Ég vökvaði blómin.
He he, ég vökvaði mín skrælþurru en þolinmóðu blóm líka í dag.
Ótrúlegt hvað þetta lifir - en þau eru líka sérvalin
Ég vökvaði heiminn.
Það munar ekki um það Organisti, hvernig fórstu að því?
samgleðst blómunum þínum innilega
Maður sprautar vatninu í allar áttar og yfir í aðra garða. Svo fer maður víða, alltaf með vökvunarkönnu, og notar hvert tækifæri til að vökva allt sem þarf vökvunar við.
Já þú meinar..
Ég vökva aldrei heiminn. Læt bara heiminn sjá um það sjálfan.
Þá er þetta að misheppnast hjá mér. Ég var að reyna að mótivera þig að vera metnaðarfyllri en að vökva bara blómin.
Ég vökva stundum gólfið inná baði óvart. Er það ekki nóg?
Af hverju ætti ég að vökva heiminn?
Vegna þess að margir eiga erfitt á ýmsan hátt og þurfa vökvun.
Þetta fannst mér fallegt.
Finnst þér vanta vatn á anna.is?
Nei það held ég ekki. Ég sé Önnu-punktur-is sem vökvara.
Takk fyrir það Organisti. Coming from you, that means a lot.