www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Árið 2007
Mánudagur, 31. desember 2007

Snemma á árinu ákvað ég að gifta mig aftur, nema ég giftist banka í þetta skipti - nánar tiltekið.. Glitni.

Ég fór fljótt að stalka einn af yfirmönnum mínum en honum fannst það bara sætt og ég reyndi að koma til móts við þarfir hans. Ég átti ekki mikið líf fyrir utan vinnuna hjá Glitni og það skipti í raun ekki máli, ég var að vinna með svo skemmtilegu fólki.

Í júní fór ég til Spánar með vini mínum sem reddaði húsi og þar lá ég á svölunum í sólbekk í tvær vikur. Ég fæ tanorexíu á svona stað og það eina sem vakti athygli mína var Bentley.

Um sumarið fann ég mann sem batt enda á andskoti langt skírlífsbindindi. Komin tími til. Hann var gæludýrið mitt í nokkrar vikur, þá sleppti ég honum útí náttúruna en lærði að það eru ekki allir menn hálfvitar því þessi maður kom verulega vel fram við mig.

Ég hljóp fokking tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis sem var haldið í bongó blíðu þann 18. ágúst. Það er nú eiginlega Snorra að þakka að ég komst alla leið og ég hélt að ég væri dáin þegar ég kom í mark. Ég ætla að hlaupa næst líka. Þetta er ekkert smá gaman.

Um haustið fann ég ljónastrák sem vildi gerast verktaki hjá mér. Tók að sér að kúra við mig og vera almennt séð góður við mig. Ég er ljóninu ævinlega þakklát fyrir að kúra og kela við mig, strjúka mér og kyssa endalaust. Ég held að ég hafi þurft á þessu að halda - og lærði að það eru til menn sem vilja vera svona góðir við mig. Ég þurfti að læra það.

Stuttu eftir að ég hitti ljónið fékk ég símtal og var boðið í hádegisverð á Salt. Það var ekki auðveld ákvörðun að skilja við Glitni, það var erfiðasta ákvörðun þessa árs en þetta var of spennandi tækifæri til að ég gæti hafnað því og ég ákvað að henda mér í djúpu laugina og fór að vinna hjá Marel. Trúi að árið 2008 verði verulega skemmtilegt ár, vinnulega séð.

Ég keypti mér bíl á árinu og það er fjárfesting sem ég hef ekki séð eftir. Ljónabíllinn fékk gott heimili.

Hárið á mér síkkaði töluvert á árinu, aðallega vegna þess að ég er löt að fara í klippingu og líka vegna þess að konan sem klippir mig hefur harðneitað að klippa mig stutt. Ég hef aldrei verið með svona sítt hár áður og er ekkert á leiðinni að fara að klippa það af. Þetta fer mér sæmilega og ég þarf lítið að hafa fyrir því - nema þegar ég vil hafa það slétt, sem er ekkert svo oft. Ég er með of liðað hár til að ég nenni að díla við það stutt. Skárra að vera með sítt hár en að líta alltaf út eins og reitt hænurassgat af því ég nennti ekki að blása á mér hárið á morgnanna. Þetta er einn af þeim fjölmörgu kostum við að þekkja sín takmörk - og af því ég þekki þau ekki fékk ég mér hárgreiðslumeistara sem þekkir mín takmörk og hlustar ekki á það sem ég vil, heldur gerir það sem mér er fyrir bestu.

Hvað gerði ég meira.. já! Ég lét setja nýja mynd í debetkortið mitt, sem var töluvert afrek. anna.is var tilnefndur besti einstaklingsvefurinn hjá Svef en vefurinn icomefromreykjavik.com vann í þetta skipti. Mér fannst samt sætt að þeir skyldu tilnefna mig.

Ég keypti svakalega mikið af fötum á árinu sem ég hef fitnað uppúr svo nú á ég fulla skápa af fötum sem ég passa ekki í, eins gaman og það er. Þetta var ekki mötuneytið hjá Glitni. Þetta var kexið, útlandanammið, kókið og prins pólóið. Ég tók ákvörðun um að vera ekki í mötuneytinu hjá Marel, það er ekkert kex, ekkert kók og ekkert prins póló og ég er strax byrjuð að léttast.

Reyndar neyddist ég til að taka aftur upp mega heilsusamlegt líferni fyrir stuttu síðan. Ég lá í sófanum eitt kvöldið, sofandi, þegar síminn minn hringdi. Í símanum var blaðamaður sem vildi taka viðtal við mig um heilsu. Ég var sofandi og sagði "jájá no prob".

Þegar ég skellti á settist ég upp í sófanum og starði í tómið í örfáar sekúntur að ná fókus á sjónina og ná utanum hvað ég hafði samþykkt að gera. Því næst kveikti ég mér í sígarettu og helti mér kók í glas og hugsaði "jæja.. þá er þetta búið". Daginn eftir endurnýjaði ég kortið í ræktinni, er búin að fara annan hvorn dag eða daglega og hef lifað á grasi og vatni síðan. Þar sem ég er dottin í heilsulífernið aftur mun ég sennilega passa aftur í fötin mín eftir nokkrar vikur svo ég er ekkert að kvarta yfir þessu. Þetta var á dagskrá hvort sem er.

Ég hitti Jude Law í eigin persónu á þessu ári og fékk móral yfir því að ég væri búin að nota þennan einstakling sem karakter á síðunni minni. Það entist í korter. Who cares hvað ég skrifa um Jude Law? Seriously.

Margeir dó og lifnaði við aftur. Ég veit ekki hvar hann er núna og mér er sama. Ég sakna Lifur.

Ég keypti mér tvo 22' skjái á árinu og get ekki sagt að ég sjái eftir þeirri fjárfestingu. Maður getur ekki haft of mikið skjápláss og sennilega mun ég bæta þriðja við innan þriggja ára.

Á árinu skoðaði ég brúnkukrem og prufaði mökk af þeim. Af einhverjum ástæðum hef ég ákveðið að nota ekkert af þeim og ég tók til! Shit hvað ég tók mikið til. Henti fullum sendiferðabíl af drasli.

Ég endaði non samband við mann sem er búinn að vilja hitta mig síðan árið 2005. Ég fattaði að ég vil ekki eiga mann sem er ekki á landinu, get alveg eins haldið áfram að eiga engan.

Halló! Ég tók bókhaldið mitt í gegn! Vá hvað ég er stolt af sjálfri mér og þetta var miklu minna mál en ég reiknaði með, auk þess sem ég komst að því að ég er betur stæð en ég reiknaði með. Það er nú aldrei leiðinlegt.

Ég söng á fyrsta blúskvöldi Marel í desember og skemmti mér alveg þrusu vel. Stuttu síðar fór ég á stefnumót með manni sem var í svörtum frakka og að leita að ást við fyrstu sýn. Þennan stutta tíma sem ég eyddi með honum leið mér alveg stórfurðulega, get sennilega ekkert útskýrt það hér en þetta var eins og ég væri fullkomlega örugg á allan hátt en samt ekki að tengja við neitt. Eftirá að hyggja var hann kannski á stað sem hefur alltaf verið lokaður og þess vegna erfitt fyrir mig að átta mig á hvað þetta var, ég veit það ekki. Þetta var allavega nýtt. Hann hlustaði á mig og var verulega góður við mig án þess að honum virtist finnast það neitt tiltökumál. Hann hjálpaði mér og studdi mig - við erum að tala um að ég þekkti manninn í tvær vikur, varla það. Hann gerði allt þetta á svo eðlilegan hátt að það var aldrei yfirþyrmandi eða óþægilegt. Þetta var bara.. eðlilegt.

Á stefnumótunum okkar, sem voru tvö, leiddi hann mig í hálku án þess að horfa vandræðalegur í kringum sig, hann snerti öxlina mína þegar við sátum til borðs - eins og það væri fyrir hann, ekki mig. Það skiptir mig miklu máli að vera með manni sem hefur þörf fyrir að snerta mig og gerir það. Ljónastrákurinn kynnti mig fyrir þessu og af því ég var ekki vön svona tók ég sérstaklega eftir því. Ef ég sat hjá ljónastráknum þá þurfti hann að snerta mig, bara smávegis, öxlina, höndina, eitthvað. Ekki of mikið, ekki of lítið. Alveg passlega. Ég vil mann sem hefur passlega snertiþörf.

Séra Jón Borderline sagði mér að ég væri að gera mér óleik með að eiga ljón fyrst ég væri tilbúin að eignast mann því þá væri ég ekki að leita, sem er rétt hjá honum nema.. ég vissi ekki hvernig mann ég vil - eða.. ég taldi mig ekki vita það. Þegar ég var hætt að hitta svarta frakkann fór ég hinsvegar að skoða það mál og nú veit ég hvernig mann ég vil. Áður en ég fann svarið missti ég hinsvegar fyrst trú á þessu öllu og varð allt í einu algjörlega lost. Skildi ekki af hverju ég var svona out of whack. Það tók mig nokkra daga að púsla mér saman aftur - en ég veit hvað ég vil. Það þýðir að ég er tilbúin að finna það.

Þegar ég byrjaði að skrifa þessa samantekt fannst mér ég ekkert hafa gert á þessu ári.

Merkilegt.

Ég er búin að gera mökk af skemmtilegum hlutum, ég er actually ennþá á lífi þrátt fyrir háan aldur og ef ég held áfram að vera svona dugleg í heilsunni þá á ég eftir að lifa löngu eftir að heilinn er hættur að fúnkera!

Vúhú!

Það gæti orðið soldið skemmtilegt blogg sem kæmi útúr því..


| anna | 0:03 |
comments

Háan aldur... yeah toungue Takk fyrir allt á liðnu ári mín kæra og verði það næsta ljúft og viðburðaríkt fyrir þig og börnin! colgate

Nr. 1 | posted by: Sigga | 31.12.2007 | 13:59:07 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web