Sunnudagur, 18. nóvember 2007
Fór í afmæli í kvöld hjá frænda mínum.

Aðal stuðboltinn á svæðinu. Svoleiðis reytti af sér brandarana. Held að hann sé hamstur.

Annar frændi minn er búinn að fá sér tattú. Nokkuð flott verð ég að segja.

Mér til hryllings fékk ég afrit af fermingaveislunni minni á stafrænu formi.
Ég ætla að vera búin að drekka soldið af sterku áfengi áður en ég skoða það efni.

Kom við heima hjá afa og ömmu eftir afmælið.
Mér finnst notalegt að sumt breytist ekki.

Læt fylgja með myndina af mér sem amma hélt mest uppá.
--
Afi kom með nokkur gullkorn í kvöld. Hann spurði mig hvað ég væri orðin gömul og ég sagði honum að ég væri 36.
"Nú ertu orðin svona helvíti gömul!"
Ég fór að hlæja. Þá sagði hann að ég hefði vel geta logið að honum að ég væri 25. Ég fór aftur að hlæja.
Þá kom hann með gullkorn dagsins:
Fögur kona er paradís augans
helvíti sálarinnar
og sannkallaður hreinsunareldur á peningaveskið
Ég sagði honum að ég yrði að skrifa þetta niður, náði í blað og penna og hann byrjaði aftur:
Fögur kona... eða þú getur bara sagt "ég er"
helvíti sálarinnar
og sannkallaður hreinsunareldur á peningaveskið
Þetta er satt. Fögur kona er paradís augans. Hún getur verið helvíti sálarinnar því menn eru svo hræddir um þær. En þetta með peningaveskið er mismunandi. Sumar eru verstu eyðsluklær, aðrar eru sparsamar. En svona er þetta. Finndu þér nú mann Anna. Einhvern sem er ekki mjög fallegur en ekki mjög ljótur. MeðaLjón. Það er best. Og hafðu hann sterkefnaðann. Peningar hafa ekkert með hamingu að gera, en það er bara svo slæmt þegar þeir eru ekki til staðar.
Finndu þennan mann bráðlega. Áður en þú hættir að vera svona ungleg.
--
Afi minn er perla - og ég fann allavega ljón!
Þá á ég bara "meða" eftir.
Kannski finn ég bara meðal ljón.