www.anna.is
ravings of a lunatic í desember 2007
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings song movie jokes cv
Eins og afi
Sunnudagur, 02. desember 2007

IMG_4999.jpg


Tíminn
Sunnudagur, 02. desember 2007

Ég var að útlista plön mín næstu árin fyrir nágranna mínum þegar hann stoppaði mig og sagði.. "en Anna, þú verður búin að finna mann áður en þú veist af, þú þarft að gera ráð fyrir því í þessum áætlunum".

Ég brosti. Hvað ertu búinn að segja þetta við mig í mörg ár Hugi?
Hann brosti til baka. Ég er bara búin að þekkja þig í þrjú.

Hann er semsagt búinn að segja mér á korters fresti, s.l. þrjú ár, að ég sé um það bil að fara að finna mann. Ég segi nei í hvert skipti og þá glottir hann bara eins og hann sé að hugsa "you'll see.. you'll see".

Jájá... we'll all see.

Ég veit að sumir veðjuðu stórum upphæðum á útlendinginn - en - tjah..
Hann gerði mig algjörlega afhuga sér í vikunni og á sama tíma fékk ég loksins mögulega skýringu á því af hverju þessi drop dead flotti gæji er ennþá á lausu.

Hann er nirfill.

Christ alive.. ég hef ekki áhuga á að eiga mann sem ég skammast mín fyrir af því hann er svo hallærislega cheap.

Að allt öðru. Eitt af því sem er á "to do" listanum og ég ætla að vera búin að klára innan tveggja ára er að finna og kaupa veggklukku fyrir íbúðina. Klukkan sem ég er með uppá vegg núna er eintak sem ég keypti þegar ég var unglingur að byrja að búa. Mér finnst hún ljót og hefur fundist lengi en ég hef hinsvegar ekki fundið aðra veggklukku sem mig langar að kaupa. Í vikunni steindrapst þessi klukka og þar sem mér hefur alltaf fundist óþægilegt að ganga með úr þarf ég eiginlega að hafa klukku uppá vegg heima hjá mér.

Hvar á Íslandi finn ég flotta veggklukku?


Læt þessa duga í bili
Sunnudagur, 02. desember 2007

wallclock.jpg

Fann hana í Húsasmiðjunni.


The Blues
Fimmtudagur, 06. desember 2007

Ég og ákveðinn karlmaður höfum rifist reglulega undanfarna daga því við erum ekki sammála um hvað við viljum gera í ákveðnu máli. Ég byrja daginn á því að fara niður til hans eða hann kemur upp til mín.. og tíu mínútum seinna erum við farin að rífast.

Þetta er ekkert smá hressandi.

Einn morguninn vorum við í smá pásu frá rifrildinu og farin að spjalla þegar hann spurði hvort ég kynni á hljóðfæri. Ég sagði nei. Ekki fengum við niðurstöðu í rifrildið frekar en fyrri daginn - enda mun það ekkert gerast fyrr en með vorinu. Annað kvöld mun ég hinsvegar syngja nokkur lög með með Blúsbandi Marel.

Ég sver.. ég veit aldrei hvað gerist næst í þessu lífi mínu.

Kannski þess vegna sem mér finnst það svona skemmtilegt.

Fyrsta æfingin með bandinu var í gær eftir vinnu og ég var ekki góð. Var ég að hugsa um að hætta við alltsaman en strákarnir voru ekki alveg á því. Var að koma af miklu betri æfingu með þeim áðan. Hef smá áhyggjur af því hvað ég er rosalega lengi að hita upp - og - að ég er ekki með fullan raddstyrk því ég var lasin um daginn.

En mikið svakalega finnst mér þetta gaman.

Þessir menn pikka upp ný lög á korteri.

Snillingar.


| anna | 22:42 | permalink | comments (1) | send to facebook |
Hún er svona
Föstudagur, 07. desember 2007

Blús kvöld Marel
Laugardagur, 08. desember 2007

Anna_2.jpg

Bandid_1.jpg

Anna_4.jpg

Bandid.jpg

Anna_Halli.jpg

Ég klikkaði á að vera með hatt.

Strákarnir í bandinu voru klikkað flottir, gerðu þetta ekkert lítið vel. Ég held að þeir sem komu hafi verið mjög sáttir. Mér fannst þetta alveg rosalega gaman og vona að ég fái að vera með næst líka.

Scuttle Buttin' (hér live með Stevie Ray Vaughan) fannst mér eiginlega vera lag kvöldsins og svo Nobody Knows You When You're Down And Out (hér live með Eric Clapton) sem maður að nafni Steinar Haraldsson söng, gerði það mjög vel.

Mig langar actually að eiga upptöku af þessum lögum eins og þeir tóku þau.
Hrikalega flott.


| anna | 13:01 | permalink | comments (8) | send to facebook |
Taken
Sunnudagur, 09. desember 2007

Eitt af því sem ég sakna mest við að vera gift er eiginlega "að vera gift". Ég hef svart/hvíta hugsun þegar kemur að þessu, þannig að þegar ég á mann, þá hætta aðrir karlmenn að vera til í mínum huga. Ef karlmaður reynir við mig get ég sagt "ég er gift", sýnt hringinn (þess vegna skiptir hringurinn máli) viðkomandi sér að mér er full alvara og hættir að reyna. End of story.

Að vera single er rosalega orkufrekt að þessu leyti. Þá þarf maður að hugsa í hvert skipti sem einhver reynir - einhver sem er ekki klárlega class A fáviti - og það tekur frá manni orku.

Þegar ég var unglingur byrjaði ég stundum með strák til að fá break frá hinum á meðan. Veit að þetta hljómar fáránlega en þetta er því miður bara satt. Mig langar ekki að byrja í sambandi á þeim forsendum - þó ég hafi stundum fundið löngun til þess bara til að fá frið. Í staðinn hef ég gert þetta stundum á blogginu þegar ég þarf virkilega á breiki að halda, skrifa inn nýjan mann og geri það svo sannfærandi að flestir halda að ég sé búin að finna mann.

Mig langar að eiga mann sem ég elska, ekki mann sem ég er með til að vera laus við aðra menn. Ástandið er ekki jafn slæmt núna eins og það var t.d. þegar ég var 17 - og ég geri mér grein fyrir því að þetta minnkar með árunum, sbr það sem afi sagði mér. Þegar ég felli skrautfjaðrirnar minnkar áreitið.

Málið er.. mér finnst það eiginlega ekkert leiðinleg tilhugsun. Ég hef fullt af fleiri hlutum going for me en útlitið og mig langar ekki að vera með manni sem sér ekkert annað en hvernig ég lít út hvort sem er. Ég held að aldurinn komi til með að vinna með mér þarna, hann kemur til með að filtera út menn sem eru hvort sem er bara að leita að barbie dúkku til að horfa á.

Ég er ekki barbie og mig langar ekki til að vera það.


Home
Þriðjudagur, 11. desember 2007

Ég skrifaði einu sinni um að mig langaði að finna "heim". Eva kommentaði á færsluna og sagðist ekki trúa að þetta "heim" væri til. Ég hef fundið þessa tilfinningu þannig að ég veit að hún er til, kannski langaði mig bara svo að finna hana að ég fann hana á röngum stað.

Ég held að Eva sé búin að upplifa það sem ég var að meina. Ég var búin að blokkera þessa hugsun - hætt að hlusta á hana - en þegar ég sat í bílnum mínum á leiðinni í vinnuna í morgun og heyrði þetta lag, varð ég svolítið blá. Mér finnst þetta fallegt lag og ég trúi að ég finni þetta líka einhvertíma, veit bara ekki hvenær... and I wanna go home.

Home

Another summer day
Has come and gone away
In Paris and Rome
But I wanna go home

Maybe surrounded by
A million people I..
still feel all alone
I just wanna go home
Oh, I miss you, you know

And I’ve been keeping all the letters that I wrote to you
Each one a line or two
“I’m fine baby, how are you?”
Well I would send them but I know that it’s just not enough
My words were cold and flat
And you deserve more than that

Another aeroplane
Another sunny place
I’m lucky, I know
But I wanna go home
Mmmm, I’ve got to go home

Let me go home
I’m just too far
from where you are
I wanna come home

And I feel just like I’m living someone else’s life
It’s like I just stepped outside
When everything was going right
And I know just why you could not
Come along with me
This was not your dream
But you always believed in me

Another winter day has come
and gone away
In even Paris and Rome
And I wanna go home
Let me go home

And I’m surrounded by
A million people I
Still feel alone
Oh, let me go home
Oh, I miss you, you know

Let me go home
I’ve had my run
Baby, I’m done
I gotta go home
Let me go home
It will all be all right
I’ll be home tonight
I’m coming back home


| anna | 18:13 | permalink | comments (5) | send to facebook |
Ég er hrædd
Fimmtudagur, 13. desember 2007

Og ég hata rok.


Sweet dreams
Föstudagur, 14. desember 2007

Dream a little dream of me

Stars shining bright above you
night breezes seem to whisper I love you
Birds singin' in the sycamore tree
Dream a little dream of me.

Say "nighty night" and kiss me
just hold me tight and tell me you'll miss me.
While I'm alone and blue as can be
Dream a little dream of me.

Stars fading but I linger on dear
still craving your kiss
I'm longing to linger til dawn dear
Just saying this:

Sweet dreams til sun beams find you
sweet dreams that leave our worries behind you.
But in your dreams
whatever they be
dream a little dream of me.

Stars fading but I linger on dear
still craving your kiss
I'm longing to linger til dawn dear
Just saying this:

Sweet dreams til sun beams find you
sweet dreams that leave our worries far behind you.
But in your dreams
whatever they be
dream a little dream of me.


Ég vona að það sé góð lykt af þér..
Þriðjudagur, 18. desember 2007

Þegar ég kom niður stóð hann í andyrinu íklæddur svörtum frakka. Hann brosti þegar hann sá mig.

Karlmenn sem koma útúr bílnum og bíða eftir mér niðri í andyri fá plús, samt getur það þýtt tvennt: maðurinn er player dauðans - eða - maðurinn er herramaður. Mér er persónulega alveg sama hvort er.. viðkomandi fær prik fyrir að gera þetta.

Hann byrjaði á því að bjóða mér í brunch á kaffihúsi, en ég afþakkaði. Næst skildi hann eftir geisladisk handa mér í móttökunni hjá Marel og nokkrum dögum seinna bauð hann mér á jólahlaðborð með vinnunni sinni. Það vakti áhuga minn. Það þarf karlmann með balls of steel til að bjóða konu á blint stefnumót með vinnunni, sérstaklega þar sem um stjórnanda er að ræða. Ekki það.. hann hefur auðvitað geta skoðað myndir af mér á vefnum og lesið það sem ég skrifa. Það þarf samt guts til að gera þetta. Ég vissi að ég gæti fengið alls kyns upplýsingar um viðkomandi, ef ég kærði mig um, þegar samstarfsfólkið væri komið á þriðja glas - og það var ekki séns í helvíti fyrir hann að þykjast vera eitthvað annað en hann er. Auðvitað sagði ég já, gegn því að við myndum ekki hittast áður, hann myndi ekki senda mér mynd af sér, hann myndi ekki gefa mér neinar gjafir af neinum toga á stefnumótinu og að hann myndi skila mér heim fyrir miðnætti.

Hann samþykkti.

Ef ég er að fara á blint stefnumót á annað borð vil ég ekki sjá mynd af viðkomandi áður. Ég hef örugglega minnst á það hérna, en fólk myndast mismunandi vel og það er mjög erfitt að festa persónutöfra á filmu. Ég vil sjá viðkomandi live, ekki á ljósmynd - auk þess vissi ég að hann væri myndarlegur. Hvernig vissi ég það? Jú.. þegar ég fór niður í móttöku að sækja geisladiskinn sem hann skildi eftir fyrir mig brosti konan í móttökunni til mín. Hún veit að ég er single og brosið hennar sagði mér allt sem ég þurfti að vita um hversu myndarlegur þessi maður er.

Þegar hann skráði sig +1 í jólahlaðborðið var hann spurður hver kæmi með honum. Hann sagði sannleikann, hann væri að koma með stelpu sem hann hefur aldrei hitt áður. Samstarfsfólkið lét spurningunum rigna yfir hann og hann sagði satt og rétt frá: vinkona hans, sem þekkir mig ekki, benti honum á mig.
Hvernig er það hægt?

Það er atriði sem hann gaf ekki upp.

Sá kvittur komst á kreik á vinnustaðnum að hann væri að koma með leikkonu með sér og þetta væri hoax, hluti af jólaskemmtuninni. Ég er ekki leikkona og þetta var ekki hoax.

Hann sótti mig korter í sjö og við fórum í heimahús þar sem allir hittust fyrir hlaðborðið. Þar spjölluðum við saman og við annað fólk. Á hlaðborðinu sátum við til borðs með frábæru pari og þegar við vorum búin að spjalla í um 20 mín spurði annað þeirra hvað við værum búin að vera gift lengi. Við héldum bæði að hann væri að grínast og svöruðum í kór "tíu ár". Kom í ljós að hann var ekki að grínast, var maki og vissi ekki af þessu svo við leiðréttum þetta og viðurkenndum að við hittumst í fyrsta skipti rétt um klukkutíma fyrr.

Þegar deitið mitt skilaði mér heim, hallaði hann sér rólega yfir mig og í nokkur augnarblik hélt ég niðrí mér andanum á meðan ég fann heitan andardrátt rétt við hálsinn á mér. Svo hallaði hann sér brosandi til baka.

Það er mjög góð lykt af þér.

Ég brosti til baka. Ég var búin að segja þér það.

Á leiðinni upp stigann tók ég upp símann.
Klukkan í símanum var nákvæmlega miðnætti.


Að kunna að lesa fólk
Miðvikudagur, 19. desember 2007

AB says: Ég vissi hvers konar skilaboð þú fengir úr móttökunni
AB says: og mig grunaði að þú myndir EKKI spyrja
Anna says: hehehe
Anna says: rétt metið
Anna says: hún sagði ekkert og ég spurði ekki
Anna says: það sem ég vildi vita var skrifað í andlitið á konunni
AB says: smile


| anna | 18:06 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Jólin koma..
Miðvikudagur, 19. desember 2007

Einkasonur: Vissirðu að jólin koma næsta mánudag?
Anna: Það er eitthvað rugl.
Einkasonur: Nei, þau koma þá.
Anna: Neinei. Það hljóta að vera minnst.. þrjár vikur til jóla.
Einkasonur: Nauts mamma, þau koma á mánudaginn!
Anna: Það getur ekki verið, ég er ekkert tilbúin til að halda jól á mánudaginn.
Einkasonur: Jólin koma hvort sem þú ert tilbúin eða ekki!
Anna: Þetta er einn stór misskilningur Doddi minn, jólin eru í næsta mánuði - held ég.
Einkasonur: JÓLIN KOMA Á MÁNUDAGINN! FACE IT MAMMA!
Anna: Castro frestaði einu sinni jólunum.
Einkasonur: MAMMA!

Eins og ég sé ekki búin að græja jólin.

Kommon.


| anna | 19:53 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Hættulegasta fólk í heimi..
Miðvikudagur, 19. desember 2007

..til að stofna til ástarsambands með er sennilega fólk sem trúir á ást við fyrstu sýn. Þeir sem trúa á ást við fyrstu sýn eru alltaf með opið fyrir þennan möguleika, ómeðvitað, og geta af þeim sökum ekki verið heilir í öðru sambandi en því sem varð til uppúr ást við fyrstu sýn. Af því þá hlýtur það að vera rétt.

Ég skil þennan þankagang. Ég trúði á þetta einu sinni. Upplifði það. En það sem ég upplifði reyndist jafn þýðingamikið og þáttur af Silfri Egils.
Allt þetta púður.. bara ryk. Þegar upp var staðið.

Ég trúi ekki á ást við fyrstu sýn.

En.. þetta er til, og þegar þú upplifir það áttu sennilega eftir að finna þig á sviði með míkrafón að syngja.


.. out of the blue

.. your heart on the line

.. got a lifetime guarantee

.. true love

.. true love

.. true love

.. true love

..it's gotta be true love


Góðir vættir
Fimmtudagur, 20. desember 2007

Ég ákvað að fara með krakkana í bæinn í kvöld að kaupa jólagjafir. Við fórum með strætó af því mig langaði ekki að eyða kvöldinu í að finna stæði, enda á að leggja í næstu götu og labba niður í bæ.

Þau áttu þetta alveg inni hjá mér krakkarnir, það er búið að vera mikið að gera í vinnunni undanfarið og ég hef lítið mátt vera að því að sinna þeim og heimilinu almennt.

Við keyptum þær gjafir sem ég var búin að ákveða að kaupa, líka belgískt súkkulaði og annað nammi, fundum kött í Skífunni og sáum ísbirni og mörgæsir í búðarglugga. Þegar við komum niður í Lækjagötu vorum við klyfjuð af pokum, öll orðin þreytt og ég stakk uppá að við myndum taka leigubíl heim. Það var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

Þegar leigubíllinn stoppaði fyrir utan heima fóru krakkarnir strax út en ég borgaði með korti. Kortagræjann datt í "beðið eftir sambandi" mode og með hálfa Reykjavík að strauja sátum ég og leigubílsstjórinn í rólegheitunum saman í bílnum og biðum. Skyndilega kviknaði á bílbeltaljósi afturí og hann brosti og bankaði aðeins í það. Sagði mér að það væri stundum eins og einhver sæti í einu sætinu afturí, þó það væri engin þar. Draugur?, spurði ég. Nei, sagði hann og brosti sallarólegur, draugar eru ekki til, þetta eru bara einhverjir góðir vættir sem hvíla sig þarna stundum.

Hann hafði varla sleppt orðinu þegar græjan náði sambandi og spýtti útúr sér miða.

Viltu kvittun?
Nei.. en þú mátt alveg biðja þessa góðu vætti í aftursætinu að kíkja við hjá mér af og til.
Þarftu á því að halda?
Ég held það, já.
Hugsaðu bara um að þeir séu hjá þér, og þá koma þeir.

Takk.

Mig langaði að kyssa þennan gamla mann á kinnina, en ég sagði bara gleðileg jól.

Það er ekki á hverjum degi sem maður fer í leigubíl og kemur heim með góða vætti með sér.


| anna | 21:51 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Á leiðinni
Laugardagur, 22. desember 2007

Það er leikur að lifa
Laugardagur, 22. desember 2007

Í dag tók ég eitthvað um tuttugu þúsund íslenskar krónur og breytti þeim í mat. Þegar við vorum búnar að ferja þetta inní andyri máttum við burðast með þetta alla leið uppá fimmtu hæð eftir að frumburðurinn neitaði að taka í mál að halda jólin í andyrinu, þar sem maturinn var.

Mér leið allavega eins og þetta væru fimm hæðir.

Þegar við vorum búnar í Bónus fórum við í nýju Krónu búðina útá granda og komumst að því af hverju engin var í Bónus. Það eru allir í Krónunni, enda er það helvíti góð búð.

Ég var að setja epli í poka og útskýra fyrir frumburðinum að ég yrði að kaupa mandarínur, þó engin á heimilinu borðaði þær nema ég - og þó við ættum tvo kassa fyrir, þegar Egill sjálfur úr Silfri Egils kom að og spurði "Ert þú ekki Anna?"

Ahah! Ég vissi það allan tímann! Fólkið í sjónvarpinu getur séð mann! Svo segja læknar að ég sé paranoid..

Annars kalla ég hann góðan að hafa þekkt mig, ég var nefnilega í dulbúningi. Hafði ekki einu sinni rænu á að óska honum gleðilegra jóla. Kannski fæ ég tækifæri til þess annarstaðar.

Þegar við vorum búnar að versla keyrði ég óvart inná bílaplanið við hliðiná Krónunni. Risastórt og engir bílar. Ég sver.. veit ekki hvað kom yfir mig.. en ég fór að gefa í og láta bílinn slæda í hálkunni. Í sætinu við hliðiná mér sat frumburðurinn sallarólegur (vegna þess að ég var ekki að fara neitt hratt) og sagði "eh.. mamma. Hvað ertu eiginlega að gera?"

Ég er að leika við Z German! Vííííííííí

Þetta hefur sjálfsagt verið alveg ógeðslega fyndin sjón vegna þess að ég var í alvöru ekki að fara hratt. "Amma slettir úr klaufunum" pathetic dæmi eitthvað - en gaddem hvað mér fannst gaman. Þetta er ekki svona gaman á framhjóladrifnum bíl.

Við fórum á bensínstöð dauðans á leiðinni heim og þegar ég kom aftur inní bílinn, leit ég á frumburðinn og sagði: veistu hvað mig langar að gera núna?
Hún hristi höfuðið. Mig langar að fara aftur á planið hjá Krónunni að leika við Zgerman.

Hún fór að hlæja.

Ég keyrði heim og hún spurði af hverju ég hefði ekki farið aftur á planið hjá Krónunni.
Sagði henni að ég væri að hugsa um að fara í kvöld, seint.

Hún fór að hlæja.


| anna | 15:35 | permalink | comments (0) | send to facebook |
Fýlusleikir
Laugardagur, 22. desember 2007

Seinnipartinn fór ég að sækja einn fjölskyldumeðlim sem hafði verið hjá vini sínum í heimsókn í allan dag, en það kom svolítið uppá og hann fór í svakalega fýlu.

Ég var búin að reyna allt sem ég gat til að ná til fýlupúkans, en hann lokaði sig á endanum inná baði og vildi ekki tala við neinn.

Hvað er hægt að gera?

Það er nú það.

Vissu þið að upprunalega voru jólasveinarnir 38 talsins? Það er satt. Árið 1729 var tekin ákvörðun á Alþingi um að senda 25 jólasveina í útlegð vegna þess að þeir þóttu of "óþjóðlegir". Vildu ekki vera með skegg og eitthvað þannig ves. Nema stundum sjást þessir jólaveinar í bænum og þá þykjast þeir vera einhver af hinum þrettán, þó einkenni þeirra komi oftast upp um þá.

Ég vissi ekkert um þetta fyrr en í kvöld. Sat í öngum mínum við eldhúsborðið að reyna að finna út leið til að ná til fýlupokans inná baði þegar einhver bankaði létt á gluggann og hleypti sér svo inn í gegnum svalahurðina eins og ekkert væri eðlilegra. "Gott kvöld kona góð, ert þú í svona ljúffengri fýlu?" sagði hann og svo þefaði hann útí loftið þangað til hann fann greinilega einhverja lykt. Hann svoleiðis galopnaði augun og elti lyktina inná bað þar sem hann fann fyrir litla fýlupúkann. Ég heyrði hann tilkynna litla fýlupúkanum að hann væri Fýlusleikir, einn af lítt þektari jóalsveinum landsins sem er búinn að vera í útlegð síðan árið 1729 vegna þess að hann vill ekki hafa skegg og finnst gaman að ganga um í bleikum leggings sokkabuxum (spes).

"Hryllilega er þetta gómsæt fýla sem þú ert í", sagði hann, "má ég smakka?" svo byrjaði hann að sleikja fýlupúkann uppúr og niðrúr og allt um kring.

Litli fýlupúkinn fór að brosa, því þetta kitlaði soldið og þegar Fýlusleikir hafði sleikt alla fýluna úr honum fór litli fýlupokinn minn að hlæja, enda öll fýla farin úr honum. Þá tók ég hann í fangið og kyssti hann og hann faðmaði mig til baka.

Fýlusleikir missti allan áhuga á okkur þegar hann hafði sleikt fýluna í burtu, kvaddi og sveiflaði sér frammaf svölum til að leita að öðrum litlum fýlupúka sem er orðinn soldið þreyttur á að bíða eftir jólunum.

Ég er viss um að hann á eftir að redda málunum á fleiri heimilum í kvöld og á morgun..


| anna | 20:37 | permalink | comments (3) | send to facebook |
Thank you baby
Sunnudagur, 23. desember 2007

| anna | 15:10 | permalink | comments (4) | send to facebook |
Gleðileg jól
Sunnudagur, 23. desember 2007

| anna | 21:23 | permalink | comments (8) | send to facebook |
It's a wonderful life
Þriðjudagur, 25. desember 2007

its_a_wonderful_life.png

Verið góð við fólkið sem ykkur þykir vænt um.

Þetta er svo yndislegt líf.


Ég þarf hjálp..
Miðvikudagur, 26. desember 2007

Ég var að taka saman lista yfir karlmanns týpur sem höfða til mín í bíómyndum.

George Clooney í Out of Sight
-glæpamaður

George Clooney í From Dusk 'till Dawn
-mjög geðsjúkur einstaklingur

Jude Law í Gattaca
-hrokafullur fáviti

Jack Nicholson í Something's Gotta Give
-miðaldra fáviti

Alan Rickman í Die Hard
-sikkópati

Kevin Spacey í American Beauty
-lífsleiður miðaldra maður

Kevin Spacey í The Ref
-lífsleiður miðaldra maður

Bill Murray í Groundhog Day
-hrokafullur fáviti

Jude Law í Enemy At The Gates
-einfeldningur

Jack Nicholson í Witches Of Eastwick
-djöfullinn sjálfur

Jeff Bridges í The Fisher King
-class A fáviti

Þetta skýrir svo margt.

Tveir karakterar þarna taka reyndar út einhvern þroska í bíómyndinni og enda sem frekar eigulegir einstaklingar.

Jack Nicholson í Something's Gotta Give
-endar sem alveg frábær eiginmaður

Bill Murray í Groundhog Day
-endar sem alveg frábær kærasti

Þessir karakterar hafa allir traits sem mér finnst eftirsóknarverð, en enginn hefur allan pakkann - nema reyndar Jack í Something's Gotta Give, en hann er of gamall til að ég geti notað hann. Hann er actually eini karakterinn sem ég hef séð í bíómynd og fallið fyrir - en sökum verkefnis sem ég fékk uppí hendurnar um daginn þarf ég að finna góða leading man týpu úr bíómynd, á mínum aldri. Einhvern sem mér finnst hot og einhver sem er ekki fáviti.

Einhverjar tillögur?

Þetta er ekki fyndið. Ég fell ekki einu sinni fyrir fictional karakter... nema hann sé fáviti.


Fyndið..
Fimmtudagur, 27. desember 2007

vlcsnap-8013926.png

..hvað þetta litla atriði skiptir mig miklu máli.


Jólapúsluspilið í ár..
Föstudagur, 28. desember 2007

Ég gafst uppá að leita að leading man sem er ekki fáviti og ég get fallið fyrir, komst ég að því að þessi maður hefur einfaldlega aldrei verið skrifaður fyrir hvíta tjaldið og leikin af manni sem mér finnst eitthvað varið í - svo ég skrifaði hann sjálf, með minn eigin leikara í huga.

Það sem ég skrifaði kom mér verulega á óvart.

Hann er mest megnis soðinn saman úr þremur mönnum: gæludýri, ljóni og svörtum frakka - þó fleiri komi við sögu. Þessir þrír eru burðarvirkið.

Svarti frakkinn var síðasta púslið sem mig vantaði og nú veit ég hvernig mann ég vil.

Annars stend ég frammi fyrir því að bloggið mitt er stolin tími. Mér finnst gaman að blogga því hér get ég leikið mér. Því miður er ég fullorðin manneskja með allskonar skuldbindingar sem ég vil líka standa við svo sennilega mun ég blogga eitthvað minna á næstunni en ég hef gert undanfarið.

Ég finn mest til með börnunum mínum. Ég tek þetta út á þeim þegar ég blogga lítið. Um daginn þegar við vorum að borða kjúkling sagði ég þeim að ég hefði gleypt lítinn kött á leiðinni útí Melabúð í svaka roki - hann fauk uppí mig og ég kyngdi honum. Óvart. Þegar þau trúðu mér ekki náði ég í skeið og stakk henni undir peysuna og sagði "sjáiði.. nú er hann fúll. Kannski finnst honum kjúklingur vondur".

Þau eru búin að taka köttinn í maganum í sátt núna, en það voru ekki allir sáttir fyrst, eða eins og einkasonurinn orðaði það "MAMMA! ÞETTA HEFURÐU UPPÚR ÞVÍ AÐ VERA MEÐ LJÓNI!"

Svo sagðist hann reyndar alveg vera til í að eignast lítið systkini.

En ég er ekki ófrísk! Ég er bara með kött í maganum sem ég gleypti óvart í roki!
--

Þið skiljið hvað ég er að fara - pray for them..


Árið 2007
Mánudagur, 31. desember 2007

Snemma á árinu ákvað ég að gifta mig aftur, nema ég giftist banka í þetta skipti - nánar tiltekið.. Glitni.

Ég fór fljótt að stalka einn af yfirmönnum mínum en honum fannst það bara sætt og ég reyndi að koma til móts við þarfir hans. Ég átti ekki mikið líf fyrir utan vinnuna hjá Glitni og það skipti í raun ekki máli, ég var að vinna með svo skemmtilegu fólki.

Í júní fór ég til Spánar með vini mínum sem reddaði húsi og þar lá ég á svölunum í sólbekk í tvær vikur. Ég fæ tanorexíu á svona stað og það eina sem vakti athygli mína var Bentley.

Um sumarið fann ég mann sem batt enda á andskoti langt skírlífsbindindi. Komin tími til. Hann var gæludýrið mitt í nokkrar vikur, þá sleppti ég honum útí náttúruna en lærði að það eru ekki allir menn hálfvitar því þessi maður kom verulega vel fram við mig.

Ég hljóp fokking tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis sem var haldið í bongó blíðu þann 18. ágúst. Það er nú eiginlega Snorra að þakka að ég komst alla leið og ég hélt að ég væri dáin þegar ég kom í mark. Ég ætla að hlaupa næst líka. Þetta er ekkert smá gaman.

Um haustið fann ég ljónastrák sem vildi gerast verktaki hjá mér. Tók að sér að kúra við mig og vera almennt séð góður við mig. Ég er ljóninu ævinlega þakklát fyrir að kúra og kela við mig, strjúka mér og kyssa endalaust. Ég held að ég hafi þurft á þessu að halda - og lærði að það eru til menn sem vilja vera svona góðir við mig. Ég þurfti að læra það.

Stuttu eftir að ég hitti ljónið fékk ég símtal og var boðið í hádegisverð á Salt. Það var ekki auðveld ákvörðun að skilja við Glitni, það var erfiðasta ákvörðun þessa árs en þetta var of spennandi tækifæri til að ég gæti hafnað því og ég ákvað að henda mér í djúpu laugina og fór að vinna hjá Marel. Trúi að árið 2008 verði verulega skemmtilegt ár, vinnulega séð.

Ég keypti mér bíl á árinu og það er fjárfesting sem ég hef ekki séð eftir. Ljónabíllinn fékk gott heimili.

Hárið á mér síkkaði töluvert á árinu, aðallega vegna þess að ég er löt að fara í klippingu og líka vegna þess að konan sem klippir mig hefur harðneitað að klippa mig stutt. Ég hef aldrei verið með svona sítt hár áður og er ekkert á leiðinni að fara að klippa það af. Þetta fer mér sæmilega og ég þarf lítið að hafa fyrir því - nema þegar ég vil hafa það slétt, sem er ekkert svo oft. Ég er með of liðað hár til að ég nenni að díla við það stutt. Skárra að vera með sítt hár en að líta alltaf út eins og reitt hænurassgat af því ég nennti ekki að blása á mér hárið á morgnanna. Þetta er einn af þeim fjölmörgu kostum við að þekkja sín takmörk - og af því ég þekki þau ekki fékk ég mér hárgreiðslumeistara sem þekkir mín takmörk og hlustar ekki á það sem ég vil, heldur gerir það sem mér er fyrir bestu.

Hvað gerði ég meira.. já! Ég lét setja nýja mynd í debetkortið mitt, sem var töluvert afrek. anna.is var tilnefndur besti einstaklingsvefurinn hjá Svef en vefurinn icomefromreykjavik.com vann í þetta skipti. Mér fannst samt sætt að þeir skyldu tilnefna mig.

Ég keypti svakalega mikið af fötum á árinu sem ég hef fitnað uppúr svo nú á ég fulla skápa af fötum sem ég passa ekki í, eins gaman og það er. Þetta var ekki mötuneytið hjá Glitni. Þetta var kexið, útlandanammið, kókið og prins pólóið. Ég tók ákvörðun um að vera ekki í mötuneytinu hjá Marel, það er ekkert kex, ekkert kók og ekkert prins póló og ég er strax byrjuð að léttast.

Reyndar neyddist ég til að taka aftur upp mega heilsusamlegt líferni fyrir stuttu síðan. Ég lá í sófanum eitt kvöldið, sofandi, þegar síminn minn hringdi. Í símanum var blaðamaður sem vildi taka viðtal við mig um heilsu. Ég var sofandi og sagði "jájá no prob".

Þegar ég skellti á settist ég upp í sófanum og starði í tómið í örfáar sekúntur að ná fókus á sjónina og ná utanum hvað ég hafði samþykkt að gera. Því næst kveikti ég mér í sígarettu og helti mér kók í glas og hugsaði "jæja.. þá er þetta búið". Daginn eftir endurnýjaði ég kortið í ræktinni, er búin að fara annan hvorn dag eða daglega og hef lifað á grasi og vatni síðan. Þar sem ég er dottin í heilsulífernið aftur mun ég sennilega passa aftur í fötin mín eftir nokkrar vikur svo ég er ekkert að kvarta yfir þessu. Þetta var á dagskrá hvort sem er.

Ég hitti Jude Law í eigin persónu á þessu ári og fékk móral yfir því að ég væri búin að nota þennan einstakling sem karakter á síðunni minni. Það entist í korter. Who cares hvað ég skrifa um Jude Law? Seriously.

Margeir dó og lifnaði við aftur. Ég veit ekki hvar hann er núna og mér er sama. Ég sakna Lifur.

Ég keypti mér tvo 22' skjái á árinu og get ekki sagt að ég sjái eftir þeirri fjárfestingu. Maður getur ekki haft of mikið skjápláss og sennilega mun ég bæta þriðja við innan þriggja ára.

Á árinu skoðaði ég brúnkukrem og prufaði mökk af þeim. Af einhverjum ástæðum hef ég ákveðið að nota ekkert af þeim og ég tók til! Shit hvað ég tók mikið til. Henti fullum sendiferðabíl af drasli.

Ég endaði non samband við mann sem er búinn að vilja hitta mig síðan árið 2005. Ég fattaði að ég vil ekki eiga mann sem er ekki á landinu, get alveg eins haldið áfram að eiga engan.

Halló! Ég tók bókhaldið mitt í gegn! Vá hvað ég er stolt af sjálfri mér og þetta var miklu minna mál en ég reiknaði með, auk þess sem ég komst að því að ég er betur stæð en ég reiknaði með. Það er nú aldrei leiðinlegt.

Ég söng á fyrsta blúskvöldi Marel í desember og skemmti mér alveg þrusu vel. Stuttu síðar fór ég á stefnumót með manni sem var í svörtum frakka og að leita að ást við fyrstu sýn. Þennan stutta tíma sem ég eyddi með honum leið mér alveg stórfurðulega, get sennilega ekkert útskýrt það hér en þetta var eins og ég væri fullkomlega örugg á allan hátt en samt ekki að tengja við neitt. Eftirá að hyggja var hann kannski á stað sem hefur alltaf verið lokaður og þess vegna erfitt fyrir mig að átta mig á hvað þetta var, ég veit það ekki. Þetta var allavega nýtt. Hann hlustaði á mig og var verulega góður við mig án þess að honum virtist finnast það neitt tiltökumál. Hann hjálpaði mér og studdi mig - við erum að tala um að ég þekkti manninn í tvær vikur, varla það. Hann gerði allt þetta á svo eðlilegan hátt að það var aldrei yfirþyrmandi eða óþægilegt. Þetta var bara.. eðlilegt.

Á stefnumótunum okkar, sem voru tvö, leiddi hann mig í hálku án þess að horfa vandræðalegur í kringum sig, hann snerti öxlina mína þegar við sátum til borðs - eins og það væri fyrir hann, ekki mig. Það skiptir mig miklu máli að vera með manni sem hefur þörf fyrir að snerta mig og gerir það. Ljónastrákurinn kynnti mig fyrir þessu og af því ég var ekki vön svona tók ég sérstaklega eftir því. Ef ég sat hjá ljónastráknum þá þurfti hann að snerta mig, bara smávegis, öxlina, höndina, eitthvað. Ekki of mikið, ekki of lítið. Alveg passlega. Ég vil mann sem hefur passlega snertiþörf.

Séra Jón Borderline sagði mér að ég væri að gera mér óleik með að eiga ljón fyrst ég væri tilbúin að eignast mann því þá væri ég ekki að leita, sem er rétt hjá honum nema.. ég vissi ekki hvernig mann ég vil - eða.. ég taldi mig ekki vita það. Þegar ég var hætt að hitta svarta frakkann fór ég hinsvegar að skoða það mál og nú veit ég hvernig mann ég vil. Áður en ég fann svarið missti ég hinsvegar fyrst trú á þessu öllu og varð allt í einu algjörlega lost. Skildi ekki af hverju ég var svona out of whack. Það tók mig nokkra daga að púsla mér saman aftur - en ég veit hvað ég vil. Það þýðir að ég er tilbúin að finna það.

Þegar ég byrjaði að skrifa þessa samantekt fannst mér ég ekkert hafa gert á þessu ári.

Merkilegt.

Ég er búin að gera mökk af skemmtilegum hlutum, ég er actually ennþá á lífi þrátt fyrir háan aldur og ef ég held áfram að vera svona dugleg í heilsunni þá á ég eftir að lifa löngu eftir að heilinn er hættur að fúnkera!

Vúhú!

Það gæti orðið soldið skemmtilegt blogg sem kæmi útúr því..


Norðurljós
Mánudagur, 31. desember 2007

gledilegjolnordurljos.png


| anna | 12:35 | permalink | comments (1) | send to facebook |

ravings í desember 2007
monthly archive

links
blogs
links - web