www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Thank you
Föstudagur, 02. nóvember 2007

Deildin mín hélt fyrir mig kveðjuhóf í lok vinnudags í dag. Ég vissi ekki að það stæði til fyrr en nokkrum klukkutímum áður. Þegar ég sá veitingarnar, sem voru veglegri en í fermingarveislunni minni, rann upp fyrir mér að annaðhvort kann þetta fólk að halda veislu - eða þau eru svona rosalega feginn að losna við mig.

"Við sjáumst svo eftir áramót, er þetta Marel bara ekki eitthvað sprotafyrirtæki? Ég kannast ekkert við nafnið, þetta fer á hausinn á hálfu ári - þú kemur aftur."
-S

Þau gáfu mér í kveðjugjöf mynd af ljóninu, eins og þau sjá það fyrir sér, (myndin verður á skrifborðinu mínu hjá Marel) og glærushow með sögu sem mér fannst óborganleg. Það var reyndar ein mynd af mér í.. vafasömum stellingum með ljóninu - ég vissi ekki að Glitnir væri með paparazzi ljósmyndara á sínum snærum. Samt.. ég kom bara ágætlega út þannig lagað, hefði kannski mátt vera búin að fara í vax.

Mér fannst líka brilliant að glærushowið var í Glitnis brandinu, sem segir mér bara að þetta eru serious professionals - með húmor.

Getur ekki tapað.

Mér þykir svo vænt um þetta fólk sem ég hef eytt mestum tíma mínum með frá því í janúar og ég kem til með að sakna þeirra. Allra nema Hjálmars auðvitað, þar sem ég kem til með að stalka hann eitthvað áfram. Var að kaupa bílskúr í hverfinu þar sem hann býr, sparar bensín og nú hef ég aðgang að salerni!
Þetta verður allt annað líf.

Í lokin var myndum varpað uppá vegg úr vinnuferð sem við fórum í á tímabilinu, mikið er þetta búið að vera gaman!

Ég er eiginlega hálf depressed núna og hef ákveðið að gifta mig ekki aftur - enda er það tómt rugl, hvort sem um manneskju eða fyrirtæki er að ræða. Fjarbúð er málið, ég er alltaf að segja það og as of today opnaðist fyrir markað af karlmönnum sem vinna fyrir Glitni. As of today lokaðist líka markaður af karlmönnum sem vinna fyrir Marel.

Ég mætti í selskinnskápunni minni í vinnuna og var bæði spurð að því hversu margir selir fóru í að búa kápuna til - og - hvort örlög ljónsins yrðu að enda sem motta við rúmið mitt. Ég svaraði FUCK THE SEALS - fattaði um leið að næst finn ég mér auðvitað sel.

Kannski á ég eftir að deita allt O'Reilly safnið áður en ég finn það sem ég þarf. Dreg samt mörkin við flugur. Ég bara þoli ekki flugur og það er líka ekki hægt að sauma föt úr þeim.

Bygons.

Rosalega finnst mér skrítið að vera hætt.

Það sem ég tek með mér eftir þennan tíma hjá Glitni er miklu verðmætara en peningar.


| anna | 23:14 |
comments

til ham með nýja starfið.
Munurinn á þessum fyrirtækjum felst helst í því að afturábak er orðið Marel Leram sem er náttúrulega mun flottara en Rintilg.
Wise choice vinan.

Nr. 1 | posted by: lifur | 3.11.2007 | 14:39:20 | [+] |

Takk Lifur! Alveg var það eftir þér að hressa mig við þegar ég er lítil og blá. Þú ert svo góður við mig.

Leram já.

Ég hef alltaf tengt Marel við Jor-El, pabba hans Súperman sem hét fullu nafni Kal-El, áður en hann tók upp nafnið Klark Kent.

Mar-El. Þetta er náttúrlega bara ofurhetja í dulbúningi. Það blasir við.

Nr. 2 | posted by: anna | 3.11.2007 | 17:34:28 | [+] |

ég er ánægð að sjá lifur hér aftur. lifi lifur!

Nr. 3 | posted by: baun | 3.11.2007 | 17:48:21 | [+] |

lifur - lifir - lifði.
Lifur lifi brauð.
Laufabrauð.
Myllu myllu myllu myllu...
jólaleg, jólaleg jól, jólalegjól.

Af hverju ertu lítil og blá?

Nr. 4 | posted by: lifur | 3.11.2007 | 18:27:06 | [+] |

Laufabrauð? Anna Laufey!

Þetta er svo skrifað í stjörnurnar að það hálfa væri þvæla.

Æ.. ég verð stundum lítil og blá - og þá kemur þú og gerir allt betra!

Nr. 5 | posted by: anna | 3.11.2007 | 18:50:04 | [+] |

God speed,

kv/Seagal

Nr. 6 | posted by: Seagal | 3.11.2007 | 20:17:29 | [+] |

Anna:

Er neðri vörin ekta?

Nr. 7 | posted by: Organistinn | 4.11.2007 | 2:32:03 | [+] |

Á propos flugur...

http://tinyurl.com/3c67b2

Nr. 8 | posted by: HT | 4.11.2007 | 14:05:54 | [+] |

Takk Seagal smile

Ekta? Hvað ætti að vera fake við hana?

Ég var einmitt að skoða wulff um daginn, ég dæmi svona konur. Hiklaust. Flugur eru bara síðasta sort. melodramatic

Nr. 9 | posted by: anna | 4.11.2007 | 14:29:54 | [+] |

It is too perfect.

Nr. 10 | posted by: Organistinn | 5.11.2007 | 2:20:23 | [+] |

Heldurðu að ég hefði ekki látið setja sílíkon í efri vörina líka ef það væri keisið?

Ég er bara svona. Too perfect - sumstaðar. toungue

Nr. 11 | posted by: anna | 5.11.2007 | 2:28:41 | [+] |

miss you already! weepy

Nr. 12 | posted by: milla | 5.11.2007 | 19:21:07 | [+] |

0

Nr. 13 | posted by: anna | 5.11.2007 | 20:13:39 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web