www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Melatonin
Miðvikudagur, 28. nóvember 2007

Melatonin_3mg_GNC.jpgÉg hef alltaf átt erfitt með að sofna á kvöldin en hef ekki viljað nota svefnlyf vegna þess að ég verð svo sljó af þeim daginn eftir að ég sé ekki alveg tilgangin. Get alveg eins verið sljó á morgnanna eftir lítinn svefn eins og að vera sljó eftir að hafa druggað sjálfa mig kvöldið áður. Same difference.

Um daginn hitti ég lækni sem spurði mig útí svefninn og ég sagði honum sorgarsöguna. Hann grét.

Þegar hann hafði þurrkað tárin og snýtt sér sagði hann að ég ætti finna einhvern sem væri að fara til Bandaríkjanna og fá viðkomandi til að kaupa fyrir mig Melatonin og prufa að taka eina töflu fyrir svefn. Ég gerði þetta.

Í gær fékk ég töflurnar og í gærkvöldi prufaði ég að taka eina töflu áður en ég fór að sofa.. og by the beard of Zeus!

Ég sofnaði stuttu eftir að ég lagði höfuðið á koddann.

Auðvitað reikna ég með því að þetta hafi verið fluke - en - ef þetta virkar í alvöru og ég fer að geta sofnað á kvöldin mun það sennilega hafa áhrif á allt líf mitt þegar til langs tíma er litið. Ég hef aldrei gert nokkurn skapaðan hlut af viti á morgnanna nema klæða mig og tannbursta því ég vakna einfaldlega aldrei snemma!

Ég er mjög spennt að sjá hvað gerist í kvöld.


| anna | 17:49 |
comments

Lausn á B-mennsku. Snilld.

Nr. 1 | posted by: Guðrún Inga | 29.11.2007 | 12:36:35 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web