www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ég þarf hjálp..
Miðvikudagur, 26. desember 2007

Ég var að taka saman lista yfir karlmanns týpur sem höfða til mín í bíómyndum.

George Clooney í Out of Sight
-glæpamaður

George Clooney í From Dusk 'till Dawn
-mjög geðsjúkur einstaklingur

Jude Law í Gattaca
-hrokafullur fáviti

Jack Nicholson í Something's Gotta Give
-miðaldra fáviti

Alan Rickman í Die Hard
-sikkópati

Kevin Spacey í American Beauty
-lífsleiður miðaldra maður

Kevin Spacey í The Ref
-lífsleiður miðaldra maður

Bill Murray í Groundhog Day
-hrokafullur fáviti

Jude Law í Enemy At The Gates
-einfeldningur

Jack Nicholson í Witches Of Eastwick
-djöfullinn sjálfur

Jeff Bridges í The Fisher King
-class A fáviti

Þetta skýrir svo margt.

Tveir karakterar þarna taka reyndar út einhvern þroska í bíómyndinni og enda sem frekar eigulegir einstaklingar.

Jack Nicholson í Something's Gotta Give
-endar sem alveg frábær eiginmaður

Bill Murray í Groundhog Day
-endar sem alveg frábær kærasti

Þessir karakterar hafa allir traits sem mér finnst eftirsóknarverð, en enginn hefur allan pakkann - nema reyndar Jack í Something's Gotta Give, en hann er of gamall til að ég geti notað hann. Hann er actually eini karakterinn sem ég hef séð í bíómynd og fallið fyrir - en sökum verkefnis sem ég fékk uppí hendurnar um daginn þarf ég að finna góða leading man týpu úr bíómynd, á mínum aldri. Einhvern sem mér finnst hot og einhver sem er ekki fáviti.

Einhverjar tillögur?

Þetta er ekki fyndið. Ég fell ekki einu sinni fyrir fictional karakter... nema hann sé fáviti.


| anna | 21:33 |
comments

Hversu gömul má myndin vera?

Nr. 1 | posted by: Elías | 26.12.2007 | 23:58:26 | [+] |

Skiptir engu máli, á meðan viðkomandi er á mínum aldri í myndinni.

Nr. 2 | posted by: anna | 26.12.2007 | 23:59:52 | [+] |

Chaplin í City Lights?

Nr. 3 | posted by: baun | 27.12.2007 | 0:55:23 | [+] |

Nah.. don't think so smile

Nr. 4 | posted by: anna | 27.12.2007 | 1:43:28 | [+] |

Er Bogart of lítill? Owen Wilson í Children of Men? Paul Newman í The Hustler?

Nr. 5 | posted by: Ásgeir H | 27.12.2007 | 2:37:15 | [+] |

Ekki Bogart. Fíla ekki Owen Wilson.

Paul Newman er hinsvegar í miklu uppáhaldi og hefur alltaf verið. Veit ekki alveg hvort hann sé að hringja bjöllum í the hustler. Veistu um mynd með Newman þar sem hann er all around stand up guy?

Nr. 6 | posted by: anna | 27.12.2007 | 2:50:54 | [+] |

Þú ert nú að gleyma aðal manninum !

Segal var 41 þegar hann lék í stórmyndinni Under siege. Það er nú erfitt að finna einhvern sem er meira "þín týpa" ...

Nr. 7 | posted by: Hugz | 27.12.2007 | 13:34:07 | [+] |

Heyrðu, ég mis-owenaði þetta, ég meinti auðvitað Clive Owen í Children of Men. Ef ég hefði verið í Wilson-bræðrunum hefði ég frekar nefnt Luke enda sá klárlega myndarlegri. En Newman, mér finnst hann alltaf vera all around stand up guy en þegar ég rifja þetta svo betur upp þá man ég að hann var víst að leika svindlara / fanga / bankaræningja og tekist að gera þá svona afskaplega sympatíska ... En ef þér finnst Jimmy Stewart sætur þá er þetta náttúrulega auðleyst mál, nema þér fari bara að finnast hann sætur eftir að Hitchcock fer að leikstýra honum ...

Nr. 8 | posted by: Ásgeir H | 27.12.2007 | 17:56:42 | [+] |

Ég fíla Jimmy Stewart.. en hann hefur aldrei kveikt í mér smile

Fíla ekki Clive Owen og já ég held að Newman hafi verið fáviti í myndinni..

ÞESS VEGNA FÍLAÐI ÉG HANN Í HENNI! lol

Nr. 9 | posted by: anna | 27.12.2007 | 18:24:44 | [+] |

Harrison Ford sem Indiana Jones í Raiders of the lost ark

Nr. 10 | posted by: Agnes | 30.12.2007 | 17:28:39 | [+] |

Hann var mjög flottur, en mig langar ekki að giftast manni sem er með svona mikið endalaust vesen. Þá gæti ég alveg haldið áfram að vera með Ken!

Nr. 11 | posted by: anna | 30.12.2007 | 20:14:54 | [+] |


Jeff Bridges:

The Dude (The Big Lebowski)
Barney Cousins (The Vanishing)
Michael Faraday (Arlington Road)
Mark Powell (K-PAX) með Kevin Spacey smile
Starman (Starman)
Jack Forrester (Jagged Edge)
Turner Kendall (The Morning After)

Jeff er örugglega soldið skrýtinn .. leikur oft hálf furðulegt fólk ... en hann virkar traustur ... þrátt fyrir allt.

Kv. J

Nr. 12 | posted by: Sr. Jón | 31.12.2007 | 1:07:15 | [+] |

Ég hef alltaf fílað Jeff Bridges, hann er flottur. En ég hef aldrei fallið fyrir honum í bíómynd, ekki þannig..

Nr. 13 | posted by: anna | 31.12.2007 | 1:40:38 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web