www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Time out
Mánudagur, 05. nóvember 2007

Ég hef smá tíma til að græja ýmsa hluti áður en ég byrja á nýjum vinnustað. Ef ég þekki mig rétt mun ég sennilega ekki hafa orku til að updeita líf mitt á blogginu á meðan ég er að komast inn í nýja starfið.

Þess vegna hef ég ákveðið að setja bloggið í slipp tímabundið.

Sem er eiginlega sorglegt vegna þess að það er aldrei eins mikið að skrifa um eins og þegar maður byrjar á nýjum vinnustað. Það á oftast bara ekkert erindi á netið.

Ég mun sennilega vera lítið við á msn líka. Á von á slatta af bókum frá Amazon sem ég vil gefa mér tíma til að lesa. Stefnir í að ég fari í nám eftir áramót og já.. það er bara margt að gerast. Á stuttum tíma.

Þangað til ég kem aftur.. veriði ljón.
Alveg sama þó þið séuð bara kettlingar eins og ég.

Feels good.


| anna | 20:17 |
comments

ohh, þetta er nú bara alsætasta ljón sem ég hef séð MJÖG lengi...

Tojtoj í nýju vinnunni, hlakka til að heyra í þér aftur smile

Nr. 1 | posted by: hildigunnur | 5.11.2007 | 21:41:50 | [+] |

Heyrðu hvenær tókstu þessa mynd af mér? smile

Nr. 2 | posted by: Ljónið | 5.11.2007 | 21:50:06 | [+] |

Hugsa sér að þetta ljón skuli hafa skelfst eina krumpaða krumlu...

Nr. 3 | posted by: AlanHudson | 6.11.2007 | 2:42:34 | [+] |

Var að hlaupa i gær akkurat þegar þu birtist... speak soon winky

Nr. 4 | posted by: Elín | 6.11.2007 | 8:36:01 | [+] |

Takk Hildigunnur, þetta er algjör killer.

Ljónastrákur: ég tók þessa mynd af þér þegar þú komst úr sturtu um daginn. Manstu ekki? wink

Don't knock it 'till you try it Alan. Don't knock it 'till you try it.

No prob Elín. Hlakka til að heyra í þér wink

Nr. 5 | posted by: anna | 6.11.2007 | 12:43:01 | [+] |

Ú, gangi vel, gangi vel.

Nr. 6 | posted by: Guðrún | 6.11.2007 | 19:43:45 | [+] |

Já, manni veitir ekki af að vera ljón í helv... baráttunni við rotturnar. Núna er mamma rotta í kjallaranum og næst ekki bölvuð. Ég hræðist hefndaraðgerðir því við (lesist meindýraeyðirinn) erum búin að drepa fyrir henni 9 unga. Sem sagt, ég er að reyna að vera ljón melodramatic Gangi þér vel! verðum í sambandi.

Nr. 7 | posted by: Sigga | 7.11.2007 | 10:25:03 | [+] |

Takk takk Guðrún! smile

Þetta rottudæmi er nú efni í hryllingsmynd.
Aðal vondukalla-mömmu-rottan!

..ég fæ hroll.

Gangi ykkur vel með þetta, þið hljótið að finna kvikindið! pirate

Nr. 8 | posted by: anna | 7.11.2007 | 15:25:50 | [+] |

OMG ég lenti í mjög dularfullu súpukjötshvarfi í gærdag!! Ætli það hafi verið ljón eða rotta!!! Hef reyndar máva eða hrafna grunaða um verknaðinn. Rúm 2 kg af lambakjöti hverfur með öllu af svölum á annarri hæð, pakkað í plast. Fann pokann allan götóttan í garðinum en ekki eitt einasta bein eða fituarða. En hver sem þjófurinn var þá er hann matvandur því haugur af rjúpum hafa verið á svölunum í fjóra daga. Þar með rottur útilokaðar! Kæri herra ljón, hvar varst þú í gærdag???

Nr. 9 | posted by: Eddið | 9.11.2007 | 17:13:50 | [+] |

Ljónastrákurinn borðar bara hamborgara og svoleiðis. Hann er svo vel taminn. wink

Nr. 10 | posted by: anna | 11.11.2007 | 11:57:12 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web