Laugardagur, 17. nóvember 2007


Ég tók þessa mynd af mér, mömmu og Valda bróður áðan.
Valda finnst ég vera aumingi og segir að þetta endi á því að ég pipri. Ég sagði honum að ég væri nú búin að eiga ljón í smá tíma og gæludýr þar á undan. Þá sagðist hann ætla að gefa mér tvo froska sem hann þarf að losa sig við.
Ég er ennþá að reyna að ná samhenginu.
Ef hann gerir alvöru úr þessu mun ég auglýsa tvo froska gefins hérna á síðunni.
Þeir eru í búri. Ef engin vill þá mun ég slátra þeim.
Þeir verða allavega ekki kysstir.
Ég er að ganga í gegnum eitthvað skeið núna með þessar myndir. Held að málið sé að ég hef aldrei áður átt síma með nógu góðri myndavél til að ég nenni að taka myndir á hann. Hlýtur að vera eitthvað svoleiðis. Kannski breytist anna.is í myndablogg. Kannski ekki. Það er vonlaust að sjá fyrir hvað mér dettur í hug að gera.