Þriðjudagur, 20. nóvember 2007

Þegar ég kom heim setti ég restina af fermingarmyndbandsmyndunum á vefinn og svo sofnaði ég í sófanum.
Var búin að gleyma að ég átti að mæta hjá honum Ingó ljósmyndara sem vildi taka smá stúdíó session með mér.
Hann hringdi og ég - nývöknuð - fór til hans. Þetta var ferlega gaman og kom mér verulega á óvart að hann gæti náð góðum myndum af mér eins mygluð og ég var. Við tókum m.a. nokkrar Jesú pósur en ég sé núna að þetta hefði verið súper kúl fermingarmynd af mér.
En þetta var nú ekkert allt eitthvað Jesú kjaftæði..


