Miðvikudagur, 14. nóvember 2007
Ég var boðin í mat í kvöld í fisk og glænýjar kartöflur. Eftir matinn fór ég í fyrsta tímann af tíu í golfkennslu.
Fékk hugmynd á meðan ég var að spila golf. Ég er að hugsa um að lifa á fiski og kartöflum í einhvern tíma. Hrikalega finnst mér þetta góður matur og ég hefði bara gott af því, sérstaklega þar sem ég ætla að fara að nýta mér líkamsræktaraðstöðuna í Marel.
Kennarinn sá langar leiðir á mér að ég er algjör nýgræðingur í sportinu en hrósaði mér fyrir góða líkamsstöðu þó ég gerði allt hitt rangt. Ég skaut í sífellu framhjá helvítis holunni, sennilega vegna þess að ég er rangeyg og get ekki miðað. Ég þarf að æfa þetta hérna heima. Gott að ég er gædd miklu jafnaðargeði svo það stafar engum hætta af mér með þessa kylfu.
Ég er blankari en kirkjumús á féló. Fæ ekki útborgað fyrr en um miðjan des. Bankarnir fara nefnilega að borga manni launin fyrirfram við fastráðningu, svo ég missti út einn mánuð.
Se la vie, ég lifi þetta af. Finnst þetta eiginlega alveg ágætt. Hef bara gott af því að rifja upp hvernig það er að eiga enga peninga. Kennir manni að meta það sem maður hefur og ég hef hingað til ekki drepist af því að lifa á hrökkbrauði.
Það lítur út fyrir að verða mjög gaman í vinnunni þó þetta sé langt frá því að vera einfalt mál. Ég er t.d. að breyta tenglinum hérna efst til hægri á síðunni minni úr marel.com í marelfoodsystems.com, af því ég tilheyri ekki Marel. Ég tilheyri Marel Food Systems
Marel Food Systems á hinsvegar nokkur fyrirtæki og þau eru öll með heimasíður:
www.marel.is
www.marel.com
www.marel.co.uk
www.marel.dk
www.aewdelford.com
www.carnitech.com
www.marelusa.com
www.scanvaegt.com
www.scanvaegt.dk
www.scanvaegt.se
www.scanvaegt.no
www.scanvaegt.de
www.scanvaegt.es
www.scanvaegt.nl
www.scanvaegt.fr
Held að ég sé ekki að gleyma neinum.
Þetta endar sennilega með hjónabandi eftir allt saman...