Sunnudagur, 11. nóvember 2007
Frumburður: Vildirðu ekki bíl með geislaspilara sem virkar?
Anna: jú, það er alveg krúsjal mál
Frumburður: Ég hef smá áhyggjur af því að við eigum aldrei eftir að hlusta á tónlist aftur þegar við erum í bílnum.
Anna: nú? Af hverju?
Frumburður: Vegna þess að þetta er í þriðja skipti í dag sem ég sit með þér í bílnum og þú slekkur á tónlistinni til að hlusta á VÉLINA Í HONUM!
Anna: Finnst þér það ekki æðislegt hljóð?
Frumburður: NEI!
Anna: sssshhh bíddu..
Anna: ég held að hann sé að reyna að segja mér eitthvað
Frumburður: MAMMA!