www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ekkert af eftirfarandi er satt - það er ekki lygi
Laugardagur, 17. nóvember 2007

Ég gaf Margeiri óvart skorpu að borða eftir miðnætti og hann fjölgaði sér.
Alveg týpískt af honum að gera mér þetta. Nú eru sjö Margeirar hérna.

Ég fann hvernig ég byrjaði að fá taugaáfall og fór strax að fálma eftir hníf eða einhverju sem ég gæti notað til að fá útrás - þegar einhver hringdi dyrabjöllunni. Var ekki póststrákurinn mættur með gríðarlega stóra glerkistu sem hann vildi að ég kvittaði fyrir. Þegar ég hafði fullvissað mig um að ég þyrfti ekki að borga krónu fyrir kistuna kvittaði ég. Varð að sýna honum vegabréf og alles. Ég mátti náttúrlega ekkert vera að því að pæla í þessari kistu, fór strax að leita að wd-40 eða einhverju öðru til að spreyja Margeirana með - nema þá hringdi bjallan aftur! Í þetta sinn var gömul kona við dyrnar með körfu fulla af ljótum eplum og hún vildi gefa mér eitt til styrktar vængbrotnum leðurblöku ungum í Chile.

Meina.. ég gat ekki sagt nei.

Ég valdi skársta eplið og ætlaði að kveðja hana en þá neitaði hún að fara fyrr en ég væri búin að taka bita. Sagði að í Chile trúa þau að.. æ ég man þetta ekki - eitthvað.. "hver biti getur bjargað" bla... skiptir ekki máli. Ég tók einn bita af eplinu fyrir helvítis kellinguna nema hann hrökk ofaní mig. Veiddi þá ekki kellingaróbermið félagsskírteini í vondunornafélaginu uppúr flíspeysunni og hálf tróð því framaní mig. Svo fór hún að hlæja og hló og hló og hló. Vá hvað þetta var spes. Sennilega hefur hún ruglast og ætlaði í stigaganginn á númer 51. Það býr einmitt stelpa þar á 2. hæð með sjö dvergum. Náði ekki að segja norninni það því ég var of upptekin við að kafna á eplinu. Þegar hún var búin að hlæja kom smá neyðarleg þögn og svo fór hún.

Ég náði í bíllyklana og ætlaði að fara uppá slysó, reyndi að sýna Margeirunum með látbragði og köfnunarhljóðum að ég væri að deyja - nema einn Margeirinn náði í fondue prjón, sagði hinum að halda mér fastri (sem þeir gerðu) svo stakk hann prjóninum ofaní kokið á mér og veiddi bitann úr eplinu upp! Ég held að ég hafi aldrei verið svona hrædd eins og þegar hann reiddi prjóninn á loft og lét hann svo vaða. Úff.. Óska ykkur ekki að upplifa þetta - en hann bjargaði lífi mínu svo ég ætla að halda þessum. Merkti hann. Hann er þessi sem er með fondue prjón fastan í lærinu.

Ohh.. ohh... þetta er svo augljóst núna!

Sjö dvergar!

Ég er búin að fatta þetta allt saman! Var að skoða kistuna og get alveg hugsað mér að liggja í henni ef það er það sem þarf. Hvað var hún þarna.. stelpa lengi í kistunni áður en dró til tíðinda? Man það einhver? Ætli maður verði komin úr barneign?

Hvað? Ég er bara að spá..

Vá.. kannski ætlaði hún ekkert einusinni á númer 51! Kannski átti þetta að gerast svona allan tímann! Það myndi reyndar skýra margt.

Hey! Nú þarf ég ekki að máta fleiri skó - because this is not from Cinderella, that's from Snow White!

thatstheway.jpg

Some day my prince will come
Some day I'll find my love
And how thrilling that moment will be
When the prince of my dreams comes to me

Though he's far away
I'll find my love some day
Some day when my dreams come true

Some day I'll find my love
Someone to call my own
And I'll know the moment we meet
For my heart will start skipping a beat

Though he's far away I'll find my love some day
The day when my dreams come true.
--

Ég hef nú alveg prufað þægilegri kistur en þessa.

The things I do for love.


| anna | 1:04 |
comments

The things we do for love, the things we do for love

Like walking in the rain and the snow when there's nowhere to go
When you're feeling like a part of you is dying
And you're looking for the answer in her eyes

Nr. 1 | posted by: svenni | 18.11.2007 | 5:05:17 | [+] |

Gott lag smile

Nr. 2 | posted by: anna | 18.11.2007 | 15:50:54 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web