www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Day one
Föstudagur, 09. nóvember 2007

Fyrsti dagurinn í vinnunni. Báðir krakkarnir veikir svo ég mætti bara örstutt til að fá allan aðgang og til að heyra um fyrsta fundarboðið. Ég er að skrifa þetta vegna þess að mig langar að muna hvernig mér leið í dag.

Þetta verkefni er H U G E, sem gerir það bara meira spennandi. Rosalega margt sem ég þarf að setja mig inní og margt sem ég þarf að læra. Marel er H U G E. Ég gerði mér satt að segja enga grein fyrir því hvað þetta er orðið stórt fyrirtæki á alþjóðamarkaði. Ég tilheyri corporate hlutanum og stýri uppbyggingu vefsvæða Marel Food Systems og markaðssetningu fyrirtækisins á netinu - það þurfa að líða nokkrir mánuðir áður en ég get sagt þetta upphátt án þess að fá panic attack og þorna upp í munninum.

Skál fyrir því.


| anna | 16:03 |
comments

Þú plummar þig. Það er enginn sem efast um það eitt andartak - og þetta verður gaman.

Nr. 1 | posted by: AlanHudson | 9.11.2007 | 20:16:03 | [+] |

takk Alan. Þetta verður massa gaman.

Nr. 2 | posted by: anna | 9.11.2007 | 21:08:12 | [+] |

Já, skál!

Nr. 3 | posted by: Kristín | 9.11.2007 | 21:24:16 | [+] |

Þú átt eftir að standa þig frábærlega - Hættu að hafa áhyggjur, fólk fær bara hrukkur af áhyggjum smile

Nr. 4 | posted by: Stefán | 10.11.2007 | 22:24:15 | [+] |

Takk Stefán. Ég reyni að hafa sem minnstar áhyggjur af hlutunum. Alltaf þegar áhyggja gerir vart við sig kemur afneitunin og étur hana.

Þess vegna hef ég svona lítið af hrukkum wink

Nr. 5 | posted by: anna | 10.11.2007 | 22:38:39 | [+] |

Skál frá Palm Springs. Þú gerir þetta eins og að drekka vatn.

Nr. 6 | posted by: Organistinn | 11.11.2007 | 7:48:08 | [+] |

Palm Springs.

Segðu mér.. ef sú staða kemur upp að ég þarf að fara á ströndina í þessu nýja starfi - meina.. fiskar búa þar rétt hjá.

Te? Ég drekk nefnilega ekki kaffi. wink

Nr. 7 | posted by: anna | 11.11.2007 | 11:56:23 | [+] |

Já Palm Springs vegna þess að fyrir þremur árum keypti Refurinn Loki tíu vindmillur í fremsta hlutanum á Coachella dalnum. Síðan hafa eyðimerkuvindarnir í Kaliforníum malað gull fyrir Ref sem situr í 101 á Íslandi. Loki hefur falið mér að hafa eftirlit með þessari fjárfestingu í útlensku roki, þannig að ég bregð mér til Palm Springs tvisvar á ári. Hér er mikið af golfurum, fráskyldum konum og hommum.

Ég er hlaðinn af tei af mörgum tegundum og reikna með þér. Engin spurning.

Nr. 8 | posted by: Organistinn | 12.11.2007 | 10:06:45 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web