 2008

llljon.png


---
Ehh.. úps...


| anna | 22:38 | permalink | comments (2) | send to facebook |
Sjííís
Föstudagur, 18. janúar 2008

Á dauða mínum átti ég von á en að Ken stæði fyrir utan hurðina? Hvernig komst hann inní húsið? Bjallan er biluð!!!

Jæja ég er búin að eyða kvöldinu í að útskýra fyrir honum að á meðan hann var í coma þurfti ég að eiga ljón. Hann er í baði núna að "hugsa málið".

Eins og þetta sé eitthvað flókið.

Well.. fór á netið því mér leiðist að hlusta á karlmenn gráta og kíkti á heimasíðuna hans Huga og sá að hans læknir fer í gúmmíhanska og skoðar blöðruhálskirtilinn þegar Hugi fer að hitta hann. Ég væri ekki svona upset ef við værum ekki með saman lækni.

Já. Lækninn sem segir alltaf "ung og hraust manneskja eins og þú, verður orðin góð á korteri" þegar ég fer til hans.

Aldrei gerir hann neitt svona skemmtilegt við mig!

Ég upplifi svo mikla höfnun núna.


| anna | 23:17 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Karlmenn..
Sunnudagur, 20. janúar 2008

eldhusid.png


| anna | 13:28 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Svo slasaður
Mánudagur, 21. janúar 2008

Um helgina fann Ken lausnina á öllum okkar vandamálum. Sagðist ætla að drepa ljónið og þá yrði allt gott aftur. Ég hristi bara höfuðið. Þegar ég gerði það eipaði hann og kallaði mig öllum illum nöfnum, hreytti svo í mig að hann hafi feikað allar fullnægingarnar sem hann fékk með mér. Ég sagði að þá ættum við allavega eitthvað sameiginlegt. Þá rauk hann út.

Ég var að djóka for christ sake.

Í gærkvöldi fékk ég samtalst 18 sms frá honum þar sem hann var meira og minna að spyrja hvort mér fyndist ekkert gott að sofa hjá honum.

Ég er hætt að deita menn með svona lágt sjálfsmat.

Það er of boring.


Over and Out
Mánudagur, 21. janúar 2008

Það liðu ekki nema kannski fimm sekúndur frá því ég staðsetti hlaupið á byssunni á milli augnanna á honum þangað til ég hleypti af. Samt leið mér eins og þetta væru minnst fimm mínútur - eða meira.

Ég var ekki að hugsa þegar ég tók upp byssuna. Ég var ekki að hugsa þegar ég fann hlaupið snerta ennið á honum, en á meðan við horfðumst í augu í þessi augnarblik áður en hann hneig niður og ég fann dauft blóðbragð blandast munnvatninu uppí mér.. ég var með fulla fimm þegar ég tók í gikkinn.

Ég hef alltaf sagt að það geti hver sem er, hvar sem er, drepið aðra manneskju ef hún er sett í aðstæður þar sem henni, afkvæmum hennar eða ástvinum er sýnd veruleg ógn eða jafnvel hótað lífláti. Þegar ég horfði á hann skjóta ljónið í hjartað gekk ég rólega inní eldhús og náði í byssuna, án þess að hugsa. Ég þrýsti henni uppað enninu á honum án þess að hugsa en þarna enduðu ósjálfráðu viðbrögðin og heilinn tók við. Það var of seint fyrir mig að bakka.

Ég vissi að ég var ekki að bjarga neinu. Var of sein. Datt aldrei í hug að hann myndi gera alvöru úr þessum endalausu hótunum. Ég sá að honum stóð ekki á sama og ég sá líka að hann trúði ekki að ég myndi taka í gikkinn - en hann sá þegar ég tók ákvörðunina. Þegar ég gerði það, ég fann hvernig adrenalín hreinlega spýttist útí líkamann. Þvílíkt rush. Mér leið eins og ég væri djöfullinn sjálfur, almáttug, því ég hafði ákveðið að taka líf annarrar manneskju og hann sá það. Í split second. Ég sá að hann sá það.

Ég sagði ekkert áður en ég drap hann. Ég hafði ekkert við hann að segja.


| anna | 23:00 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Tricky situation
Fimmtudagur, 24. janúar 2008

Tækniliði lögreglunnar hefur staðfest sögu mína og telst nú sannað að ljónið hafi verið skotið af stuttu færi af manninum sem ég skaut - af stuttu færi. Þess vegna er ég ennþá í gæsluvarðhaldi.

Það var hinsvegar að renna upp fyrir mönnum hérna að ég var ekkert að plata þegar ég fullyrti við handöku að maðurinn sem ég skaut í höfuðið var úrskurðaður látin á gjörgæslunni á Borgarspítalanum fyrir tveimur árum síðan.

Hvernig er hægt að kæra manneskju fyrir að skjóta mann sem er ekki á lífi?

Ridiculous. Ég fer í mál.
--

Það er mjög mikilvægt að þú skrifir þetta nákvæmlega svona á síðuna. Allt sem kemur á eftir "Ég fer í mál" er bara ætlað þér að lesa. Líttu á þetta sem tækifæri til að sýna heiminum að það er fullt af heilastarfsemi í gangi hjá mönnum sem taka stera og líta út eins og höfuðið sé of lítið fyrir búkinn.

Ef þú ert að skrifa þennan part á síðuna ertu fullkomið idiot!


| in case of emergency | 22:20 | permalink | comments (5) | send to facebook |
...
Fimmtudagur, 31. janúar 2008

Hold on

hold on

hold on

Hold on

hold on..


| in case of emergency | 22:26 | permalink | comments (6) | send to facebook |

ravings í janúar 2008
monthly archive

links
blogs
links - web