Föstudagur, 23. nóvember 2007
Ég fékk óhugnanlegt símtal í vikunni. Kona hringdi í mig og sagði að hún gæti því miður ekki endurgreitt mér nema ég myndi finna frumrit af sjö reikningum.
Sjö reikningum.
Þar sem við erum að tala um töluverða peninga var þetta the moment of truth fyrir mig. Ég vissi að nú yrði ég að fara yfir bókhaldið.
Ég hef ekki nennt að halda bókhald í þrjú ár. Bæði hefur mér fundist það depressing af því ég er að borga niður mikið af skuldum og mig langar ekkert átakanlega að hafa nákvæma skrá yfir hvað ég er að borga á mánuði í vexti, verðbætur og fleira skemmtilegt. Mér fannst þægilegra að henda öllum bréfum í plastkassa án þess að opna þau. Sennilega er ég bókhaldsfælin manneskja. Whatever.
Þetta kerfi hefur virkað mjög vel, allavega hef ég ekki verið í vanskilum með neitt. Nú kemst ég hinsvegar ekki upp með þetta lengur og á leiðinni heim úr vinnunni kom ég við í Pennanum og keypti það sem ég þurfti fyrir verkefnið.

Því næst náði ég í það sem ég var að fara að flokka. Bréf og dót síðustu þriggja ára. Eldspítustokkurinn er þarna sem viðmið.

Þessar bantex möppur með plöstunum inní eru snilld. Þetta eru display möppur einhverjar sem svínvirka í heimilisbókhaldið. Stelpa sem ég vinn með benti mér á að kaupa þannig til að geyma allt sem "skiptir máli". Tryggingarskírteini, leyfisbréf fyrir lögskilnaði, ábyrgðarskírteini, ráðningasamninga.. þannig dót. Algjört brill. Nú er ég bara með þunna svarta möppu þar sem þessi skjöl eru aðgengileg. Komst líka að því að ég er tví sjúkra og líftryggð og þegar frumburðurinn sá það heyrðist "úúúÚÚÚÚúúúúú".
Ég ætla ekkert að vera að lesa neitt of mikið í það.
Ég var að flokka og raða í allt gærkvöldi. Frumburðurinn kom sterkur inní þessa vinnu og var mér ómetanleg hjálp. Þegar upp var staðið hafði ég fundið alla reikningana sem ég þurfti að finna, þetta gamla stöff komið í voða sniðuga binders og árið 2007 inn í möppu. Í kvöld bjó ég svo til miða á kjölinn á 2007 bókhaldsmöppunni.
Mér finnst mér hafa tekist mjög vel upp - nema.. það er ekkert átakanlega mikil bjartsýni í þessum kili. Sparigrís með buttplug að halda sér á floti. Það er samt nákvæmlega það sem ég hef verið að gera undanfarin ár - fyrir utan butt plug-ið.
Halda mér á floti.
Ekki get ég haft depressing kjöl á bókhaldsmöppunni minni, ef ég geri það á ég aldrei eftir að nenna að koma nálægt henni.. svo ég ákvað að búa til áætlun í kvöld til að sjá hvernig landið liggur hjá mér. Setti upp nákvæmt yfirlit í excel og það sem ég sá kom mér verulega á óvart. Ég er búin að vera mjög dugleg að borga niður. Ég er ekki lengur bara að halda mér á floti. Ég er actually farin að sjá árangur - svo ég bjó til aðra og betri útgáfu til að hafa á kilinum á bókhaldsmöppunni minni.
Þegar ég var búin að því datt mér í hug að búa til fjárhagsáætlun fyrir næstu þrjú ár. Þetta er gróft reiknað, og það fer eftir því hvað ég er dugleg að spara hvort þetta heldur.. en ef ég er dugleg, þá er þetta nokkuð rétt held ég.
Fjárhagsáætlun 2007 - 2010
Djöfull á þetta eftir að fara vel í hillu.
Ég er ekki búin að ákveða hvað gerist þegar sparigrísinn kemst actually í snertingu við einhverja peninga þarna á kilinum - en það verður eitthvað.
Kannski fær hann sér vindil.