www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ég vona að það sé góð lykt af þér..
Þriðjudagur, 18. desember 2007

Þegar ég kom niður stóð hann í andyrinu íklæddur svörtum frakka. Hann brosti þegar hann sá mig.

Karlmenn sem koma útúr bílnum og bíða eftir mér niðri í andyri fá plús, samt getur það þýtt tvennt: maðurinn er player dauðans - eða - maðurinn er herramaður. Mér er persónulega alveg sama hvort er.. viðkomandi fær prik fyrir að gera þetta.

Hann byrjaði á því að bjóða mér í brunch á kaffihúsi, en ég afþakkaði. Næst skildi hann eftir geisladisk handa mér í móttökunni hjá Marel og nokkrum dögum seinna bauð hann mér á jólahlaðborð með vinnunni sinni. Það vakti áhuga minn. Það þarf karlmann með balls of steel til að bjóða konu á blint stefnumót með vinnunni, sérstaklega þar sem um stjórnanda er að ræða. Ekki það.. hann hefur auðvitað geta skoðað myndir af mér á vefnum og lesið það sem ég skrifa. Það þarf samt guts til að gera þetta. Ég vissi að ég gæti fengið alls kyns upplýsingar um viðkomandi, ef ég kærði mig um, þegar samstarfsfólkið væri komið á þriðja glas - og það var ekki séns í helvíti fyrir hann að þykjast vera eitthvað annað en hann er. Auðvitað sagði ég já, gegn því að við myndum ekki hittast áður, hann myndi ekki senda mér mynd af sér, hann myndi ekki gefa mér neinar gjafir af neinum toga á stefnumótinu og að hann myndi skila mér heim fyrir miðnætti.

Hann samþykkti.

Ef ég er að fara á blint stefnumót á annað borð vil ég ekki sjá mynd af viðkomandi áður. Ég hef örugglega minnst á það hérna, en fólk myndast mismunandi vel og það er mjög erfitt að festa persónutöfra á filmu. Ég vil sjá viðkomandi live, ekki á ljósmynd - auk þess vissi ég að hann væri myndarlegur. Hvernig vissi ég það? Jú.. þegar ég fór niður í móttöku að sækja geisladiskinn sem hann skildi eftir fyrir mig brosti konan í móttökunni til mín. Hún veit að ég er single og brosið hennar sagði mér allt sem ég þurfti að vita um hversu myndarlegur þessi maður er.

Þegar hann skráði sig +1 í jólahlaðborðið var hann spurður hver kæmi með honum. Hann sagði sannleikann, hann væri að koma með stelpu sem hann hefur aldrei hitt áður. Samstarfsfólkið lét spurningunum rigna yfir hann og hann sagði satt og rétt frá: vinkona hans, sem þekkir mig ekki, benti honum á mig.
Hvernig er það hægt?

Það er atriði sem hann gaf ekki upp.

Sá kvittur komst á kreik á vinnustaðnum að hann væri að koma með leikkonu með sér og þetta væri hoax, hluti af jólaskemmtuninni. Ég er ekki leikkona og þetta var ekki hoax.

Hann sótti mig korter í sjö og við fórum í heimahús þar sem allir hittust fyrir hlaðborðið. Þar spjölluðum við saman og við annað fólk. Á hlaðborðinu sátum við til borðs með frábæru pari og þegar við vorum búin að spjalla í um 20 mín spurði annað þeirra hvað við værum búin að vera gift lengi. Við héldum bæði að hann væri að grínast og svöruðum í kór "tíu ár". Kom í ljós að hann var ekki að grínast, var maki og vissi ekki af þessu svo við leiðréttum þetta og viðurkenndum að við hittumst í fyrsta skipti rétt um klukkutíma fyrr.

Þegar deitið mitt skilaði mér heim, hallaði hann sér rólega yfir mig og í nokkur augnarblik hélt ég niðrí mér andanum á meðan ég fann heitan andardrátt rétt við hálsinn á mér. Svo hallaði hann sér brosandi til baka.

Það er mjög góð lykt af þér.

Ég brosti til baka. Ég var búin að segja þér það.

Á leiðinni upp stigann tók ég upp símann.
Klukkan í símanum var nákvæmlega miðnætti.


| anna | 19:18 |
comments

þessi gaur er næstum því jafn skotheldur og undirritaður

Nr. 1 | posted by: þórður g | 18.12.2007 | 21:45:24 | [+] |

Svörtum frakka -- humh.

Nr. 2 | posted by: Organistinn | 18.12.2007 | 23:00:37 | [+] |

Þórður, áhugavert.

Organisti, hvað hefurðu við svartan frakka að athuga?

Nr. 3 | posted by: anna | 18.12.2007 | 23:04:51 | [+] |

Ekkert nema gott um svarta frakka að segja; hann hefur verið ansi flottur þarna í stigaganginum. Hvernig efni var í honum?

Nr. 4 | posted by: Organistinn | 18.12.2007 | 23:18:54 | [+] |

Þetta er vandaður ullarfrakki, mjög þægilegur viðkomu. Mikill smekkmaður á ferð. Gott ef hann var ekki sérsniðinn, maðurinn hefur svo breiðar og flottar axlir..

Hvað? Líst þér ekkert á hann?

Þarf að fara að sofa svo ég heyri betur í þér með þetta mál seinna, fundur í fyrramálið. Ég er búin að vera að undirbúa mig í allt kvöld og er að leka niður úr þreytu.

(ég skrifaði þessa færslu á sunnudaginn)

Nr. 5 | posted by: anna | 18.12.2007 | 23:24:41 | [+] |

Þú hefur þá rétt náð heim áður en álögunum létti...

(Svartur frakki ber annað hvort merki meðalmennsku eða góðs smekks, og ég er viss um að þú kannt að greina þar á milli smile)

Nr. 6 | posted by: AlanHudson | 18.12.2007 | 23:39:45 | [+] |

Hljómar vel -- so far. Ullin er klassísk, og þjóðleg líka ef útí það er farið. Náðirðu að sjá frá hvaða designer hann kom frá?

Nr. 7 | posted by: Organistinn | 18.12.2007 | 23:45:58 | [+] |

Þetta er ekki meðal Jón.

Nr. 8 | posted by: anna | 19.12.2007 | 6:15:49 | [+] |

Reyndar það sem mig grunaði.

Var einmitt að hugsa um að það kæmi varla neitt annað til greina en svartur frakki fyrir mann sem sækir Önnu í svona matarboð.

"Þegar ég kom niður stóð hann í andyrinu íklæddur grænum anórakk. Hann brosti þegar hann sá mig. Ha, erum við að fara að fjallgöngu, hugsaði ég."

"Þegar ég kom niður stóð hann í andyrinu íklæddur svörtum leðurjakka með skirtuna afhneppta niður á miðja bringu. Hann brosti þegar hann sá mig. Vá, hugsaði ég, hann þolir vel kuldann þessi, en ofsalega er hann með mikil bringuhár."

"Þegar ég kom niður stóð hann í andyrinu íklæddur grænni úlpu úr Vinnufatabúðinni. Hann brosti þegar hann sá mig. OMG, hann er líka nirfill, hugsaði ég."

Nr. 9 | posted by: Organistinn | 19.12.2007 | 9:48:30 | [+] |


Sæll söfnuður.

Mér þykir vænt um að sjá að bænir mínar hafa væntanlega haft áhrif. Þú hefur farið varlega með frakka manninn (tvöföld meining) og ekki farið með hann sem fórnarlamb það sem hann virtist ætla að verða. Hann og þú hafið greinilega hagað ykkur vel samkvæmt lýsingu þinni og taki maður mið af henni þá er allt eins ljóst að hvorugt ykkar er geðveikt. Nema náttúrulega að þú hafir sáð fræinu sem elur af sér geðveikina.

Vegna ullarinnar í frakkanum og óaðfinnanlegrar hegðunar myndarlega mannsins mætti samt alveg hugsa sér að hann sé úlfur í sauðargæru.

Hafðu varann á.

Nr. 10 | posted by: Séra Jón | 19.12.2007 | 15:52:15 | [+] |

Ja.. það er alveg spurning hvort við séum ekki bæði geðveik. Hann er farinn að hringja í mig out of the blue fyrir klukkan sjö á morgnanna og ég.. er ferlega ánægð doubt

Nr. 11 | posted by: anna | 19.12.2007 | 16:48:28 | [+] |

Jakki eða frakki skiptir það máli...já kannski og í þessu tilfelli var frakkinn greinilega alveg skotheldur. þér leið eins og öskubusku og vá hvað lyktin skiptir miklu máli í svona aðstæðum mmmmm ég vona þín vegna að hann hafi lyktað jafn vel og þú smile

Nr. 12 | posted by: Lilja | 19.12.2007 | 17:52:05 | [+] |

Takk fyrir falleg skrif í gestabókina mína Lilja. smile

Af því þú minntist á að þú veist aldrei hvort ég er að segja satt eða skálda.. það er mismunandi hvað er mikið satt af því sem ég skrifa - oftast eitthvað smá til í því, oft bæti ég við eða ýki hluti, en ótrúlega, ótrúlega oft.. þá þarf ég engu að bæta við.

Færslan hér að ofan er sönn. Hvert einasta orð. Eins ótrúlegt og það nú hljómar.

Já.. og útlendingurinn sækir í sig veðrið. Segist ekki vera nirfill og vill hitta mig í NY.

Karlmenn..

ps. ég tók gamalt Glitnis trix til að komast að því hvort deitið mitt lyktar vel. Varð ekki fyrir vonbrigðum.

Nr. 13 | posted by: anna | 19.12.2007 | 18:02:53 | [+] |

Lilja, við hérna í sókninni höfum þá stefnu að trúa öllu sem Anna segir. Þó er augljóst að hún er að ljúga þessu með að þýski verkfræðingurinn vilji hitta hana í New York. Allir sjá í gegnum það, og ekki síst svarti Frakkinn.

Nr. 14 | posted by: Organistinn | 20.12.2007 | 10:16:41 | [+] |

Það væri vissulega þægilegra fyrir mig, ef hann væri uppspuni og ef hann væri ekki að sækjast í að hitta mig í NY. Hann er hinsvegar ekki uppspuni og hann vill hitta mig þar.

Ég ætla ekki að hitta hann. Hvorki í NY eða annarsstaðar. Ég sendi honum póst þess efnis í gærkvöldi.

Ég hef í raun ekkert við mann að gera sem býr ekki á landinu. Þá get ég alveg eins haldið áfram að eiga engan.

Nr. 15 | posted by: anna | 20.12.2007 | 12:04:57 | [+] |

Snillingur sem þú ert smile

Nr. 16 | posted by: Lilja | 30.12.2007 | 3:52:09 | [+] |

Veit ekki hversu mikill snillingur ég er Lilja. Kannski voru þetta mistök. Ég á hinsvegar aldrei eftir að komast að því.

Nr. 17 | posted by: anna | 30.12.2007 | 16:16:43 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web