Mánudagur, 05. nóvember 2007
Ég er búin að sjúga uppí nefið s.l. hálftíma og augun í mér eru öll bólgin.
Kemur í ljós að ég er með ofnæmi fyrir ljónastráknum.
Classic - mér var farið að þykja svo vænt um hann.
--
Á meðan, í Afríku - af öllum stöðum...
Situr karlmaður einn á ströndinni og hugsar um hvernig það verður að hitta mig aftur.

Hann er vatnsberi.
--
Þetta er rétti tíminn fyrir hann til að koma svosem, ég á ekkert þannig óuppgert lengur - nema hann.
Í kvöld komst ég líka að því að mig langar að eignast kærasta. Það gæti reyndar verið e.k. stundarbrjálæði af því ég var að skilja við Glitni. Ekki ósennilegt.
Það gæti líka bara verið þörf fyrir nánd og væntumþykju - af því ég fæ bara taste - og ég bakka af því ég vil ekki verða húkkt - á efni sem er bara framleitt á einhverri lítilli eyju útí heimi og ekki nokkur leið að nálgast með góðu móti.
Sennilega er ég bara á einhverjum sentimental stað í tíðarhringnum.
Helvítis hormónar alltaf hreint - helvítis ofnæmi!
Ég ætla að snýta mér..