Sunnudagur, 02. desember 2007
Ég var að útlista plön mín næstu árin fyrir nágranna mínum þegar hann stoppaði mig og sagði.. "en Anna, þú verður búin að finna mann áður en þú veist af, þú þarft að gera ráð fyrir því í þessum áætlunum".
Ég brosti. Hvað ertu búinn að segja þetta við mig í mörg ár Hugi?
Hann brosti til baka. Ég er bara búin að þekkja þig í þrjú.
Hann er semsagt búinn að segja mér á korters fresti, s.l. þrjú ár, að ég sé um það bil að fara að finna mann. Ég segi nei í hvert skipti og þá glottir hann bara eins og hann sé að hugsa "you'll see.. you'll see".
Jájá... we'll all see.
Ég veit að sumir veðjuðu stórum upphæðum á útlendinginn - en - tjah..
Hann gerði mig algjörlega afhuga sér í vikunni og á sama tíma fékk ég loksins mögulega skýringu á því af hverju þessi drop dead flotti gæji er ennþá á lausu.
Hann er nirfill.
Christ alive.. ég hef ekki áhuga á að eiga mann sem ég skammast mín fyrir af því hann er svo hallærislega cheap.
Að allt öðru. Eitt af því sem er á "to do" listanum og ég ætla að vera búin að klára innan tveggja ára er að finna og kaupa veggklukku fyrir íbúðina. Klukkan sem ég er með uppá vegg núna er eintak sem ég keypti þegar ég var unglingur að byrja að búa. Mér finnst hún ljót og hefur fundist lengi en ég hef hinsvegar ekki fundið aðra veggklukku sem mig langar að kaupa. Í vikunni steindrapst þessi klukka og þar sem mér hefur alltaf fundist óþægilegt að ganga með úr þarf ég eiginlega að hafa klukku uppá vegg heima hjá mér.
Hvar á Íslandi finn ég flotta veggklukku?