A long time ago..
Föstudagur, 09. nóvember 2007
Það gerðist fleira kvöldið sem ég hringdi í manninn sem ég vildi ekki fara á deit með. Svolítið sem samtalið við hann hafði bein áhrif á.
Seinna um kvöldið fór ég nefnilega að hitta mann sem mig hefði ekki grunað að ég færi að heimsækja ef einhver hefði sagt mér það fyrir viku síðan. En svona er lífið, hann hafði samband og bað mig að koma. Ég ákvað að klára þetta og hitta manninn sem ég blúsaði yfir í tvö ár eftir að við hættum saman.
Anna says: jæja Harpa
Anna says: ég er að fara að hitta *censored*
Harpa says: af hverju í andskotanum??
Anna says: til að fá closure
Harpa says: ég hélt að þú þyrftir nú ekkert endilega að hitta hann til þess
Anna says: jú ég þarf að hitta hann til þess
Harpa says: ég held að þú sért að leika þér að eldinum, sem þú ræður ekkert við
Harpa says: ég nenni ekkert að hafa þig grenjandi yfir honum aftur
Anna says: æ
Harpa says: ég vissi þetta
Harpa says: damnit
Anna says: ég skal ekki bögga þig með þessu
Harpa says: nei ég var ekki að meina þetta svona
Harpa says: hvenær ætlar þú að hitta hann?
Anna says: eftir nokkrar mín
Harpa says: ég trúi ekki að þú sért að fara þangað
Harpa says: þú verður að hætta að láta hann ná svona til þín Anna
Anna says: ég verð að vita hvort ég er laus
Harpa says: Þú ert laus! Þú talar aldrei um hann lengur!
Anna says: en ég hef ekki hitt hann heldur
Harpa says: ÞÚ HÖNDLAR ÞAÐ EKKI ANNA
Harpa says: þú hefur oft talað um að þetta sé búið áður
Harpa says: og hvað gerist?
Harpa says: ha?
Anna says: treystu mér
Anna says: ég þarf að gera þetta
Anna says: ég veit hvað ég er að gera
Harpa says: þú færð aldrei neitt closure frá þessum manni
Anna says: það kemur í ljós
Anna says: i'm gone
Harpa says: hvað ætlar þú að vera lengi?
Anna says: veit það ekki
Harpa says: ÞÚ SEFUR EKKI HJÁ HONUM
Anna says: oh come on
Anna says: mig langar ekki til þess
Harpa says: hversu oft hef ég heyrt þetta áður..
Anna says: trust me on this
Harpa says: ég verð vakandi frameftir ef þú þarft að tala á eftir
Anna says: takk
Anna says: takk fyrir það harpa
Harpa says: eða gráta
Anna says: alveg.. fifty percent chance there
Anna says: 
Harpa says: 
Anna says: heyri í þér á eftir
Harpa says: já
Ég fer alltaf fótgangandi til hans, enda stutt að fara. Ég vissi ekki hvað ég ætlaði að segja við hann en það var aukaatriði - ég hef aldrei geta talað við hann um neitt sem skiptir máli hvort sem er.
Ég vissi hinsvegar alveg til hvers ég var að fara.
--
Drama?
Ást er fricking drama.
--
Það var skrítið að koma heim til hans aftur, en ég vissi samt einhvernvegin alltaf að ég ætti eftir að koma þangað one last time. Ég opnaði útidyrahurðina eins og venjulega, lokaði á eftir mér. Gekk upp stigann.. vissi ekki hvar hann var í íbúðinni en þegar ég sá hann beið ég eftir að ég myndi finna sting í hjartanu eða maganum eins og gerist alltaf þegar ég sé hann. Ekkert gerðist. Ég settist og var mjög.. viðskotaill fyrst. "Örg", eins og hann orðaði það. Enda var ég í vörn - hrædd um að ég hefði rangt fyrir mér - að hann hefði ennþá þessi sömu áhrif á mig sem hann hafði alltaf. Á meðan við töluðum saman horfði ég í augun hans. Ég beið og ég beið og ég beið og ég beið og ég beið.. en ekkert gerðist.
"Lofaðu mér að vera hamingjusöm Anna, lofaðu mér að þú eigir eftir að fara eftir eigin sannfæringu". Mér finnst hann ennþá myndarlegur. Mér finnst hann skemmtilegur. Hann hefur húmor sem ég fíla og sennilega hefðum við orðið ágætt par ef ég hefði náð til hans. Hann hefur bara aldrei hleypt mér að sér og ég hef aldrei verið hluti af honum, á sama hátt og hann var hluti af mér.
Nema.. hann er ekki hluti af mér lengur. Sama hvað ég horfði lengi í augun á honum þetta kvöld, hann náði ekki til mín. Eftir allan þennan tíma, alla þessa vanlíðan og sorg..
Og svo er það bara horfið. Mér á eftir að þykja vænt um hann samt sem áður og vona að honum gangi vel, veit nú ekki hvurslax róbot ég væri ef mér yrði sama um einhvern sem ég hef haft svona miklar tilfinningar til, en ég elska hann ekki lengur. Ég get actually horft í augun á þessum manni og haldið sönsum. Þið megið alveg gera grín að mér í kommentunum, en þetta var stórt móment fyrir mig. Það liðu tæp tvö ár eftir að við hættum saman áður en ég gat hugsað mér að svo mikið sem horfa á aðra menn.
Reyndar var það nú frekar jákvætt - þó ég ætli ekki að neita mér um snertingu í svona langan tíma aftur. Ég gerði mikið af góðum hlutum á þessum tíma og finnst ekkert átakanlega leiðinlegt hvar ég er stödd í dag, en ég hef aldrei verið svona heartbroken áður. Vona að ég verði það ekki aftur.
Við spjölluðum í rúman klukkutíma um allt og ekkert áður en ég fór heim. Sennilega hefur hann aldrei kynnst mér þegar ég er "í lagi", ég var alltaf útúr heiminum þegar hann var nálægt - enda sagðist hann aldrei hafa verið alveg rólegur nálægt mér vegna þess að ég var svo.. "óhugnanleg". Það er líklega hárrétt hjá honum. Ég var líka óhugnanlega hrifin af honum. Þetta var ekkert smá skrítin upplifun fyrir mig og ég held að hann hafi fundið að ég er ekki hrifin af honum lengur. Hann er sennilega jafn fegin og ég.
Ég kyssti hann á kinnina þegar ég fór og gekk brosandi niður tröppurnar. Ég hafði fengið það sem ég fór til að sækja.
Anna says: Harpa
Harpa says: hæ
Harpa says: ég var einmitt að kíkja hvort þú væri enn away
Anna says: ég elska hann ekki lengur
Anna says: ég sat þarna
Harpa says: JESSSS
Anna says: mig langaði ekki að kyssa hann
Anna says: mig langaði ekki að kúra við hann
Harpa says: TIL HAMINGJU!!!
Anna says: við vorum að spjalla og ég hélt áfram að vera ég
Anna says: þetta er over
Harpa says: þvílík snilld!
Anna says: eftir allan þennan tíma
Anna says: closure
Harpa says: þú sagðir mér líka að þú ættir að kaupa bílinn
Harpa says: ég er augljóslega ekki fær um það lengur að segja þér hvað þér er fyrir bestu
Anna says: það er morgunljóst
Harpa says: lol
Anna says: nú get ég tekið sjálfstæðar ákvarðanir byggðar á rökum og skynsemi!
Anna says: össsss
Harpa says: þú ert hættuleg
Anna says: hef alltaf verið það
Anna says: ég þarf samt eiginlega að segja þér frá manni sem ég hringdi í fyrr í kvöld
Harpa says: ha? Er kominn nýr?
Anna says: nei ég ætla ekki á deit með honum
Harpa says: hvað er að honum?
Anna says: þarf að vera eitthvað að honum?
Harpa says: greinilega ekki
Anna says: ertu við síma?
Harpa says: já
Anna says: ég hringi..
Harpa says: k
Harpa skilur ekki af hverju ég vil ekki fara á deit með manninum sem ég hringdi í, en ég get það ekki. Ef ég færi á deit með honum væri ég að fara gegn eigin sannfæringu - og brjóta loforð sem ég gaf honum.
Ég vil ekki gera það.