Mánudagur, 12. nóvember 2007
Nú hefur ákveðin karlmaður sagt mér að hann sé að koma til landsins í lok mánaðarins til að hitta mig. Hann er tveimur árum yngri en ég. Ég sá hann fyrst fyrir rúmum tveimur árum síðan og ég er búin að skrifa um hann stundum á bloggið, en ég hef aldrei skrifað alla söguna. Ég er ekkert viss um að ég eigi eftir að gera það.
Hann á eitt langtíma samband að baki, sjö ár, sem gefur vísbendingu um að hann sé sambandshæfur og búinn að taka út ákveðin þroska. Hann er barnlaus en setur ekki fyrir sig að ég eigi börn. Hann hefur húmor sem ég fíla en gerir greinamun á gríni og alvöru þannig að það er hægt að tala við hann. Hann er klár og fljótur að hugsa. Hann er vatnsberi. Hann er rétt yfir einn og nítíu á hæð. Hann er ekkert venjulega flott vaxinn og lifir heilbrigðu lífi - bæði hvað varðar hreyfingu og matarræði. Hann er ekki trúaður, sem mér finnst kostur og hann fílar Galdradúkkurnar mínar. Hann er dökkhærður. Hann hefur æðislega fallegt bros sem nær til augnanna. Hann hefur græn augu.
Hann lyktar vel - og finnst ég lykta vel. Hafði orð á því í kommenti sem hann setti á síðuna mína daginn eftir að við hittumst. Merkilegt að þetta hafi verið eitthvað sem við tókum bæði eftir við hvort annað. Hann hefur flotta rödd. Hann er rafmagnsverkfræðingur og vinnur sem framkvæmdarstjóri. Hann man hvenær ég á afmæli og hefur sent mér eitthvað fallegt þegar ég á afmæli þessi þrjú skipti frá því hann hitti mig. Sem ég kann að meta. Hann actually fílar að ég skuli blogga þó hann skilji ekki tungumálið sem ég skrifa á. Hann hefur sjálfstraust.
Ég veit ekki hvort hann gerir alvöru úr því að koma. Meina.. við töluðum saman í fimm mínútur fyrir rúmum tveimur árum síðan. Reyndar gerðist eitthvað mjög skrítið á milli okkar á þessum örstutta tíma. Veit ekki hvort það var kemistrí en undarlegt var það, afgerandi og mjög eftirminnilegt. Eitthvað sem við fundum bæði fyrir. Hann vildi koma aftur til landsins að hitta mig stuttu síðar, en ég bannaði honum að gera það. Hef bannað honum að koma nokkrum sinnum. Vinkonum mínum finnst ég biiiiiiiiiiiiiiiiluð fyrir að vera ekki búin að negla hann fyrir löngu. Kannski er ég biluð. Sennilega, en mér fannst ég þurfa að klára annað mál fyrst.
Ég er búin að leita lengi að einhverju afgerandi að honum, en hef ekkert fundið.
Væri samt ekki típískt ef hann er fjöldamorðingi?